Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.06.2002, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 21.06.2002, Qupperneq 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 21. júní 2002 FÖSTUPflCUR Mannanafnanefnd: Tamar í lagi en Nora ekki NÖFN Mannanafnanefnd varð við þremur beiðnum um að taka ný kvenmannsnöfn á skrá sína á síð- asta fundi nefndarinnar. Foreldr- ar stúlkna geta nú nefnt þær Ingisól, Tamar og Heddu þar sem nöfnin taka öll eignarfallsend- ingu. Beiðni um nafnið Nora var hafnað þar sem ritháttur er ekki í samræmi við íslenska tungu. Tvær beiðnir bárust um breyttan rithátt nafna. Samþykkt var að foreldrar drengs sem heitir William mættu breyta nafninu í Vilhjálm. Beiðni um að rita Sævar sem Sævarr var hafn- að. ■ Leiðtogafundur Evrópusambandsins í Sevilla: VÍSITÖLUR Innflytjendur í brennidepli EVRÓPUSflMBflNDiÐ Ágreiningur er meðal aðildarríkja Evrópusam- bandsins um aðferðir, sem beita skal til að hindra útlendinga í að fara með ólöglegum hætti yfir landamæri. Málefni ólöglegra innflytjenda verða í brennidepli leiðtogafundar Evrópusambandsins, sem haldinn verður í Sevilla á Spáni í dag og á morgun. Leiðtogarnir ætla að reyna að koma sér saman um ráð- stafanir til þess að draga úr að- streymi ólöglegra innflytjenda. Nú streymir um það bil hálf milljón ólöglegra innflytjenda til Evrópu- sambandsríkjanna á ári hverju. Ágreiningur kom upp nú í vik- unni milli aðildarríkja sambands- ins um það, hvort hóta eigi þeim ríkjum refsiaðgerðum sem ekki sýna Evrópusambandinu sam- vinnu við að stöðva aðstreymi ólöglegra innflytjenda. Meirihluti aðildarríkjanna hefur tekið undir tillögu þess efnis frá Spáni, en full- trúar Frakklands, Lúxemborgar og Svíþjóðar hafa lýst andstöðu sinni. Mannréttindasamtökin Amn- esty International hafa gagnrýnt áform um að takmarka aðgang út- lendinga að Evrópusambandinu og segja þau taka mið af málflutningi hægri þjóðernissinna. ■ AZNAR OG PRODI Gestgjafi fundarins í Sevilla er Jose Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar. Með hon- um á myndinni, hægra meginn, er Roma- no Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins. Launavísitalán hækkaði um 0,2% í maí. Vísitalan miðað við meðallaun í maí 2002 er 225,8 stig og hækkar um 0,2% frá fyrra mánuði. Samsvarandi launavísitala sem gildir við út- reikning greiðslumarks fast- eignaveðlána, er 4.938 stig í júlí 2002. — Byggingarvísitalan hækkaði um 0,1% í maí. Hagstofan hefur reiknað út vísitölu bygg- ingarkostnaðar eftir verðlagi um miðjan júní. Vísitalan er nú 277,6 stig, hækkaði um 0,1% frá fyrra mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala byggingarkostnað- ar hækkað um 7,1% II Geymið auglýsinguna. H.J. Varahlutir ehf. Krókhálsi 10, 110 Reykjavík. Hef opnað varahlutaverslun fyrir Lada bifreiðar. Einnig getum við útvegað varahluti í Ssang yong Family, Eigum eitthvað til á lager. Ný sumardekk 165/70 x R 13 - lágt verð, einnig heilsársd. Ál og stálfelgur 13“16“ Dráttarbeisli fyrir Lada bíla. Vörugámar úr járni, á hjólum, stærð 1,60 x 0,64 x h 1,70 Sími 5681050 fax 5681051. Netfang, hjvarahl@li.is Barmmerhi • ! I í ættarmót Hægt er að velja á milli þess að hafa hangandi klemmu eða klemmu og nælu á baki bammerkis. 'ámm l\*r/ tfÍÍRÍ 1 Aýf, i*• o# wtm-m Prentum á barmmerkin, ef okkur eru send nöfnin í Excel skjali . Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir. Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið. OPNUNARTILBOÐ HJA 0 iJk&u B O D Y á A C T f O N Lttlefhi af opmm’mdunatimai: Bjóðum við 30% afslátt af uaditfataaöi, sportfatnaði ogflL. Erum að Hæðarsmáraó, Sími 588-0100 Að ofanverðuvið Smáralind Æfa viðbrögð við eldgosi í Eyjum Vestmannaeyjabær verður undirlagður þegar almannvarnaræfingin Samvörður 2002 verður haldin þar. Eitt þúsund manns taka þátt í að setja á svið björgun, þegar eldgos verður í eyju. Ekki er búist við því að æfingin raski mótshaldi Shell-mótsins í knattspyrnu. TF-LfF A ÆFINGU ( nógu verður að snúast fyrir þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir landsins þegar almannavarnaræfingin Samvörður 2002 verður haldin dagana 24. - 30. júní. almannavarnir Almanna- varnaræfingin Samvörður 2002 fer fram á Islandi dagana 24.-30. júní. Þetta er í þriðja sinn, sem Samvörður er haldinn á íslandi. Markmiðið með æfingunni er að samhæfa aðgerðir herja og borg- aralegra stofnana ríkja Atlants- hafsbandalagsins og samstarfs- ríkja þess á sviði friðargæslu og björgunarstarfa. Aðalæfingin nú lýtur að við- brögðum við náttúruhamförum. Vegna æfingarinnar koma um 500 erlendir þátttakendur til viðþótar við annan eins fjölda íslendinga. Framkvæmdarstjóri æfingarinnar fyrir íslands hönd er Hafsteinn Hafsteinsson forstjóri Landhelgis- gæslunnar en fyrir NATO er það yfirmaður varnarliðsins í Kefla- vík. Vettvangsæfingin, sem er aðal- æfingin, fer fram 28.-30. júní í Vestmannaeyjum. Verkefnið snýst um að bjarga fólki frá eyju þar sem eldgos og jarðskjálftar ógna lífi þess. Þá reynir á þjörgunar- sveitarmenn, sem þurfa að bregð- ast við áföllum eins og skemmdum byggingum, lokun hafnar og flug- vallar vegna hraunflæðis, ösku- falls og klettahruns. Þá þarf að slökkva elda, bjarga fólki úr skemmdum húsum og hlúa að slös- uðum, sjúkum og öðru flóttafólki áður en það er flutt í öruggt skjól í Þorlákshöfn. Annar hluti æfingarinnar er fram úti á landi 25.-27. júní. Sér- fræðingar frá Slysavarnarfélag- inu Landsbjörgu munu annast þá framkvæmd. Samtímis þeirri æf- ingu fer fram stjórnstöðvaræfing en hún felst í samhæfingu stjórn- stöðvar Samvarðar við aðrar stjórnstöðvar, sem að æfingunni koma. Á sama tíma Samvörður fer fram er í gangi hið árlega Shell- mót í knattspyrnu fyrir drengi á aldrinum 10-11 ára. Aðstandendur mótsins og forsvarsmenn Sam- varðar hafa unnið saman að því að skipuleggja Samvörð þannig að þátttakendur á pollamótinu verði fyrir sem minnstu ónæði. Þannig hefur allt flug verið bannað yfir íþróttasvæðinu meðan á keppni stendur og skipulagðar hafa verið sérstakar akstursleiðir fyrir þátt- takendur Samvarðar. ■ stefan@frettabladid.is Romano Prodi: Vill tvískipta framkvæmdastjórn evrópusaivibandið Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins, vill breyta fyr- irkomulagi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Samkvæmt hugmyndum Prodis eiga nokkrir aðstoðarforsetar að mynda eins konar kjarnastjórn, sem heyrir aðeins undir forseta fram- kvæmdastjórnarinnar. Aðildarríki sambandsins eiga ekki að hafa nein áhrif á það, hverjir sitja í þessum kjarna. For- seti framkvæmdastjórnarinnar á að velja sér aðstoðarforsetana sjálfur. Prodi telur nauðsynlegt að gera þessar breytingar, sem og fleiri, vegna fjölgunar aðildar- ríkjanna, sem nú er í bígerð. Jafn- framt leggur hann til að hvert að- ildarríki fái aðeins einn fram- kvæmdastjóra, í stað þess að stærri ríkin hafi tvo en þau minni einn, eins og nú er. Þessar tillögur Prodis hafa fengið misjafnar undirtektir hjá aðildarríkjunum. Þær verða ræddar á leiðtoga- fundi Evrópusambandsins, sem fram fer í Sevilla á Spáni í dag og á morgun. ■ ROMANO PRODI Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins. i '

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.