Fréttablaðið - 27.07.2002, Page 8

Fréttablaðið - 27.07.2002, Page 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 27. júli 2002 LAUGARPAGUR FRETTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Frétt ehf. Ritstjórí: Gunnar Smári Egilsson Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson Ritstjórnarfulltrúi: Steinunn Stefánsdóttir Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavlk Aðalsími: 515 75 00 Símbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Sfmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Frétt ehf. Prentvinnsla: Isafoldarprentsmiðja hf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-borgarsvæðinu. Einnig er hægt að fá blaðið I völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði; Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. | BRÉF TIL BLAÐSINST Meiri fót- bolta en ekki minni íþróttaáhugamaður skrifar: Mig undrar að knattpsyrnu- áhugamenn skuli vera að setja út á að sýnt sé frá kvennaknattspyrnu í sjónvarpi. Það vantar meira íþróttaefni frekar en hitt. Þá skiptir minnstu hvort það eru karlar eða konur sem eru að keppa. Auk þess tel ég sannað að íþrótt- ir, flestar hverjar að minnsta kosti, séu iðkendum og öðru áhugafólki til góðs. Það er gott fyrir foreldra að vita til þess að stúlkum jafnt sem drengjum stendur til boða að taka þátt í heilbrigðu og ánægjulegu íþróttastarfi. Ef myndir í sjónvarpi auka áhuga og verða til þess að fleiri börn leggi stund á íþróttir þá er hverri mínútu í sýningartíma vel varið. Þeir sem agnúast út í að íþróttaiðkun kvenna sé sýnd í sjónvarpi verði að nota þá traus- tu aðferð að slökkva á sjónvarp- inu eöa skipta um rás. Sérviska fámennis má ekki verða til að skaða fjöldann. Áfram stelpur til betra lífs. Látið óréttláta dóma um ykkur ekki trufla ykkur. ■ Förum öll varlega Jóhann skrifar Nú styttist í Verslunarmanna- helgina og víst að margir eru farnir að huga að ferðalögum þá helgi ef þeir eru ekki þegar búnir að ákveða hvert á að fara og jafn- vel kaupa miða þar sem það þarf. Þó Verslunar- mannahelgin sé oftast ánægjuleg er full ástæða til að við förum öll varlega. Við verð- ________ um bæði að varast það að fara of greitt í umferðinni til að minnka líkurnar á óhugnan- legum umferðarslysum. Það þarf ekki nema umferðaróhapp til að eyðileggja helgina fyrir fjölskyld- unni. Alvarlegra slys getur breytt lífi allra sem í hlut eiga það sem eftir er. Það er líka full ástæða til að líta eftir börnunum okkar sem eru að fara á útihátíð. Þó útihátíðirnar séu ánægjulegar fyrir flesta get- ur ýmislegt slæmt gerst eins og dæmin sanna. Líkamsárásir og nauðganir hafa sett ljótan blett á alltof margar útihátíðir á undan- förnum árum. Förum nú öll var- lega og lítum hvert eftir öðru. ■ Tengingar áhugamanna um bankakaup Tveir hópar, sem að mestu koma frá Norðurlandi, hafi- asýnt áhuga á að kaupa góðan hlut í Búnaðarbanka eða Landsbanka. Skagfirðingar, undir forystu Þór- ..ólfs Gíslasonar kaupfélagsstjóra á Sauðárkróki, og Kaldbakur þar sem gamla KEA er und- irstaðan. Þessir tveir hópar eiga það sameiginlegt að vera að mestu settir saman af fé- lögum sem áður tilheyrðu Sam- bandi íslenskra bankamanna - sem eins og kunnugt er var stór- veldi í íslensku viðskiptalífi - en varð að engu fyrir nokkrum árum. Hann tengist því kaupunum í gegnum tvo af þeim fimm sem vilja kaupa. Eftir standa samt nógu sterkar stoðir til að kaupa ráðandi hlut í stórum banka. íslandsbanki vill og kaupa. Það vilja líka Björgólfsfeðgar og Magnús Þorsteinsson. I nafni þeirra vinnur meðal annars Andri Sveinsson, sem var einn af stofn- endum Gildingar. Þórður Magnús- son, sem var aðalstofnandi Gild- ingar er einnig meðal þeirra sem hefur lýst áhuga sínum. Hann ger- ir það í nafni fjárfesta sem að mestu eru þeir sömu og komu að Gildingu á sínum tíma. Einn af þeim sem stóð að Gildingu var Þorsteinn Vilhelmsson, einn af stofnendum Samherja, en bróðir hans og frændi sem stofnuðu Samherja ásamt honum eru meðal Sigurjón M. Egilsson skrifar um bankasölur þeirra sem vilja kaupa - samt ekki beint. Samherji er meðal eigenda í Kaldbaki ásamt KEA og fleirum. Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, er að auki einn af stærri hluthöfum í íslandsbanka. Hann tengist því kaupunum í gegnum tvo af þeim fimm sem vilja kaupa. Það sem er ekki síður eftirtekt- arvert er að ekki er sjáanlegt að nokkrir erlendir fjárfestar hafi sýnt bönkunum áhuga. Eitt af því sem stefnt var að var að fá inn er- lent fjármagn. Ekki er að sjá að það gangi eftir. Björgólfsfeðgar og félagi þeir- ra Magnús eru að mestu með pen- inga sem þeir öfluðu í Rússlandi. Það er eina fjármagnið sem hægt er að sjá að sé að koma frá útlönd- um. ■ í RÉTTARSALNUWl Á þessari teiknuðu mynd má sjá Moussaoui í réttarsalnum. Leonie Brinkema, dómari, situr andspænis honum. Snerist hugur í réttarsalnum Zacarias Moussaoui segist ekkert hafa vitað um hryðjuverkaárásirnar 11. september. Hegðun hans í réttarsalnum hefur vakið athygli. Móðir hans segir hann ekki hæfan til að verja sig sjálfur. alexandra. viRGiNÍA. ap Zacarias Moussaoui, eini maðurinn sem ákærður hefur verið fyrir aðild að hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin þann 11. september, hefur lýst yfir sakleysi sínu. „Ég vissi ekkert um 11. september," sagði Moussaoui fyrir bandarískum alríkisrétti. í síð- asta mánuði hafnaði Moussaoui að- ild að hryðjuverkaárásunum. í síð- ustu viku sagðist hann aftur á móti ætla að játa sekt sína og lýsa yfir hollustu sinni við Osama bin Laden. Dómarinn sagði honum þá að hugsa málið í viku til viðbótar. Á fimmtu- dag lýsti Moussaoui sig sekan um að hafa framið fjögur af þeim sex af- brotum sem hann er ákærður fyrir. Öll fjögur ákæruatriðin fela í sér hugsanlegan dauðadóm. Þegar dóm- arinn sagði honum að með því að játa væri hann að viðurkenna þátt- töku sína í hryðjuverkaárásunum, ákvað Mossaoui að draga játningu sína til baka og lýsa yfir sakleysi sínu. Lagaráðgjafi við yfirheyrslurn- ar sagði að yfirlýsing Moussaoui „hefði verið í samræmi við hegðun hans í réttarsalnum fram að þessu.“ Réttarhöld yfir Moussaoui eiga að hefjast þann 30. september. Hann hefur til þessa varið sig sjálfur og hafnað aðstoð opinberra verjenda. Móðir Moussaoui var afar fegin er hún heyrði af því að hann hefði lýst yfir sakleysi sínu. „Hegðun hans undanfarið sýnir að hann er undir of miklu andlegu álagi til að verja sig sjálfur," sagði hún. „í júní heimsótti ég hann fjórum sinnum. Ég þekkti ekki barnið sem ég hafði alið; honum hefur hrakað mikið bæði andlega og líkamlega.“ Moussaoui, sem er franskur rík- isborgari, er m.a. ákærður fyrir að hafa tekið þátt í samsæri um að að myrða bandaríska borgara, að framkvæma hryðjuverk og að nota gjöreyðingarvopn. Hann var hand- tekinn áður en hryðjuverkaárásirn- ar á Bandaríkin áttu sér stað. ■ Hópur feitra Bandaríkjamanna lögsækir skyndibitastaði: ,, Sky ndibitastaðir hafa eyðilagt líf mitt“ HElLSA Hópur Bandaríkjamanna sem þjáist af offitu hefur höfðað mál gegn bandarfskum skyndibita- stöðum. Eru forsvarsmenn stað- anna sakaðir um að hafa selt þeim mat sem þeir vissu að myndi valda viðskiptavinum sínum offitu og sjúkdómum. Skyndibitastaðirnir McDonald’s, Burger King, Wendy’s og Kentucky Fried Chicken voru kærðir fyrir að hafa lokkað við- skiptavini til sín með því að bjóða upp á fitugan, saltaðan og sykur- ríkan mat. „Skyndibitastaðir hafa eyðilagt líf mitt,“ sagði Caesar Barbar, einn ákærendanna í samtali við the New York Post. Barbar, sem er 57 ára gamall og vegur 125 kíló, segist hafa borðað skyndibitamat allt til ársins 1996 þegar læknir hans var- aði hann við því að mataræði hans gæti orðið honum að aldurtila. Bar- bar hefur þegar fengið tvö hjartaá- föll og þjáist auk þess af sykursýki. „Ég hélt alltaf að skyndibitinn væri hollur. Ég hélt aldrei að það væri eitthvað athugavert við að borða slíkan mat,“ sagði hann. Talsmaður BURCER KING Burger King-hamborgarastaður. Rúmlega helmingur fullorðinna Bandaríkjamanna þjáist af offitu, sem miðast við um 15 kíló yfir eðlilegrí þyngd. Talið er að vaxandi neysla á skyndi- bitamat sé helsta ástæðan fyrir offitu Bandaríkjamanna. samtaka veitingastaða gerði lítið úr lögsókninni. „Hann hlýtur að gera sér grein fyrir því að tveir þriðju hlutar matar sem fólk neytir í Bandaríkjunum er borðaður heima fyrir. Er hann að leggja til að við höfðum mál gegn bandarískum húsmæörum?" ■ Yfirvöld í Suður-Kóreu: Lög gegn ein- ræktun í burð- arliðnum SEÚL. SUDUR-KÓREU. AP YfÍrVÖld í Suður-Kóreu ætla að flýta því að samþykkt verði lög gegn einrækt- un manna. Stutt er síðan fyrirtæki í landinu hélt því fram að það hefði komið fyrir einræktuðu fóstri í kóreskri konu. þetta er satt eða ekki, er afar mikil- vægt að við samþykkjum slík lög sem allra fyrst,“ sagði Kim So- hui, ráðamað- ur hjá heil- brigðisráðu- neyti Suður- Kóreu. ,Hvort sem KÓREA 10 ára fangelsi fyrir að reyna að einrækta fólk. Samkvæmt nýju lögunum sem bíða þess að verða samþykkt eiga þeir 10 ára fangelsi yfir höfði sér sem reyna eða hjálpa til við að einrækta manneskjur. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.