Fréttablaðið - 27.07.2002, Side 2
LÖGREGLUFRÉTTIR
FRÉTTABLAÐIÐ
27. júlí 2002 LAUGARPAGUR
T ögreglan í Hafnafirði stöðvaði
JLium 90 ökumenn í gær til þess
að athuga hvort menn væru með
ökuréttindi og notuðu belti. Út-
koman var mjög jákvæð að sögn
lögreglunnar. Aðeins tveir voru
ekki með belti en allir með rétt-
indi.
Tilkynningaskyldan fékk neyð-
arboð frá báti síðdegis í gær.
Fljótlega kom í ljós að neyðarboðið
var sent fyrir mistök, en litlu mátti
muna að allt hefði verið sett í gang
og björgunarsveitir sendar af stað.
Fólksbíll ók á rollu í Norðurár-
dal, skammt frá Norðurár-
brúnni í gær. Engin slys urðu á
fólki en aflífa þurfti rolluna. Bíll-
inn skemmdist lítið. Að sögn lög-
reglu hefur verið þónokkuð mikið
um að ekið sé á búfé á þessum
slóðum.
LOÐNUVEIÐAR
Ekkert er að fá.
Botninn að detta úr
loðnuveiðunum
200 þúsund
tonn komin
áland
SJAvarútvegur Lítil sem engin
loðna finnst lengur þrátt fyrir leit
þeirra skipa sem ekki eru hætt
veiðum. Þetta er á nákvæmlega
sama tíma og í fyrra sem loðnan
hverfur, 25. júlí hvarf loðnan og
veiðar hófust ekki að nýju fyrr en
um áramót. Að sögn kunnugra er
algengt að loðnuveiðin hætti um
þetta leyti, rétt fyrir verslunar-
mannahelgina.
Rétt tæp 200 þúsund tonn af
loðnu eru nú komin á land og eru
þá óveidd 284 þúsund tonn af út-
gefnum loðnukvóta.
Öflugustu skipin fara nú á
kolmunnaveiðar. Hinum verður
lagt fram í september þegar síld-
veiðar hefjast.
Kolmunnaveiðin hefur verið
ágæt að undanförnu. Búið er að
landa rúmlega 150 þúsund tonn-
um hér og eru óveidd rúm 130
þúsund tonn af útgefnum
kolmunnakvóta. ■
—♦—
Bjarni Ármannsson:
Getum
náð niður
kostnaði
viðskipti „Við teljum að það sé
mikill kostnaður í íslenska banka-
kerfinu um fram það sem er í ná-
grannalöndum okkar,“ segir
Bjarni Ármannsson, forstjóri Is-
landsbanka, um hugsanleg kaup í
Búnaðarbanka eða Landsbanka.
„Þennan kostnað bera íslenskt
viðskiptalíf og almenningur uppi
og við teljum að það megi lækka
með því að ná fram stærri eining-
um.“
Bjarni kveðst ekki hafa
áhyggjur af fyrri yfirlýsingum
viðskiptaráðherra um að bankarn-
ir verði ekki seldir annarri fjár-
málastofnun. „Við munum ræða
við einkavæðingarnefnd og gera
grein fyrir okkar rökum. Við
treystum þeim til að taka faglega
ákvörðun." ■
1 LÖGREGLUFRÉTT
Gasleki varð í geymslu á veit-
ingastað í Kringlunni í fyrr-
inótt. Slökkviliðið var kallað út og
var sprautað með háþrýstislöngu
á gasský fyrir utan veitingastað-
inn. Að því loknu fóru reykkafar-
ar inn í geymsluna, skrúfuðu fyr-
ir gasið og loftræstu svæðið.
Hótel Eldhestar fær norrænt umhverfismerki
Forstjóri Norðurljósa
Fjórða íslenska fyrirtækið
til að hljóta merkið
UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ SÍV Friðleifs-
dóttir, umhverfisráðherra hefur
veitt Hótel Eldhestum í Ölfusi nor-
ræna umhverfismerkið Svaninn.
Hótel Eldhestar er fyrsta íslenska
hótelið sem hlýtur vottun Norræna
umhverfismerkisins. Forsvars-
menn hótelsins hafa frá upphafi
lagt mikla áherslu á umhverfismál
og stenst hótelið nú kröfur norræna
umhverfismerkisins Svansins
varðandi uppbyggingu, búnað, um-
hverfisstjórnun og aðhald í orku-
og hráefnanotkun.
SVANURINN AFHENTUR
Siv Friðleifsdóttir, umhverfisráðherra af-
hendir forsvarsmönnum Hótels Eldhesta
vottun Norræna umhverfismerkisins
Svanurinn er Norrænt umhverf-
ismerki sem Norræna ráðherra-
nefndin setti á stofn árið 1989.
