Fréttablaðið - 21.06.2002, Blaðsíða 4
4
FRETTABLAÐIÐ
21. júní 2002 FÖSTUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
Nær helmingur íbúða í Reykjavík er þriggja
og fjögurra herbergja íbúðir. Athygli vekur
að tíunda hver íbúð er með sjö eða fleiri
Herbergi eitt herbergi. Hlutfall 2,1%
tvö 19,8%
1
þrjú 25,1%
fjögur 21,7%
fimm 13,1%
V 1
sex 7,8%
i
sjö eða fleiri 10,4% ilii
Heimild: Húsnæðismál i Reykjavik,
skýrsla Borgarfræðaseturs.
Vegamál fyrir landsmót
hestamanna:
Vegir breikk-
aðir og bættir
LANDSMÓT Undirbúningur fyrir
landsmót hestamanna, sem haldið
verður á Vindheimamelum í
Skagafirði dagana 2.-7. júlí, er í
fullum gangi. Búið er að bæta allt
aðgengi að svæðinu. Vegir hafa
verið breikkaðir og lagaðir, þá
hefur afleggjarinn að austan ver-
ið stækkaður og breikkaður. Hægt
er að komast inn á svæðið að aust-
an og vestan. Sjö tonna ásþungi er
á brúm, sem liggja vestan og vill
mótstjórn beina stærri bílum að
koma austan að. Frekari upplýs-
ingar um mótið má finna á heim-
síðu mótsins á www.skagafjord-
ur.com/landsmot. ■
-—♦—
Læknanemar láta til
sín taka:
Styðja boð-
aðar aðgerð-
ir unglækna
kiaradeila Læknanemar sem
starfa sem unglæknar á sjúkra-
húsunum styðja boðaðar verk-
fallsaðgerðir sem Félag ungra
lækna hefur boðað til og munu
einnig leggja niður störf á meðan
á boðuðu verkfalli unglækna
stendur. Um er að ræða verkfall
um helgina, í júlí og síðan alls-
herjarverkfall á haustmánuðum.
Á fjórða tug læknanema starfa
sem unglæknar á sjúkrahúsunum.
Læknanemarnir segjast í til-
kynningu ekki ætla að „vinna
gegn félagi ungra lækna í kjara-
baráttu þeirra með því að gerast
verkfallsbrjótar." ■
—«—
Samtök atvinnulífsins
ESB um-
ræðan á
villigötum
esb Þorsteinn Þorgeirsson, hag-
fræðingur Samtaka iðnaðarins,
segir í nýjum leiðara á heimasíðu
samtakanna að með því að leggja
ofuráherslu á aðildargjöld íslands
til ESB hafi glatast sýn á heildará-
vinninginn af hugsanlegri aðild ís-
lendinga, en samkvæmt nýlegri
skýrslu SI bendir til að hann gæti
orðið verulegur. Þannig gera út-
reikningar SI til dæmis ráð fyrir að
kostnaður í hagkerfinu geti lækkað
um allt að 44 milljarða við inngöngu
í ESB og upptöku evrunnar. ■
lögreglufréttir!
Nokkuð var um árekstra í
Reykjavík í gær. Þá var til-
kynnt um hóp krakka, sem voru
að skemma golfflötina við Korp-
úlfsstaði. Þegar lögreglan kom á
staðinn kom í ljós að þetta voru
menn að vinna við völlinn.
Þjóðarátak gegn umferðarslysum:
Biskup með fyrsta umferðarheitið
þjóðarátak Undanfarin ár hafa að
meðaltali 24 einstaklingar látist í
umferðarslysum á ári hverju.
Árið 2000 var sérlega slæmt en
þá fór fjöldi látinna í upp í 32. Á
þessu ári hafa 17 einstaklingar
þegar látist. Þessar upplýsingar
fengust á blaðamannafundi sem
Vátryggingafélag íslands hélt í
dag af tilefni þjóðarátaks gegn
umferðarslysum. Hrafnhildur
Thoroddsen nýstúdent hrinti
átakinu úr vör og opnaði af því
tilefni bílasýningu þar sem sýnd-
ir voru illa farnir bílar eftir ný-
leg umferðarslys. Hrafnhildur
slasaðist illa í bílslysi þegar hún
var sextán ára og er mænusködd-
uð.
