Fréttablaðið - 21.06.2002, Síða 17

Fréttablaðið - 21.06.2002, Síða 17
I FÖSTUPAGUR 21. júní 2002 FRETTABLAÐIÐ 17 Mál og menmng: Fuglakort Islands KORTAÚTcÁFA Kortadeild Máls og menningar hefur gefið út nýtt fuglakort sem lýsir öllum íslensk- um fuglurn á skýr- an og aðgengileg- an hátt. Fugla- kortið er nýtt á ís- lenskum korta- markaði og í raun fyrsta kortið í heiminum sem er byggt upp á þenn- an hátt. Kortið er byggt á bókinni íslenskir fuglar eftir Ævar Peter- sen fuglafræðing hjá Náttúr- fræðistofnun íslands og vatnslita- myndir eru eftir Jón Baldur Hlíð- berg. ■ Sumaróperan: Nýjung í íslensku tónlistarlífi óPERfl Nýlega hófust æfingar Sum- aróperu Reykjavíkur á óperunni Dido og Eneas eftir Henry Purcell. Sumaróperan er nýjung í tónlistarlífi á Is- landi og er unnin að erlendri fyrir- mynd. Markmið Sumaróperunnar er að setja upp eina óperu á hver- ju sumri. Sævar Finnbogason, Sævar kynningarst jóri Finnbogason félagsins, segir þetta einhver mestu tíðindi í ís- lensku tónlistarlífi síðan íslenska óperan var stofnuð. „Þetta er ómetanlegt tækifæri fyrir unga listamenn að koma að óperuupp- færslu, kynnast vinnubrögðum listamanna sem þegar hafa haslað sér völl og þroska list sína í örvan- di umhverfi," segir Sævar. „Við auglýstum eftir fólki og réðum svo í aukahlutverkin átta eftir áheyrnarpróf þetta efnilega, unga fólk sem mun taka þátt í sýning- unni, en 150 söngvarar þreyttu prófið. Aðalhlutverkin fjögur eru í höndum reyndra söngvara, þeirra Ingveldar Ýrar, Ásgerðar Júníusdóttur, Hrólfs Sæmunds- sonar og Valgerðar Guðnadóttur. Dido og Eneas hefur verið köll- uð perla barokkóperanna og þykir með fegurri tónsíðum. Atburða- rásin er hröð og skemmtileg og harmræn í senn, og óperan þykir eiga hvað mest erindi við nútíma- manninn. Uppsetning Sumaróperunnar var valið annað af tveimur sam- starfsverkefnum ársins hjá Leik- félagi Reykjavíkur og Reykjavík- urborg styrkir líka verkefnið. Óperan verður frumsýnd í Borg- arleikhúsinu 10. ágúst. ■ LEIKARAR TÓKU LAGIÐ Framundan eru stífar æfingar en óperan verður frumsýnd í byrjun ágúst. OPNUN FÖSTUDAGURINN 21. JÚNi LEIKHUS 16.00 Gallerí Reykjavík. Listakonan Elitsa G. Georgieva frá Rousse í Búlgaríu opnar stuttsýningu sína, olíumálverk sem öll eru unnin á þessu ári. Elitsa G. Georgieva er 21 árs og hefur haft áhuga á list, málun, teikningu, skúlptúrgerð og hönnun síðan hún var 7 ára. Elitsa lauk námi frá listaháskóla í Búlgarfu með framúrskarandi ár- angri. Hún er búsett hér á íslandi frá 2001. Sýningu hennar lýkur miðvikudaginn 3. júlf. 20.00 Loftkastalinn. El Prumpos Pissos, uppistand Sigurjóns Kjartanssonar og Þorsteins Guðmundssonar. Pétur Jóhann Sigfússon hitar upp. SKEMMTANIR DOKTORSVÖRN 14:00 Háskóli (slands, Lögbergi, Úlf- hams saga. Aðalheiður Guð- mundsdóttir, cand mag. í íslensk- um bókmenntum, ritgerð sína Úlfhams saga. Andmælendur eru dr. Jurg Glauser prófessor í Zurich og dr. Svanhildur Óskarsdóttir fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar. Vilhjálmur Ámason, forseti heimspekideildar, stjórnar athöfninni. GANGA 22.20 Huliðsheimar Hafnarfjarðar Jónsmessuferð með Erlu Stef- ánsdóttur um álfabyggðir Hafnar- fjarðar! Lagt af stað frá Upplýs- ingamiðstöð Hafnarfjarðar. Farið verður með rútu á þá staði sem mestan kraftinn gefa og sumar- sólstöðum fagnað. 23.00 Ari í Ögri. Arnar og Hafdís leika létta og hressa tónlist með Ijúfum undirtón. 22.00 Café Flora Grasagarðinum. Sól- stöðutónleikar með Páli Óskari og Moniku. 24.00 Café Flora Grasagarðinum. Sól- stöðutónleikar Páls Óskars og Moniku endurteknir. Café 22 DJ Krummi. Kringlukráin Hljómsveit Rúnars Júlíus- sonar Vídalín Kvennahljómsveitin Rokkslæðan gerir allt vitlaust á Vídalín Með þeim i för verður Rokkdrottningin Andrea Jóns- dóttir. Kaffi Amsterdam Safaríka gleðisveitin Buff. Café Catalína Trúbadúrinn Kjartan Hlöðversson Gaukur á Stöng Land og synir sjá um fjörið. Gullöldin Ásgeir Páls sér um dúndrandi stuð. BESSASTAÐAHREPPUR www.bessastadahreppur.is Álftanesskóli http://alftanesskoli.ismennt.is Ágætu kennarar Okkur í Álftanesskóla vantar kennara í almenna bekkjarkennslu í 1., 3. og 7. bekk. Álftanesskóli er einsetinn grunnskóli fyrir nemendur í 1.-7. bekk. í skólanum verða 240 nemendur í 14 - 15 bekkjardeildum. Góð starfsaðstaða. Mikil samvinna og öflugt skólastarf. Skólinn leggur sérstaka áherslu á stærðfræði, listir, upplýsingatækni og skapandi starf. Sjá vef Álftanesskóla http://alftanesskoli.ismennt.is Upplýsingar veita Sveinbjörn Markús Njálsson skólastjóri, í símum 565-3662, 891-6590, netfang: sveinmar@ismennt.is og Ingveldur Karlsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 565-3662, netfang: inka@ismennt.is. Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Álftanesskóla. Sjá einnig auglýsingu á vef Bessastaðahrepps www.bessastadahreppur.is Skólastjóri. 6® Frábært á brauð, imatargerð | og bakstur. Alpa smjör er hrein, íslensk náttúruafurð sem hentar vel ofan á brauð, í bakstur og matargerð. Alpa smjör er unnið úr sýrðum rjóma eftir vinnsluaðferð sem löng hefð er fyrir meðal smjörmeistara í Evrópu. Islensk afurð - evrópsk hefð OSTÁOG SMJÖRSALAN SF www.ostur.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.