Heimskringla - 19.01.1927, Page 4
4. BLAÐSÍÐA.
HEIMSKRIN GLA
WINNIPEG 19. JANUAR 1927
t
Hdinskringla
(StofnnD 1886)
Kemur 6« * bTerjum ml*vlkudeBÍ.
EIGENDUR:
VIKING PRESS, LTD.
883 og 855 SARGENT AVE., WINNIPBO.
TMUfmt: N-6537
^rV blaíslns er *3.00 Argangurlnn bors-
lst fyrlrfram. Allar borganli• sendtst
THE VIKING PREfeS LTD.
SIGFÚS HALLDÓRS írá Höfnum
Rltstjórl.
JAKOB F. KRISTJÁNSSON,
Ráðsmaður.
ItnnflskrlW III blabslnst
THE VIKING PRESS, Gtd., Bol 8105
UtnnAskrlft tll rltst Jflrans l
EOITOR HBIMSKRISOM, R«a 8105
WIXMPEG, HAN.
‘'Helmskrlngla ls pnbllshed by
The Vlklne Press Gtil.
and prlnted by
CITY PRINTING A PUBI.ISHING CO.
853-855 Ssrnent Ate., Wlnnlnelf, Man.
Telephone: .86 53 7
WINNIPEG, MAN. 19. JANÚAR, 1927
Tvö bréf.
TIL SR. HALLDÓRS E. J0HNS0N(
BLAINE.
I.
PRESTURINN, RÚSSARNIR OG EG.
Kæri séra Halldór!
Þau eru nokkuð snögg stundum veðra-
brigðin, jafnvel hér á þessu meginlandi
staðviðrannar
Fyrir hálfu öðru ári síðan stóð svo á
að eg gat orðið við bón yðar. Það kost-
aði mig auðvitað ekkert. En mér skildist
á yður að yður þætti sérlega vænt um,
ef eg gæti gert það. Þess vegna lét eg
mér dálítið annt um það. Og mér skildist
á kæru þakklætisbréfi frá yður síðar, að
mér hefði í engu skotist, að þér væruð
fyllilega ánægður við niig.
Nú, rétt fyrir jólin, koma skilaboð frá
yður, þess efnis, að þér segið upp kaup-
um á Heimskringlu, helzt að mér skildist.
sökum þess, að liún væri svo stútfull af
“kommúnisma”! Eg varð hlessa. En
svo sem til áréttingar sendið þér mér tón-
inn rétt á eftir, í jólablaði “Lögbergs",
og staðfestið þar með skilaboðin, auk
þess sem þér bætið nokkru við.
Eg endurtek það, að eg varð forviða.
Þegar eg heyrði fyrst frá yður, svo vin.
gjarnlega, að mér varð vel til yðar, eins og
allra, er sýna mér alúð og eg ekki þekki
að neinu misjöfnu, þá hafði eg verið rit-
stjóri Heimskringlu í 14 ár. Þá var eng-
inn dómsdagshljómur í rödd yðar, held-
ur ómengaður þakklætishreimur. En
eftir 14 ár í viðbót finnið þér ástæðu til
að bregða mér um skort á “djörfung eða
kurteisi” um ótta við opinbert málfrelsi;
vænið mig jafnvel ódrengskapar; dylgið
um fréttasambönd ‘‘Heimskringlu hinn-
ar fréttafróðu”; ásakið mig fyrir að vera
‘‘dragast niður í hyldýpi hamslausra
hleypidóma” dómgreindarlauss flokks-
fylgis; fyrirværðið yður jafnvel ekki fyrir
að bera mér á brýn, að eg fáist við að
sannfæra menn um það, “að þeir menn
séu alveg óhafándi í opinberum stöðum.
sem Iáta sér um það mest hugað að rækja
embættisskyldur sínar sem bezt”, og
klykkið út greinina með setningu, sem er
þannig orðuð, og svo í samhengi sett, að
ekki þarf sérlega glöggskyggnan mann
til þess að sj£, að þér viljið gjarna láta á j
yður skilja, að penni minn vinni sama j
verk og “rógtungur ábyrgðarlausra slúð. j
ur-bera”. Yfirleitt frekar geðugar að- !
dróttanir frá kristnum presti, í garð ;
manns, sem hann áreiðanlega aldrei hef- |
ir mætt neinu misjöfnu frá, — þótt ekki j
væri fyrir annað en fjarlægð og ókynni. j
Ekki myndi mönnum nú þykja ólík- !
legt, að eitthvað meira en lítið hefði j
valdið.þessu hafróti í sál yðar — þér seg- j
ist vera reiður, og reynið enda að sýna !