í þjóðarátakinu er skorað á al-
menning að virða tíu umferðar-
heit og mun Karl Sigurbjörnsson
biskup ríða á vaðið með fyrsta
heitinu. Öll eru umferðarheitin
vel valin og er ætlað að stuðla að
bættu umferðaröryggi. Á næstu
tíu vikum verða umferðarheitun-
um gerð sérstök skil í fjölmiðlum
og kom fram á fundinum að með
þessu átaki muni VÍS leggja sitt
að mörkum til að fækka slysum í
umferðinni.
Samhliða var opnuð bílasýn-
ing illa farinna ökutækja sem
RAGNHEIÐUR davíðsdóttir for-
VARNARFULLTRÚI OG HRAFNHILDUR
THORODDSEN NÝSTÚDENT
VÍS hrinti I gær af stað þjóðarátaki gegn
umferðaslysum en á þessu ári hafa þegar
látist 17 einstaklingar í umferðarslysum.
stendur yfir fram á laugardag.
Með því vill VÍS vekja athygli á
hve bílinn getur verið mönnum
hættulegur sé ekki fyllsta að-
gæsla sýnd. Fram kom að á þessu
ári hefur þeim sem slasast í um-
ferðinni fjölgað um 12% en þá er
stuðst við tölur um tilkynnt slys
til VÍS eingöngu.
Á fundinum kom fram að Olíu-
félagið Esso er samstarfsaðili og
á bensínstöðvum félagsins verð-
ur hægt að fá límmiða sem gefur
til kynna þátttöku í þjóðarátak-
inu. Miðinn gildir einnig í happ-
drætti sem dregið verður úr
vikulega. ■
Lifi ekki lengur í þögninni
Sigríður Gunnarsdóttir býr við stöðugt óöryggi. Hennar líf snýst um að útvega sér og börnum
sínum mat á borðið. I dag stígur hún fram í þeirri von að almenningur og ráðamenn
viðurkenni að fátækt á Islandi sé staðreynd.
fátækt Tölur Félagsþjónustunn-
ar og aukin aðsókn aðstoðar til
Mæðrastyrksnefndar hafa bent
til að fátækt sé meiri nú en áður.
Það sem hefur vantað upp á um-
ræðuna er rödd þeirra sem lifa
og hrærast í örbirgðinni.
Sigríður Gunnarsdóttir ríður
á vaðið. Hún er 34 ára gömul,
þriggja barna móðir og 75% ör-
yrki. í dag er hún reið og sár.
„Það þýðir ekki lengur að lifa í
þögninni og fela sig á bak við
skömmina. Skömmina sem aðrir
hafa á manni. Fólk verður að átta
sig á að það er alveg sama hvar í
þjóðfélagsstiganum þú ert stadd-
ur. Þú veist aldrei hvað bíður þín
á morgun. Það ákveður enginn að
verða öryrki, það ákveður eng-
inn þetta hlutskipti."
Sigríður lenti í slysi þegar hún
var unglingur. Lengi vel barðist
hún á móti að fara á örorkubæt-
ur. Varð hún að lokum að játa sig
sigraða þegar hún var farin að
ganga fyrir verkjalyfjum. Við
tók erfitt líf og vegna röð mann-
legra mistaka og óhappa stóð
hún frammi fyrir því í október á
síðasta ári að leita á náðir Fé-
lagsþjónustunnar. Það sem af er
þessu ári hefur Sigríður þurft að
ganga í gegnum þrjá erfiða móð-
urlífsuppskurði. Það hefur orðið
til þess að hún hefur í engu getað
staðið við sínar skuldbindingar. í
dag skuldar hún tveggja mánaða
húsaleigu og stefnir í þann þrið-
ja. Framtíð hennar er óráðin og á
hún yfir höfði sér að missa íbúð-
ina.
