Heimdallur - 01.12.1884, Side 4
180
I
höfn. Yfir gröf hans er marmaravarði með
þessari áritan:
„Hjer hvílir
Davíð Livingstone.
kristniboði, ferðamaður og mannvinur f. 19da
marz 1813, dáinn 4ða maí 1873 í Kitambodaln-
um í landinu ílala.“
í þrjátíu ár af ævi sinni kappkostaði hann
án afláts, að mennta frumbúa Afríku, að leiða í
Ijós leyndardóma náttúrunnar og afnema þræla-
verzlun í Afríku. Hin síðustu orð hans hjer
í heimi voru: allt það, sem jeg í einveru minni
get, er, að óska blessunar drottins yfir alla þá, —
hvert sem það eru Englendingar, Yesturheims-
búar eða Tyrkjar —, sem stuðla að því, að þessi
smán mannkynsins hverfi.“
Klemens Jónsson.
Magnús Eiríksson.
(F. 22. Júni 1806 d. 3. Júlí 1881).
Nú er augað blíða brostið
barns, er lýsti hreinni sál,
nú er hins unga, undir hærum,
auga sloknað skýrleiks bál.
fær ei huggað hlýjum orðum
hreldra vina þinna sál.
Hjartað góða er hætt að bærast,
hjartað varma er kalt og dautt
hjartað sterka af helju bundið
hjartað ríka er ástarsnautt.
Tungan fær ei talað framar
trúar, sannleiks, kærleiks mál,
Hjartað, er alla æfidaga
auman gat ei nokkurn sjeð
.lesus mettar 5ooo manns.