Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 15.05.2002, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 15. maí 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 13 Vináttuleikur í knatt- spyrnu: Island leikur gegn Andorra fótboiti ísland og Andorra mæt- ast í vináttulandsleik karla á Laugardalsvelli 21. ágúst. ísland og Andorra voru saman í riðli í undankeppni síðasta Evrópumóts og vann Island útileikinn 2-0 og heimaleikinn 3-0. Þessi leikur verður liður í undirbúningi lands- liðsins fyrir undankeppni Evrópu- mótsins en fyrsti leikurinn í þeirri keppni er 12. október gegn Skotlandi heima. Seinni leikurinn á þessu ári verður líka heima, gegn Litháen 16. október. Auk þeirra eru Færeyjar og Þýskaland í riðlinum. ■ Guðjón Þórðarson og Stoke: Undrast ummæli stjórnarformannsins stoke Ekkert hefur enn skýrst um stöðu Guðjóns Þórðarson; ar, þjálfara Stoke, hjá liðinu. f samtali við Guðjón í gær sagð- ist hann ekkert vita um fram- haldið. „Ef þetta skýrist ekki fljótlega, helst í þessari viku, mun ég fara eitthvað annað. Ég bíð náttúrlega ekki enda- laust,“ sagði Guðjón. „Það var reyndar mjög athyglisvert sem stjórnarformaðurinn sagði núna í einhverjum fjöl- miðlum á íslandi, að þeir yrðu GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Fljótlega kemur í Ijós hvert framhaldið verður hjá honum. að komast að samkomulagi um hverjum þeir treystu best til að takast á við fyrstu deildina. Hann sagði jafnframt fyr- ir síðasta leikinn, fyrir Brentford-úrslitaleikinn, að hann treysti engum betur í svona stórleiki en mér því ég væri vanur að takast á við það. Það kem- ur því mjög á óvart þetta komment hans sólarhring sein- na, þar sem hann efast um ágæti mitt til að takast á við verkefni sem er af hærra kaliberi.“ Mál þessi skýrast að öllum líkindum nijög bráðlega en samkvæmt heimildum verður fundur for- ráðamanna Stoke Football Club og Stoke Holding í þess- ari viku. ■ Real Madrid-Bayer Leverkusen: Líkleg byrjun- arlið FÓTBorn Bayer Leverkusen: Hans- Joerg Butt, Diego Placente, Zoltan Sebescen, Lucio, Boris Zivkovic, Bernd Schneider, Carsten Ramelow, Michael Ballack, Yildiray Basturk, Dimitar Ber- batov, Thomas Brdaric. Real Madrid: Cesar, Michel Sal- gado, Fernando Hierro, Ivan Helguera, Roberto Carlos, Santi- ago Solari, Claude Makelele, Zinedine Zidane, Luis Figo, Raul, Fernando Morientes. Dómari: Urs Meier (Sviss). Til gamans má geta þess að mið- að við þetta byrjunarlið eru sex leikmenn Real Madrid frá Spáni, tveir frá Frakklandi og einn frá Portúgal, Argentínu og Brasilíu. Leverkusen frá Þýskalandi hefur líka sex heimamenn innanborðs en auk þeirra er einn frá hverju eftir- talinna landa: Argentínu, Brasilíu, Króatíu, Tyrklandi og Búlgaríu. ■ —♦— Berti Vogts: „Þeir lakari geta unnið“ fótbolti Berti Vogts forveri Klaus Toppmoller þjálfara Bayer Leverkusen, hefur trú á að liðið, sem sló Manchester United út í undanúrslitum, geti unnið stjörn- um prýtt lið Real Madrid. Hann hefur þó áhyggjur af fjarveru hinna sterku leikmanna Ze Ro- berto sem er í leikbanni og Jens Nowotny sem er meiddur. „Ég veit þeir eru lakari aðilinn, en þeir lakari geta unnið,“ segir Vogts um lið Leverkusen. ■ „Dýrmæt reynsla fy rir lífið sj álft1 ‘ Dóra Stefánsdóttir, 17 ára, er eini nýlidinn í A-landsliði kvenna í knattspyrnu. Segir valið hafa komið sér verulega á óvart. handbolti Dóra Stefánsdóttir úr Val, er eini nýliðinn í íslenska landsliðinu sem leikur við Rúss- land í undankeppni HM í knatt- spyrnu kvenna. „Það munaði minnstu að ég kæmist ekki með því passinn minn fór í þvott með búningum U-19 ára liðsins. Ég hafði sett hann í vasann og gleymt honum. Þegar hann var sendur í rússneska sendiráðið til að fá vegabréfsáritun var hann allur krumpaður, og við höfðum áhyggjur af því, en þeir hlógu bara að honum,, segir Dóra sem er nýorðin 17 ára gömul. Dóra segir hlutina hafa gerst hratt, en fyrir einu ári var hún að vonast til að komast í U-17 ára liðið. Um það leyti lék hún sinn fyrsta meistara- flokksleik þegar hún kom inná gegn KR og skoraði eitt af mörk- um Vals í 4-1 sigri. Hún varð síðan bikarmeistari með liðinu síðast- liðið haust. Hún segir valið í A- landsliðið hafa komið sér veru- lega á óvart þó að hún hafi verið í stórum æfingahópi fyrir stuttu. „Ég hélt að það væri til að veita mér reynslu, en þeim hefur greinilega verið alvara og treysta mér í þetta verkefni. Ég hlakka líka mikið til að takast á við það og þetta er frábært tækifæri.“ Dóra vill síst af öllu ofmetnast af vel- gengninni þó hún viðurkenni að það sé gaman þegar vel gengur, sérstaklega þar sem hún hafi mik- inn metnað. Hún segir knatt- spyrnuiðkun ekki hafa eyðilegt neitt fyrir sér í námi, en nú standa DÓRA STEFÁNSDÓTTIR Dóra var valin efnilegasti leikmaður efstu deildar kvenna í fyrrahaust. yfir próf hjá henni í MR. „Ég er ótrúlega heppin með að foreldrar mínir, eins og vinirnir, styðja mig í knattspyrnunni. Ég rnissi af einu prófi núna og missti úr skóla í haust, þegar ég fór þrisvar út með U-19 ára liðinu. Það eru ekki allir foreldrar sem yrðu ánægðir með það. En þessi reynsla sem ég er að fá er dýrmæt fyrir lífið sjálft og ég er alveg til í að fórna einum heilum í einkunn fyrir það.“ Líf Dóru hef- ur snúist um knattspyrnu meira og minna frá átta ára aldri. Því til staðfestingar segist hún hafa farið á 300 aukaæfingar þegar hún æfði í yngri flokkum hjá Elísabetu Gunnarsdóttur, sem hún hrósar mikið eins og þeim þjálfurum sem hún hefur haft í meistaraflokki. bryndis@frettabladid.is OPIÐ .11 Drífðu þig í dag og fáðu dágóðan afslátt! Spring-. iatex-, svamp- og eggjabakkadýnur og margt fieira með ^ 15-30% afslættil il 15 Nú eru Mörkin 4 • 108 Reykjavík Sími 533 3500 • www.lystadun.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.