„Ég er ráðalaus. Ég hef að
undanförnu lifað þannig að
Mæðrastyrksnefnd hefur leyft
mér að sækja til þeirra aðstoð
vikulega og Hjálparstofnun
kirkjunnar hefur einnig verið
mér innan handar. Án þeirra að-
stoðar hefði ég soltið. Ég reyni
að eyða aldrei meira en 200 krón-
um í mat á dag og oft hef ég
þurft að láta börnin ganga fyrir.
SIGRÍÐUR GUNNARSDÓTTIR
Sigríður talar um viðhorf fólks. „Ef ég hef borið mig vel og verið snyrtileg til fara hef ég fengið að heyra það, hvað þarf svona kona að-
stoð að halda. Viðhorfið breytist þegar fötin fara að slitna. Þá mæti ég lítilsvirðingu. Hvað sem ég geri er orrusta fyrirfram töpuð."
Ég lifi reglusömu lífi og spara
við mig á hvern þann hátt sem ég
get. Fötin mín og barna minna
eru öll fengin á fatamarkaði. Ég
taldi mig vera komna í öruggt
skjól þegar Félagsþjónustan út-
vegaði mér húsnæði og ég sagði
það börnum mínum. I ljósi að-
stæðna hefur öryggisleysið verið
að hellast yfir þau á ný. Það er
sárt að horfa upp á þau. Sjálf hef
ég verið komin að því að gefast
upp. Ég er búin að fá nóg af því
að horfa upp á fólk stinga höfð-
inu í sandinn. Ég er orðin þreytt
að fara með veggjum. Með því að
koma fram er ég ekki að biðja
um vorkunn heldur viðurkenn-
ingu á þeirri staðreynd að fátækt
sé til staðar. Það er kominn tími
til að almenningur og ráðamenn
átti sig á þessu vandamáli og
finni úrlausnir."
kolbrun@frettabladid.is
Tveir piltar í fangelsi fyrir að nauðga sextán ára gesti sínum:
Tvö ár í fangelsi fyrir
svívirðilega nauðgun
dómsmál Tveir menn hafa verið
dæmdir í annars vegar tveggja ára
og hins vegar 22 mánaða fangelsi
fyrir að hafa nauðgað sextán ára
stúlku sumarið 2000. Þeir voru þá
sautján ára gamlir.
Stúlkan hafði ásamt annarri
stúlku þegið heimboð til annars
piltanna síðla nætur. Eftir að vin-
kona hennar yfirgaf samkvæmið í
fússi nauðguðu þeir stúlkunni.
Dómari við Héraðsdóm Reykja-
ness segir að háttsemi piltanna hafi
verið svívirðileg og einkar niður-
lægjandi, sérstaklega í ljósi þess að
ákærðu þröngvuðu stúlkunni á
tímabili til kynferðismaka í leg-
göng og endaþarm á sama tíma.
Stúlkan, sem þekkti piltanna ekki,
hafi verið grandalaus þegar hún
þáði heimboðið. „Ber framferði
þeirra vott um miskunnarleysi og
fullkomið virðingarleysi við kyn-
frelsi hennar. Þeir eiga sér engar
málsbætur. Engu að síður verður
hér einnig að líta til aldurs ákærðu,
sem voru nýlega orðnir 17 ára er
þeir frömdu brot sín,“ segir í dóm-
mum.
Við ákvörðun refsingar mann-
anna var einnig litið til annarra af-
brota þeirra. Annar þeirra var t.d.
dæmdur í mars sl. í fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir
líkamsárás og hinn í fyrra í 30 daga
fangelsi fyrir þjófnað. ■
HÉRAÐSDÓMUR REYKJANESS
„Ber framferði þeirra vott um misk-
kunnarleysi og fullkomið virðingar-
leysi við kynfrelsi hennar. Þeir eiga
sér engar málsbætur," segir I dómi
yfir tveimur nauðgurum.