Fréttablaðið - 13.07.2002, Síða 17

Fréttablaðið - 13.07.2002, Síða 17
LAUGARDAGUR 13. júlí 2002 FRÉTTABLAÐIÐ 17 Ýmsar uppákomur í Árbæjarsafni um lielgina: Kassabílar, stultur og húlahringir söfn Árbæjarsafn stendur fyrir ýmsum uppákomum um helgina. í dag klukkan 14.00 verða haldnir tónleikar. Tríóið Jazzandi leikur fyrir gesti þekkta djass standara ásamt frumsömdu efni. Tríóið skipa Sigurjón Alexandersson á gítar, Sigurdór Guðmundsson á bassa og Ingvi Rafn Ingvason á trommur. Við Kornhúsið verða gamaldags leiktæki; kassabílar, stultur og húlahringir. Einnig verður hægt að leika með leggi og skeljar. Teymt verður undir börn- um frá kl. 13.00-15.00 við Árbæ- inn. Á morgun, sunnudag, verður sagnfræðingurinn Guðjón Frið- riksson með leiðsögn fyrir gesti safnsins um sýninguna „Saga Reykjavíkur - frá býli til borgar“ frá kl. 13.00 og 15.00. Netahnýt- ingar verða við Nýlendu og í Árbæ bíður húsfreyjan gestum upp á nýbakaðar lummur. Á bað- stofuloftinu verður spunnið og saumaðir roðskór. Teymt verður undir börnum frá kl. 13.00-15.00 við Árbæinn. Harmonikan verður þanin við Árbæ og Dillonshús, en þar er boðið upp á veitingar. Klukkan 14.00 hefst dagskráin Spekúlerað á stórum skala í hús- inu Lækjargötu 4. Þar býður Þor- lákur Ó. Johnson upp á skemmt- un í anda liðins tíma. Þar fá gest- ir innsýn í lífið í Reykjavík á 19. öld. ■ Útivist: Gengið Presta- stíginn ferðir f sunnudagsgöngu Útivistar verður genginn Prestastígur svo- kallaður. Hann liggur á milli Grindavíkur og Hafna á Reykja: nesi. Lagt verður af stað frá BSÍ klukkan hálfellefu. Prestastígur er heiti á fornri og áður fjölfarinni þjóðleið. Talið er líklegt að skýring nafns- ins sé sú að með prestar hafi oft átt leið um þennan veg eftir árið 1907 þegar Kirkjuvogssókn í Höfnum var lögð til Staðarpresta- kalls í Grindavík. ■ ymLUnott ar. Verk listamannanna eru rýmisverk sem unnin eru í ýmis efni og á mismun- andi máta. Sýningin er opin alla daga nema þriðjudaga kl. 11-17. Henni lýkur 22. júlí. Magnús Sigurðsson sýnir í galleri@hlemmur.is. Sýningin stendur til 20. júlí. I' Gallerí Reykjavik stendur yfir stuttsýn- ing Katrínar S. Ágústsdóttur. Sýningin stendur til 17. júlí. í Listasafni ASÍ sýna þær Valgerður Hauksdóttir og Kate Leonard. Sýningin stendur til 28. júlí. Listasafns íslands sýnir tæplega ÍOO verk í eigu safnsins eftir 36 listamenn. Á henni er gefið breitt yfirlit um íslenska myndlistarsögu á 20. öld, einkum fyrir 1980. Sýningin skiptist í fimm hluta: Upphafsmenn íslenskrar myndlistar á 20. öld; Koma nútímans/módernismans í myndlist á íslandi; Listamenn 4. ára- tugarins; Abstraktlist; Nýraunsæi áttunda áratugarins. í Gerðasafni stendur yfir fyrsta sýningin úr Listaverkasafni Þorvaldar Guðmunds- sonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Meðal annars eru til sýnis fjögur verk eftir tvo færeyska listamenn, S. Joen- sen Mikines og Ingálvur av Reyni. Sýn- ingin stendur til 28. júlí. Björg Sveinsdóttir sýnir myndir teknar á tónleikum hljómsveitarinnar Sigur Rós- ar í Laugardalshöll, Listasafni Reykjavík- ur, Montreux og London á Kaffitári við Laugaveg. Sýningin er opin á verslunar- tima og lýkur 1. ágúst. SÝNINGAR I Þjóðmenningarhúsinu eru þrjár sýn- ingar í gangi. Sýndar eru Ijósmyndir úr svonefndum Fox-leiðangri sem eru með elstu myndum sem teknar voru á ís- landi, Grænlandi og í Færeyjum, sýning er á vegum Landsbókasafns á bók- menntum Vestur-íslendinga og loks er svo Landafundasýningin sem opnuð var árið 2000 og hefur nú verið framlengd. Aðgangur er ókeypis á sunnudögum. Sjóminjasafnið, Vesturgötu, Hafnar- firði, er nú opið alla daga frá kl. 13-17 fram til 30. september. Sýning stendur yfir á verkum Jóns Gunnarssonar list- málara þar sem viðfangsefnið er sjó- mennska og lífið við sjávarsiðuna. Sýn- ingin verður opin til 1. júlí á opnunar- tíma safnsins. I Grófarsal í Grófarhúsi við Tryggvagötu er sýning á íslenskum blaðaljósmynd- um frá árunum 1965 til 1975. Blaðaljós- myndir eru einn stærsti flokkur myndefnis á Ljósmyndasafni Reykjavík- ur, sem sýnir hér hátt á annað hundrað blaðaljósmyndir. Opið milli klukkan 12 og 15.30. «4. mmm Jf mmm ** W Færð þu Ferðaavisun MasterCard með þínu kreditkorti? >.000 kr . í erdaavisuri viö stofnun korts www.atlaskort.is A.TLAS korthafar safna 4 kr. af hvtírjum 1 000 kr. og Gullkorthafar S kr. af hverjum 1.000 kr, Nánari upplýsingar á www.europay.is eða i sima 550 1500. TERRA vW ' HOVA Jsói ?erdaáv>a4r WasT&rZzrz er uasgc «<i oyu sem greiésíu nm a ®tss paincaPð^é *ia sðámó> setn eru I samstarf við MasZ&rCari. Gi-esci-j •aarf- ferön;.s ’tiíö W.ssJtenCarcf <crtir^ se'~ Upphæð avisunar tengd veltu kortsíns innanlands sidustu 2 ár. Glæsilegir stólar til sölu á stór- lækkuðu verði. Þeir einu sinnar tegundar sem hannaðir hafa verið. Verð áður 120.000/stóll, Nú 70.000/stóU. Hafið samband í síma : 698-0414.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.