Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 22.05.2002, Blaðsíða 19
0 Fjölbrautaskólinn við Ármúla Innritun fyrir haustönn 2002 Innritun fyrir haustönn 2002 stendur nú yfir. Tekið verður við umsóknum til 4. júní, en nýnemar úr 10. bekk verða innritaðir 10. og 11. júní. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans sem er opin frá 8.00-15.00 eða á heimasíðu hans, www.fa.is . Eftirtaldar námsbrautir eru í boði: Bóknámsbrautir til stúdentsprófs eru málabraut, félagsfræði- braut og náttúrufræðibraut. Starfsmenntabrautir eru eftirfarandi: Upplýsinga- og fjölmiðlabraut er tveggja ára grunnnám, en síð- an býður skólinn upp á sérnám i veftækni. Nemendur geta byggt ofan á brautina og lokið stúdentsprófi. Skrifstofu- og tölvubraut er tveggja ára braut sem hægt er að framlengja til stúdentsprófs af viðskipta- og tölvubraut og skólinn býður einnig upp á sérstakt íþróttafræðikjörsvið til und- irbúnings íþróttakennaranámi eða annars náms í íþróttafræð- um. [ Heilþrigðisskólanum eru námsbrautir fyrir hjúkrunar- og mót- tökuritara, lyfjatækna, læknaritara, nuddara, sjúkraliða og tanntækna. Auk þess þýður skólinn upp á almenna námsbraut fyrir þá sem eru óráðnir eða hafa misstigið sig á grunnskólaþrófi. Nánari upþlýsingar um allar þessar þrautir eru á heimasíðu skólans, www.fa.is. Þar er einnig kynning á skólastarfinu, myndir úr félagslífi o.fl. Skólinn býður nemendum upp á sérstök kjör á fartölvum í samvinnu við Nýherja og upplýsingatækni er hagnýtt við kennslu allra greina. í Fjölbrautaskólanum við Ármúla eru rúmlega 800 nemendur í fjölbreyttu námi. Starfsmenn eru 85. í skólanum ríkir heimilis- legur agi og reynt er að koma til móts við þarfir hvers og eins um leið og gerðar eru kröfur um farsæla vinnu nemenda og starfsmanna. Kjörorð skólans eru faglegt nám til framtíðar og starfsréttindi og stúdentsþróf. Kennarar nota fartölvu við vinnu sína og nemendum með fartölvu gefst kostur á að vera í þráð- lausu sambandi við staðarnet skólans og internet. Ár hvert eru brautskráðir um 200 nemendur, ýmist með stúdentspróf eða starfsréttindi eða hvort tveggja. Skólameistari. UTBOÐ F.h. Gatnamálastofu - Fráveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í byggingu skólpdælu- stöðvar í Gufunesi í Reykjavík. Verkið nefnist: Dælustöð í Gufunesi. Verkið felst í að grafa og sprengja fyrir dælustöð, steypa upp dælubrunn, stjórnhús og þrýstiturn og ganga að fullu frá mannvirkjum að utan og innan, smíði stálhluta, upþsetningu á dælum og lagningu neyðarútrásar ásamt tengingu þrýstilagnar út fyrir varnargarð. Lokið verður við að ganga frá varnargarði með stálþéttiþili og grjótvörn áður en fram- kvæmdir við þennan áfanga hefjast. Helstu magntölur eru: Klöþþ Fyllingar Mótasmíði Bendistál Steinsteyþa Stálsmíði, ryðfritt stál Stálsmíði, svart stál 1.250 m3 12.000 m3 3.400 m2 85 tonn 950 m3 17 tonn 9 tonn Verkinu skal að fullu lokið 1. október 2003. Útboðsgögn fást á skrifstofu okkar frá og með 22. maí 2002 gegn kr. 10.000 skilatryggingu. Opnun tilboða: 19. júní kl 11.00, á sama stað. ______________________________________GAT 55/2 INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3, 101 Reykjavík, sími 570 5800, fax 562 2616 www.reykjavik.is/innkaupastofnun Netfang: isr@rhus.rvk.is Vantar blaðbera í hverfi: 104,105,112 og 200 Áhugasamir hafi samband við dreifingu í síma 511-7530 eða tölvupóstfang SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219 Auglýsing um deiliskipulag í Reykjavík í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á deiliskipulagsáætlunum á eftir- töldum svæðum í Reykjavík: Grafarholt svæði 3, Grænlandsleið 29-49 og 22-40 og stígakerfi við Græn- landsleið. Tillagan tekur einkum til húsanna nr. 29-49 og 22-40 við Grænlandsleið í Grafarholti auk þess sem gert er ráð fyrir nokkrum breytingu á stígakerfi við og í kringum húsin við Grænlandsleið. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir nokkrum lagfæringum á stígakerfi eins og áður greinir. Megin breyt- ingin felst þó í því að húsunum nr. 22-32 og 29-39, sem eru raðhús skv. núgildandi skipulagi, breytt í tvíbýlishús og verður fjöldi húsa 16 í stað 12. Þá er húsunum nr. 34-40 og 41-49, sem eru einbýlishús skv. núgildandi skipulagi, breytt í tvíbýlishús. Krafa er gerð um bílgeymslur neðanjarðar fyrir hluta húsanna auk þess sem settar eru kvaðir um eignarhald þeirra. Óverulegar breytingar eru og gerðar á lóðarmörkum þyrpinganna. Elliðaárdalur, rafstöðvarsvæði (nágrenni rafstöðvarinnar í Elliðaárdal). Tillagan tekur til svokallaðs rafstöðvarsvæðis í Elliðaárdal eða svæðisins í kringum Ártún u.