það — t. d. að eg hefði algerlega um- j
hverfst, breytt gersamlega um stefnu, svo
að eg rynni nú jafnkappsamlega breiða
veginn norður og niður til helvítis, eins
og eg hefði áður klifið atalt mjóa sneið-
inginn suður og upp til sólar og sálu-
hjálpar. En mér vitanlega, og eg held
líka vinum mínum, er stefna mín og hug-
arfar mjög hið sama og það var fyrir 14
ári síðan. Og eg skil ekki vitund, hvert
þér stefnið, er þér talið um “flokksfylgi"
mitt, svo við látum ekki dómgreindarleys
ið verða okkur að ágreiningi. Hvað eigið
þér vjð? Eg tilheyri engum sérstökum
flokki, stjórnmála né kirkjumála — nema
íslendingum. En eg er ráðinn til þess
að styðja stefnuskrá prógressíva flokks-
ins hér í Canada, að þvi leyti, sem ís-
lenzku blöðin hér mega sín nokkuð til
stuðnings. Það hefi eg gert, og það geri
eg enn, engu síður nú, en fyrir 14 ári
síðan.
Nei. kæri séra Halldór; það er ekki eg
sem hefi breyzt, né stefna blaðsins, síð-
an eg tók við því. Hvort þér séuð jafn-
lítið breyttur, er eg í nokkuð meiri vafa
um, og eklci einungis eg, heldur ekki all-
fáir, sem lásu þessa jólablaðsgrein yðar,
og hafa látið í ljós við mig undrun sína
út af henni, í endurminningu um þá tíma,
sem þeir segja að þér hafið ritað í ‘Vor-
öld”. Og mér er það ráðgáta. hvernig
þér farið að sjá ‘‘kommúnista”-brag á
Heimskringlu. Eg veit að vísu, að fáfróð-
um mönnum er talin trú um það nú, iðu-
lega og daglega, að allt sem ekki er í-
hald eða afturhald, sé kommúnismi, og
að þessi kommúnismi, sé eitthvað óvenju
lega hryllilegt og dularfullt, svona eitt-
hvað áiíka og gandreiðarnar og djöfull-
inn á Jónsmessunótt, eins og miðaldar-
trúmennirnir hugsuðu sér þá atburði. En
eg á erfitt með að trúa því, að menntuð-
um tnanni eins og þér eruð, sé hægt að
telja trú um slíka endileysu. Hverjar,
sem mínal persónulegu skoðanir kynnu
að vera, þá er Heimskringla og hefir ver.
ið undir minni stjórn ekkert annað en
frjálslynt samvinnublað, eða samvinnu-
blað aðeins, ef þér viljið það heldur. Þér
getið ekki neitað því, að luin hefir pré-
dikað og hvatt til samvinnu á öllum svið-
um, sýknt og heilagt. Og mér hefir ver-
ið mikil ánægja í því að heyra að ein-
mitt landar í Blaine hafi með sér sam.
lagssamtök. En að það eigi nokkuð skylt
við kommúnista eða það voðalega land,
Rússland, það játa eg í sakleysi mínu, að
eg ekki vissi. En þótt mér þyki það jafn-
kynlegt og breytingin á hugarfari yðar,
þá ætla eg að svara álösununum og að-
dróttunum r “jólafrétta”-bréfi yðar nokk-
uð ítarlega. Margra hluta vegna þykir
mér sá pistill þess verður, að eyða á hann
bleki, tíma og rúmi.
* * *
Mér er fundið það tvennt til foráttu að-
allega, að mér finnst, að eg sé elskur að
Rússum, og að eg hafi ekki nema illt að
segja um Bandaríkin, (1) “andleg ör-
birgð”; 2) “helgi hjónabandsins fótum.
troðin"; 3) ‘‘dómarar landsins þiggi mút-
ur" og séu “'óvandaðri en í nokkru öðru
landi”, og 4) sé eg vondur við Coolidge).
Eg skal þá gera nokkra grein fyrir við-
horfi Heimskringlu í þessar áttir.
* * *
Máske við byrjum þá á voðanum sjálf-
um fyrst; Rússanum.
