Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.05.2002, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 22.05.2002, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ KiÖRKASSINN Þjóðin virðist sár- móðguð út í frændur okkar Svía ef marka má skoðanakönnunina á Vísi.is. Þá er spurningin hvort ráðamenn séu jafn móðgaðir og allur almenningur. Eiga íslendingar að hætta að styðja Svíþjóð á alþjóðavettvangi eftir framkomu hins sænska for- manns Atþjóða hvalveiðiráðsins? Niðurstöður gærdagsins á www.visir.is Nei 31% Spurning dagsins í dag: Eiga íslendingar að hefja hvalveiðar í trássi við bann Alþjóða hvalveiðiráðsins? Farðu inn é vísi.is og segðu þfna skoðun J HRÁTT HVALKJÖT SMAKKAÐ Þótt Stefán Ásmundsson hafi ekki fengið því framgengt að island yrði aðildarríki hvalveiðiráðsins, þá fékk hann að smakka á hráu hvalkjöti í gær. Alþjóða hvalveiðiráðið: Beiðni Jap- ana hafnað japan Alþjóðlega hvalveiðiráðið hafnaði í gær beiðni Japana um að fá að veiða fleiri hvali en til þessa. Japanir eru því ekki síður en ís- lendingar frekar reiðir út í ráðið. Hugmynd Japana var sú, að smærri byggðarlög í Japan gætu veitt hvali til eigin nota og sá afli yrði umfram það, sem Japönum hefur verið leyft að veiða undanfar- in ár. Einnig hafnaði hvalveiðiráðið tveimur tillögum um að afmarka sérstök verndarsvæði fyrir hvali, annað í Suður-Kyrrahafinu og hitt í Suður-Atlantshafi. ■ —♦— Sýslumaður: íslendingur á uppboði viðskipti Nauðungaruppboð á vík- ingaskipinu íslendingi verður hjá sýslumanninum í Reykjavík í dag. Það er Lánasjóður Vestur-Norður- landa sem krefst uppboðsins. Sjóð- urinn er með veð í víkingaskipinu fyrir lánum sem það hefur veitt eigandanum, Gunnari Marel Egg- ertssyni. Ekki náðist í Gunnar Marel í gær. Eins og kunnugt er hefur hann sagt skip sitt falt fyrir 60 milljónir króna. Hann hefur m.a. árangurs- laust reynt að selja það á upp- boðsvefnum Ebay á Internetinu. Is- lendingur hefur verið í Bandaríkj- unum frá því skipinu var siglt þangað árið 2000. ■ 1 22. maí 2002 MIÐVIKUDACUR Enn aukin þjónusta: Fréttablaðið líka á laugardögum útcáfa Fréttablaðið mun koma út næsta laugardag; á kosningadag- inn 25. maí. Fréttablaðið mun s£ð- an koma út á laugardögum þaðan í frá. Með þessu fjölgar útgáfudög- um Fréttablaðsins úr um 250 á ári í um 300 útgáfudaga. „Eftir frábærar viðtökur les- enda höfum við á Fréttablaðinu sett okkur það markmið að upp- fylla þörf sem flestra heimila fyr- ir dagblaðalestur. Ég trúi að með útgáfu Fréttablaðsins sex daga vikunnar takist okkur þetta. Þeir sem vilja lesa meira en Frétta- blaðið munu þá kaupa önnur blöð í lausasölu eða áskrift. En ég held að það verði nokkur minnihluti heimila þegar fi'am líða stundir," segir Gunnar Smári Egilsson rit- stjóri. Fréttablaðið á laugardögum verður borið í hús á höfuðborgai’- svæðinu íbúum að kostnaðar- lausu eins og á virkum dögum. Þar með fá íbúar á svæðinu gef- ins dagblað sex daga vikunnar. Áskrift að Morgunblaðinu kostar í dag 2.100 krónur eða 25.200 krónur á ári. Áskrift að DV kost- ar 2.200 krónur eða 26.400 krón- ur á ári. Frí áskrift að Fréttablað- inu er því góð