þ.b. 16 ha að stærð. Svæðið afmarkast af hitaveitustokk til norðurs, lóðum við Silungakvísl, Sveinbjarnarlundi, götu vestan við íbúðarhúsið nr. 33 við Rafveituveg og útivistarsvæðinu á lóð OR við rafstöðina til austurs og austari kvísl Elliðaánna til suðurs og vesturs. Um er að ræða tillögu að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals. Markmið hennar er að heimilt verði að byggja á hentugum stað í dalnum byggingar fyrir þjónustu og fræðslu fyrir notendur útivistarsvæðisins og tryggja ráðstöfun lands fyrir ýmiskonar útivistariðkun. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir byggingum sem ætlaðar eru fyrir orkuminjasafn, fornbílasafn, fræðslustofu fyrir Elliða- ársvæðið og aðstöðu fyrir stangaveiðifélag og veiðimenn. Þá gerir tillagan ráð fyrir núverandi skíðasvæði ásamt tilheyrandi mannvirkjum, púttvelli og aðstöðu fyrir kastæfingar stanga- veiðimanna svo eitthvað sé nefnt. Um stærðir bygginga, lóðir, bílastæði, götu- og stígakerfi o.fl. vísast til tillögunnar sjálfrar. Elliðaárdalur, settjarnir við Árbæjarsafn og ofan við Árbæjarstíflu og tengdar framkv. Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að gera settjörn við Árbæjarsafn næst Höfðabakka, syðst á athafnasvæði safnsins, og 4 settjarnir ofan við Árbæjarstíflu. Fyrsta tjörnin ofan stíflu er staðsett suður af Fella og Hólakirkju í svokallaðri Grænugróf. Önnur tjörnin er austan við syðstu húsin í Hólabergi, við Lágaberg, rétt ofan við "Efri-Sporðhyl". Þriðja tjörnin er staðsett við ána austan Trönuhóla við svokölluð "Þrengsli". Fjórða tjörnin ofan stíflu er staðsett í Víðidal norðan við dælustöð Orkuveitu Reykjavíkur, austan árinnar. Markmið tillögunnar er m.a. að minnka mengunarálag frá ofanvatnskerfum í árnar. Mesta dýpi í tjörnunum miðað við stöðugt vatnsborð verður 1,2 m en næst bakka verður 1m breitt svæði þar sem dýpt verður ekki meiri en 0,20 m. Tjarnirnar verða afmarkaðar og eftir atvikum girtar þar sem ástæða þykir til. Tillögurnar liggja frammi í sal skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 10.00 - 16.00 frá 22. maí 2002 - til 3. júlí 2002. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi síðar en 3. júlí 2002. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 22. maí 2002. Skipulagsfulltrúi Kennarar. Varmárskóli í Mosfellsbæ auglýsir. Við óskum að ráða réttindakennara í 2-3 stöður almennra bekkjarkennara á yngsta- og miðstigi skólaárið 2002-2003. Hafið samband og kynnið ykkur skipuiag skólans og þær starfsaðstæður sem í boði eru. Upplýsingar veita: Viktor A. Guðlaugsson skólastjóri í síma 5250700 og 8950701, Þórhildur Elfarsdóttir aðstoðarskólastjóri, Guðrún Markúsdótt- ir stigstjóri og Arna B. Arnardóttir stigstjóri í síma 5250700. Vantar þig vinnu? • Spennandi verkefni framundan hjá þjónustuveri Skúlasonar fyrir I rétt fólk. Sérstaklega góð vinnuaðstaða. I Sölumaður / þjónustufulltrúi : Þú ert a.m.k. 20 ára, sjálfstæöur en getur samt unnið I góðum ; hóp, metnaðarfullur og með reynslu af sölustörfum. Kostur ef þú I hefur góða tölvukunnáttu og enskukunnáttu. Dag- og kvöldverkefni. Vaktstjóri á kvöldvaktir : Þú ert a.m.k. 26 ára, með reynslu af mannastjórnun og með ■ leiðtogahæfileika. Þú átt gott með að skipuleggja þinn tlma og i annarra og ert fyrirmynd i mannlegum samskiptum og getur ávallt j náð því besta fram I fólki. Þú ert með góða tölvukunnáttu og veist ; hvað það þýðir að bera ábyrgð. ; Hægt er að sækja um á heimasíöu Skúlason, eða leggja inn j umsókn I síma 575 1500. Öllum umsóknum verður svarað. SKULRSDN W& www.skulason.is Ertu góður sölumaður - viltu breyta til? ÍSVÁ hf. auglýsir eftir fólki í krefjandi en jafnframt gefandi starf við tryggingaráðgjöf. Skilyrði fyrir fastráðningu er að umsækj- endur sæki námskeið hjá ÍSVÁ hf. sem mun standa í 3 mánuði, bæði bóklega og verklega þjálfun. Námskeiðið mun hefjast þ. 27. maí nk. Ef þú ert sjálfstæð persóna og átt gott með mannleg sam- skipti, ert þú efni í góðan ráðgjafa. Námskeiðið er endurgjaldslaust en þátttakendur hafa góða möguleika á að afla sér tekna með ráðgjöf undir handleiðslu reynds ráðgjafa. Meðal efnis: Vátryggingamiðlun - Réttindi og skyldur - Vöruþekking - Þarfagreining - Undirbúningurfunda - Sölutækni - Tölvukerfi - Tímastjórnun - Símasala. Áhugasamir hafi samband við Guðmund Magnússon eða Hákon Hákonarson á skrifstofutíma í síma 590 0000. Aðalfundur SÁÁ Aðalfundur SÁÁ fyrir árið 2001 verður haldinn fimmtudaginn 23. maí nk ki. 17.00, í Síðumúla 3-5. Ðagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.