Nú þegar hafa 33 hótel hlotið
norræna umhverfismerkið, þar af
28 í Svíþjóð, fjögur í Noregi og eitt
í Finnlandi. Hótel Eldhestar er
fjórða íslenska fyrirtækið sem fær
leyfi til að nota Norræna umhverf-
ismerkið. Hin fyrirtækin eru Frigg
fyrir Maraþon milt þvottaefni,
Prentsmiðjan hjá Guðjón Ó. fyrir
prentverk og S. Hólm fyrir iðnaðar-
hreinsiefnið Undra. ■
Kalladur til
yfirheyrslu
lögreglumál Sigurður G. Guðjóns-
son forstjóri Norðurljósa var í
gærmorgun kallaður til yfir-
heyrslu hjá auðgunarbrotadeild
ríkislögreglustjóra. Tilefnið var
ósk Búnaðarbankans um lögreglu-
rannsókn á því hvernig trúnaðar-
skjöl úr bankanum komust í hend-
ur forstjóra Norðurljósa. Sigurð-
ur var spurður hvort hann hefði
tekið skjölin ófrjálsri hendi á
skrifstofum Búnaðarbankans en
Sigurður neitaði því. Þá var Sig-
urður spurður hvort hann vissi
hver hefði tekið skjölin og neitaði
hann því einnig. ■
Boðar
sparnað og
uppsagnir
Islandsbanki vill kaupa í Landsbanka eða Bún-
aðarbanka. Segir nauðsynlegt að spara í banka-
kerfinu. Það myndi hafa í för með sér umtals-
verðan hagnað fyrir þjóðina.
viðskipti „Bankaráð íslandsbanka
telur að þessar tölur sýni að
bankakerfið á íslandi sé dýrt í
samanburði við samkeppnislönd
okkar. Lækkun kostnaðarins er að
A okkar mati nauð-
synleg og mikil-
væg. Lækkun þessa
kostnaðar mundi
hafa í för með sér
umtalsverðan þjóð-
hagslegan sparnað
og stuðla að minni
Við erum
pollróleg og
treystum
yfirmönnum
bankans.
—♦—
fjármagnskostnaði heimila og fyr-
irtækja. Það eykur aftur á móti
hagvöxt, arðsemi fyrirtækja og
ávöxtun sparnaðar."
Þetta er upphaf bréfs íslands-
banka til einkavæðingarnefndar
vegna óska bankans um viðræður
um kaup á hlutum í Landsbanka
eða Búnaðarbanka. Umdeilt er
hvort rétt sé að íslandsbanki eign-
ist hluta í öðrum bönkum. Bankinn
rökstyður hagkvæmnina af því og
segir: „í þessu samhengi er aug-
ljóst að hagkvæmni stærðarinnar
gegnir lykilhlutverki. Við teljum
að frekari samþjöppun í banka-
kerfinu sé forsenda þess að unnt
sé að leysa úr læðingi æskilega
kostnaðarhagræðingu. Hins vegar
höfum við ríkan skilning á því
sjónarmiði að nauðsynlegt sé að
hagræðingin leiði ekki til skorts á
samkeppni. Það væri engum til
góðs.“
fSLANDSBANKI, LANDSBANKI
OG BÚNAÐARBANKI
íslandsbankamenn segjast reka sinn banka
best og vilja kaupa annan hinna. Annað
hvort einir og sér eða með öðrum.
X
íslandsbanki segir að bankinn
hafi sýnt betri afkomu en aðrir
bankar. Kostnaðarhlutfall var 55
prósent árið 2001 og á sama tíma
var það 66 prósent hjá Lands-
banka og rúm 70 prósent hjá Bún-
aðarbanka. „Við vekjum líka at-
hygli á því að á síðasta ári fækkaði
störfum í íslandsbanka um rúm-
lega 50 meðan starfsfólki fjölgaði
hjá öðrum."
íslandsbanki segir að árið 1999
hafi rekstarkostnaður bankakerf-
isins verið 4,4 prósent af lands-
framleiðslu á sama tíma var það
2,5 prósent í Bretlandi, 2,5 í Sví-
þjóð, 2,4 í Danmörku og 1,8 í Nor-
egi.
„Við erum pollróleg og treyst-
um yfirmönnum bankans. Það hef-
ur áður reynt á okkur þegar til stóð
að Landsbankinn keypti Búnaðar-
bankann," sagði Auður Theódórs-
dóttir formaður starfsmannafélags
Búnaðarbankans. Hún sagði vær-
ingarnar nú ekki vera mikið rædd-
ar meðal starfsmanna. „Stjórnend-
ur bankans hafa reynst okkur vel
og ég trúi að svo verði áfram." ■
INNBROT ( BÍLA
Lögreglan beinir þeim tilmælum til fólks að skilja aldrei eftir verðmæti í bílum, þar
sem það bjóði hættunni.
Lögreglan brýnir fyrir fólki að vera vart um sig:
Um 25 innbrot
á tíu dögum
lögregla Síðdegis í gær höfðu
verið framin 25 innbrot í Reykja-
vík frá miðnætti 24. júlí. Að sögn
lögreglu er þetta töluvert yfir
meðallagi, en flest innbortin hafa
verið í bíla, en einnig hefur verið
brotist inn í fyrirtæki og á heimili
fólks. Innbrotin síðustu daga hafa
ekki verið einskorðuð við einhver
einstök hverfi en þó hafa hlut-
fallslega flest þeirra átt sér stað í
Vesturbænum.
Lögreglan vill brýna fyrir
fólki að skilja aldrei eftir verð-
mæti í bílum þar sem það bjóði
hættunni heim og oft reynist
erfitt að upplýsa þannig mál.
Einnig beinir hún þeim tilmælum
til fólks að huga vel að heimilum
sínum ef það hyggst fara út úr
bænum. Gæta þess að ganga
tryggilega frá hurðum og glugg-
um og skilja ekki varalykil eftir á
vafasömum stað. Einnig segir
hún gott að skilja útvarp eftir í
gangi, hæfilega hátt stillt og hafa
ljós kveikt á sýnilegum stað í
húsinu.
Á heimasíðu lögreglunnar
(www.logreglan.is) er að finna
ýmsar upplýsingar um afbrota-
varnir. ■