Fréttablaðið - 15.05.2002, Page 17

Fréttablaðið - 15.05.2002, Page 17
MIÐVIKUDAGUR 15. maí 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 17 Madonna í fyrsta sinn á West End: Oörugg til að byrja með en óx ásmegin london Madonna tróð upp á sviði á West End í London á mánudag, í fyrsta skipti síðan hún lék í leikriti Davids Mamet, Speed the Plow, í New York árið 1988. Aðdáendur stjörnunnar lögðu mikið á sig til að komast á forsýninguna í London og biðu í langri biðröð í úrhellisrign- ingu fyrir utan Wyndhams-leik- húsið á mánudagskvöldið. Þegar dyrnar loks opnuðust voru heppnir áhorfendur með miða snarlega drifnir inn úr rigningunni og dyr- um hússins skellt á eftir þeim, ör- yggisins vegna. Blaðamönnum var ekki hleypt inn. Leikritið, sem er eftir Ástral- ann David Williamson, heitir Up For Grabs og fer Madonna með hlutverk listaverkasala í sýning- unni. Leikritið nýtur nú þegar gríð- arlegra vinsælda í Ástralíu og hef- ur þegar slegið öll aðsóknarmet í Sidney. Æfingar á leikritinu í London töfðust nokkuð vegna plötusamn- inga stjörnunnar og síðar þurfti að fresta forsýningunni vegna tækni- legra örðugleika. Áhorfendur virt- ust þó yfirleitt mjög ánægðir eftir forsýninguna á mánudagskvöldið. Þeir sögðu leikkonuna hafa verið eilítið óörugga til að byrja með, en vaxið eftir því sem á leið sýning- una. Sýningar á leikritinu hefjast MADONNA Myndin var tekin að lokinni frumsýningu síðastliðinn mánudag. fyrir almenning 23. maí næstkom- sjá hana í Swept Away, nýjustu andi. Leikritið verður á fjölunum í mynd eiginmanns hennar, Guy West End í tíu vikur. Aðdáendur Ritchie’s, sem verður frumsýnd Madonnu geta svo hlakkað til að bráðlega. ■ Háskólinn: Kosninga- fundur fundur Stjórnmálafræðiskor HÍ stendur fyrir kosningafundi í há- tíðarsal Háskóla íslands í dag frá kl. 17.15-18.30. Frambjóðendur fá þrjár mínútur til þess að halda framsögu. Að loknum framsögum verða leyfðar fyrirspurnir úr sal. Forystumönnum þeirra framboða sem bjóða fram til borgarstjórn- arkosninganna hefur verið boðið til þessa fundar. Þeir eru í staf- rófsröð: Björn Bjarnason, Guðjón Þ. Erlendsson, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Metúsalem Þórisson, Ólafur F. Magnússon og Snorri Ásmundsson. ■ —«— Möguleikhtisið v/Hlemm: Völuspá sýnd á ensku leiklist Möguleikhúsið við Hlemm sýnir leikrit Þórarins Eldjárns, Völuspá, á ensku í kvöld kl. 20. I leikritinu er norræn goðafræði í hnotskurn með Óðinn í broddi fylkingar. Leikstjóri sýningarinn- ar er Daninn Peter Holst. Guðni Franzson samdi og stýrði tónlist- inni í verkinu og leikari er Pétur Eggerz sem leikur öll hlutverkin í Völuspá. Stefán Örn Arnarson sellóleikari galdrar síðan fram úr hljóðfæri sínu áhrifshljóð og gef- ur hverri persónu verksins sér- stakt stef úr sellóinu. Nú er Völuspá til á þremur tungumálum, íslensku, ensku og sænsku. ■ — Listahátíð: Tónleikum Vengerovs frestað listahátIð Tónleikum Maxim Veng- erovs, sem vera áttu laugardaginn 18. maí kl. 16.00 í Háskólabíói, er frestað til mánudagsins 27. maí kl. 20.00 vegna veikinda. Miðar á'tón- leikana 18. maí gilda á tónleikana 27. maí. Þeir sem ekki geta nýtt miðana geta fengið þá endur- greidda fyrir mánudaginn 19. maí og verða þeir þá seldir öðrum. Miðasalan er opin alla hvítasunn- una. ■ AFSIÁTTUR ÞESSA VIK.UNA GERÐU GÓÐ KAUP

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.