búbót fyrir rekstur heimila á höfuðborgarsvæðnu. i. FRÉTTABLAÐIÐ Nú eru útgáfudagarnír orðnir sex. „Fréttablaðið á laugardög- um verður með svipuðu sniði og á virkum dögum. Við mun- um leggja áherslu á fréttir dagsins," segir Gunnar Smári. „Fréttablaðið og Morgunblaðið skipta nú nokkuð bróðurlega á milli sín megninu af almennum auglýsingum á virkum dögum. Um 35 prósent auglýsinga í dagblöðum birtast hins vegar um helgar. Ef Fréttablaðið nær viðlíka stöðu um helgar og á virkum dögum má reikna með að í framtíðinni verði helgarút- gáfan ríflega þriðjungur af út- gáfu Fréttablaðsins." ■ Allir vildu vísa Kára frá dómi Væntanlegir nágrannar Kára Stefánssonar kröfðust þess í gær að máli Kára gegn þeim yrði vísað frá dómi. Kári krefst þess að fá byggingarleyfi sitt á Skeljatanga 9 aftur í gildi. Reykjavíkurborg og úrskurðarnefndin, sem ógilti byggingarleyfið sem borgin veitti, höfnuðu aðild að málinu. Dómsmál Tveir væntanlegir ná- grannar Kára Stefánssonar í Skerjafirði kröfðust þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að máli Kára á hendur þeim yrði vís- að frá vegna vanreifunar. Lögmaður Kára sagði fullyrð- ingu um vanreifun ekki eiga við nokkur rök að styðjast. Kröfur Kára væru alveg skýrar. Hann krefst þess að ógilding úrskurðar- nefndar skipulags- og byggingar- mála á byggingarleyfi hans á Skeljatanga 9 verði ógilt með dómi. Einnig að viðurkennd verði ákvörðun borgarráðs um veitingu leyfisins. Lögmenn Reykjavíkurborgar og úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála kröfðust þess hvor um sig að stefnum gegn þessum aðil- um yrði vísað frá dómi. Málið varða aðeins Kára og þá sem kærðu bygg- ingarleyfið. Hjalti Stein- þórsson, lögmaður úrskurðarnefnd- arinnar, sagði nefndina enga lög- varða hagsmuni eiga í málinu. Eng- ar réttarfarslega nauðsyn bæri til að stefna henni fyrir KÁRI STEFÁNSSON Forstjóri Islenskrar erfðagreiningar hefur leitað lið- sinnis dómstóla til að fá að reisa 536 fermetra ein- býlishús I Skerja- firði. dóm. Hún yrði bundin af niðurstöðu héraðs- dóms. Hjalti vísaði á bug fullyrð- SKELJATANGI 9 Framkvæmdir hafa legið niðri á lóð Kára Stefánssonar eftir að Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingarmála stöðvaði þær í fyrrasumar. ingu lögmanns Kára í stefnunni um að úrskurðarnefndin hafi ver- ið vanhæf í málinu eftir að hún hafi fellt bráðabirgðaúrskurð um stöðvun framkvæmda á lóð Kára. Engar athugasemdir hafi borist um þetta atriði áður en nefndin felldi endanlegan úrskurð. Hjörleifur Kvaran borgarlög- maður sagði að eftir að Kári féll á dögunum frá kröfu á hendur borg- inni um greiðslu málskostnaður ætti borgin enga hagsmuni í mál- inu. Að auki sagði hann borgina ekki getað gripið til varna í mál- inu: „Reykjavíkurborg á engar varnir til á málinu enda sammála sjónarmiðum stefnanda," sagði Hjörleifur. Ólafur Jóhannes Einarsson, lögmaður Kára, sagði dómafor- dæmi bæði óskýr og misvísandi varðandi aðild stjórnvalds í sam- bærilegum málum. Það væri því nauðsynlegt að stefna borginni, þó það væri „ankannanlegt" að stefna aðila sem væri sammála stefnandanum. Lögmaðurinn sagðist telja að ef