Eg játa það, að mér er vel til Rússa,
eða stjórnenda þeirra, eins og mér er yfir.
leitt við hverja “vandalausa” þjóð, eða
menn, sem með einbeittum vilja og tak-
markalausri fórnfýsi, berjast fyrir háum
hugsjónum. En það hljótið þér þó að
játa, að forystumenn Rússa, allt frá Len-
in, hafa gert. Þeir hafa ekki starfað til
þess, að kýla sína eigin vömb, eða til þess
að geta svalað girndum sínum á nokkurn
hátt. Það eru þó allir sammála um, sem
um þá rita og stefnu þeirra, þótt ósam-
mála kunni að vera um allt annað. Og
yður ætti að vera vorkunnarlaust að vita
það, að yfirleitt ber öllum málsmetandi
mönnum og konum, 9em hafa kynnst
hinu nýja Rússlandi, saman um það, að
ekki sé hægt að líkja hugarfari Lenins.
Trotzky og hinna 400,000—600,000 trúnt
aðarmanna þeirra, sem í raun réttri
stýra þessu mikla heimsveldi, við neitt
betur en við hugarfar Púrítananna gömlu,
sem létu Karl I. sæta sömu afdrifum og
Nikulás II. hlaut síðar. Það eru ekki all
ir, sem vilja telja Rússanum þetta hugar.
far til hróss, en eg get ekki skilið að þér,
sem prestur mótmælendasafnaðar, getið
hneykslast sérlega á því.
En það er nú svona samt, að þér sjáið
ekki mismuninn á líflátunum 1 tíð Niku-
lásar og Dzer>hinsky, eða muninn á
Lenin og Mussolini. Þér sjáið ekki mun-
inn á því, hvort menn og konur eru myrt,
pínd og svívirt á friðartímum, eins og hjá
Nikulási og Mussolini fyrir ástríðu sína
til þess að bæta kjör aumingjanna, eða
hvort fjandmenn, ótryggir menn mál-
staðnum, eða opinberir svikarar við hann
eru teknir af lífi á ófriðartímum. Þér
verðið að gá að því, að fram á síðustu
daga Lenins og Dzerghinskys, logaði á-
valú einhversstaðar innanlands ófriður í
Rússlandi, mest af völdum stórveldanna
í Evrópu, sem höguðu sér þá nákvæmlega
eins og við Frakka eftir stjómarbylting-
una miklu. Grunsamir menn og konur
sæta á styrjaldartímum vægðarlausri
meðferð og Iífláti, og ekkert síður, nema
fremur sé, í 'in'nanlamísóéirðum. Það
skiftir engu máli, hvort stríðið er kallað
púrítanskt, stjórnarbylting á Frakklandi
eða á Rússlandi, frelsisstríð eða þræla.
stríð í Ameríku.
Munurinn á Dzerghinsky og Mussolini
er álíka og á Danton og Neró, og á Lenin
og Nikulási öðrum, álíka og á Cromwell
og Caligúla. Og mér þætti gaman að þér
sýnduð mér og sönnuðuð, nokkurt dæmi
um nokkuð svipaða stjórnmennsku á
Rússlandi nú og á ítalíu. Og hefir raun-
ar aldrei verið saman berandi. Til dæmis:
Lenin var veitt banatilræði oftar en einu
sinni. Tilræðismaðurinn var líflátinn og
þar með búið. Þó kom það eitt sinn fyr-
ir, er unglingspiltur átti í hlut (líkt og
Zamboni, er síðast réð til við Mussolini),
að Lenin lét kalla hann fyrir sig, gaf hon-
um upp sakir, og kom honum inn á þá
braut, er hugur hans stóð til. En síð-
ast, er Mussolini var veitt banatilræði,
var unglingurinn, er til réðist, drepinn af
svo miklu æði, að Fascistarnir særðu hver
annan í ofsanum, að koma skoti eða hníf |
stungu í limlestan líkamann, og varð að
fara með tvo af þeim á spítala. Hátt-
standandi embættismenn Fascista, sem
voru með Mussolini, tóku þátt í .þessu..
Einn af þeim, Arconovaldo Buonaccorsi,
dró tygiíkníf sinn úr slíðrum og skar
drenginn á háls. Signor Balbo, vararáð-
lierra í hagfræðisskrifstofum ríkisins,
vildi ekki vera minni, og renndi tveim
skammbyssuskotum í sundurtættan lík.
aniann. Mussolini geðjaðist svo vel að
þessu, að hann kvað það verða “að vitn..
ast um allan heim að tilræðismaðurinn
hefði verið drepinn án dóms og laga”.