stefna bæri ein- hverju stjórnvaldi í málinu þá væri það úrskurðarnefndin. Úrskurður um frávísunarkröf- urnar liggur fyrir á mánudag. gar@frettabladid.is Stjórnarsamstarfið: Komumst vonandi yfir hjallann samstarf „Ég tel að þessi ummæli falli í hita bardagans hvað Björn Bjarnason snertir. Hann er í fram- boði í Reykjavík. Þá falla ýmis orð sem eru ekki alltaf sanngjörn," segir Jón Krist- jánsson, heilbrigð- isráðherra, um harða gagnrýni Sjálfstæðismanna á viljayfirlýsingu hans um uppbygg- ingu hjúkrunar- jón krist- rÝma fyrir aldraða jánsson í Reykjavík. Staddur í Brat- Viljayfirlýsing- islava á fundi Evr- una segir Jón nið- ópuráðsins um urstöðu margra tryggingamál. mánaða vinnu. „Hún var með fyrirvörum um fjár- mögnun. Ég tel að hún hafi ekki komið aftan að neinum. Ég gerði mér grein fyrir að það þyrfti að vinna þau mál ríkismegin. Hins vegar er yfirlýsing um að Reykja- víkurborg hækki sitt lögbundna framlag úr 15% í 30%.“ Jón vonast til áreksturinn verði ekki til að setja málefni aldraðra í hnút. „Ég vona að við komumst yfir þennan hjalla í samstarfinu," sagði Jón aðspurður um hvort viljayfirlýsingin og viðbrögð Sjálf- stæðismanna valdi ekki vandræð- um í stjórnarsamstarfinu. ■ KÖNNUN R-listinn bætir við sig fylgi í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir Ríkisútvarpið. Ef kosið væri nú fengi hann 52,4%. D- listi Sjálfstæðisflokks fengi 41,8%. R-listinn þarf einungis að bæta við sig einu prósentustigi til að fella 7. mann Sjálfstæðis- flokksins. Frjálslyndir og óháðir fengju 3,7% atkvæða, Vinstri hægri snú, Höfuðborgarsamtök- in og húmanistar mælast með um 1% fylgi. Atkvæði þitt skiptir máli fyrir framtíð borgarinnar! WWW.XR.IS •XR@XR.IS REYKJAVÍKURLISTINN Utankjörfundar atkvæða- greiðsla fer fram í Fjölbrautaskólanum í Ármúlakl. 10-22 alladaga. Önnur atkvæðagreiðsla á ísraelska þinginu í dag: Stjórn Sharons stendur tæpt ísrael í dag gengur ísraelska þingið aftur til atkvæða um neyð- arfjárlög ríkisstjórnarinnar, sem felld voru á mánudaginn. Ariel Sharon, forsætisráðherra ísraels, rak fulltrúa tveggja stjórnmála- flokka rétttrúaðra gyðinga úr rík- isstjórninni eftir að þeir greiddu atkvæði gegn frumvarpinu. Án tilstyrks flokkanna tveggja, Shas og UTJ, hefur stjórn Sharons ekki öruggan meirihluta á þinginu. Sharon sagðist í gær ekki til viðræðu um að taka flokkana aftur í stjórnina fyrr en eftir að greidd hefðu verið atkvæði um frumvarpið á ný. Hann hafi heldur ekki í hyggju að semja um breyt- ingar á frumvarpinu til þess að tryggja sér samþykki flokkanna. I frumvarpinu eru tillögur um verulegan samdrátt á ríkisút- gjöldum til þess að standa straum af auknum hernaði ísraels gegn endurkosningu hraðað Nefndarmenn á ísraelska þinginu sam- þykktu í gær að hraða endurkosningu um aðhaldsfrumvarp stjórnarinnar. Palestínumönnum. JYúarflokk- arnir tveir sögðust vera á móti þessum samdrætti vegna þess að hann bitni á þeim sem minna mega sín. ■ ÍSRAELSKA ÞINGIÐ: Flokkur Þingmenn Likud 19 Verkamarmaflokkurinn 23 j Shas 17 UTJ 5 I Aðrir stjórnarflokkar 21 | Stjórnarandstaðan 35 |

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.