Og Turati, hægri hönd Mussolinis, til-
kynnti opinberlega daginn eftir, “að sem
afleiðing þessa fyrsta réttlætisverks, sem
frd'mið hefði verið, yrði vægðarlanst að
hefja atlögu gegn þeim, er væru ‘‘sið-
ferðislega sekir”.
Hve rækilega það var gert, má gera
sér dálitla hugmynd um af því, að í 13
borgum, sem kunnugt er um, voru næstu
daga eyðilagðar, rændar og ruplaðar 16
blaða- og bókaútgáfubyggingar, hús 22
þingmanna, 13 lögmanna, 28 heldri
manna embættislausra, 150 verkamanna,
1 þrests og 7 blaðamanna, og 28 kirkjur,
vísindastofnanir og rannsóknarstofur
eyðilagðar. Drepnir voru 3 verkamehn.
sem víst er um; fangelsaðir, eða héraðs-
og landrækir 6 prófessorar og 17 þing-
menn; barðir til óbóta og meiddir allt til
bana, 4 blaðamenn, 8 þingmenn, 1 há.
skólakennari, 1 prestur, 1 lögmaður og
24 heldri menn aðrir, embættislausir. —
Þer verðið að gá vel að því, að þetta er
á friSartímum, og að þetta nær aðeins
til 13 af 73 stærri borgum á ítalíu, fyrir
utan það, sem skeð hefir í hinum 9200
minniháttar borgum. Þetta er ekki tekið
úr blöðum óvinveittum Mussolini, heldur
úr Fascistablöðunum sjálfum. Maðurinn
sem saman tíndi, er prófessor Gaetano
Salvemini, sem nú á griðland meðal beztu
manna á Englandi, og ritstjórinn, sem
birtir það, er Wickham Steed, fyrv. rit- 1
stjóri Times, núverandi ritstjóri Review
of Reviews, íhaldssamur frekar, en eins
og yður vafalaust er kunnugt, einhver ;
allra fjölhæfasti og skarpasti blaðamað-
ur á enska tungu.
iHvaða vitneskju hafið þér um Síberíu-
vist rússneskra útlaga nú? Eg skal játa, j
að mér er svo lítið um hana kunnugt að
eg efast um að hún sé til í nokkurri mýnd.
þótt eg að svo stöddu ekki vildi hætta I
miklu til að svo væri ekki. En hefir mið-
stjórnin í Moskva einhverja samninga við
ráðstjórnina í Síberíu, um að taka af sér
rússneska fanga, til þvflíkra djöflakvala
og misþyrminga, sem átti sér.stað á dög.
um czaranna? Mér er spurn; og eg efast
ekki um að þér munið geta greitt ský.'
laust og fullnægjandi svar.
* * *
Eg sagði áðan, að þeir sem bezt vissu,
iktu helzt hugarfari kommúnistanna rúss
nesku við Púrítanana. Það er ekkert
kynlegt, þegar lesin eru rit hinna helztu !
manna þeirrá, Wu er fjalla um mann. |
félagsmál. Lenin komst svo að orði um
fluggáfaðan, ungan samverkamann í
bréfi til vinar sfns:
„ . !
' Eg er hræddum um hinn unga vin okkar, að '
þrátt fyrir hinar ljómandi gáfur hans, hafist '
aldrei neitt gott af homirn. Hann er ásthneigð. !
ur, en það vinmir ekk'i byltingunni gagn. Mér !
finnst stundum að þessi ásthneigð nngra manna.
og jafnvel eldri, sé einungis afbrigði vændis- !
kvennaþarfar broddborgaránna, se.n vér ruddum
úr veK'.... Ungdómurinn þarf fjör og kjark; í
að styrkjast af íþróttum, göngu ferðum, allskon- j
ar Iíkamlegri þjálfun; af andlegum iðkinum: j
nanu. rannsóknym, visindaleiðangrum. Byltingin
þarf öfluga menn, með föstu sjónarmiði, og alla
krafta þeirra óskifta í hæsta veldi. Vér megum
ekki þola neinn veikleika, enga eyðslu líkams.
eða sálarkrafta; sjálfstjórn, sjálfsagi, er ekki
þrældómur; það er jafnnauðsynlegt í ástum sem
öðru.”
AHstaðar kveður við sama tón (
hjá siðfræðingum þeirra, þegar.
að þessu kemur, hvort helduv j
Lenin, Trotzky, Zalkind, eða •
hvers sem er. Og mér finnst'
að þér ættuð að geta skrifað)
undir þetta sem prestur. Sum-
ir ganga langt um lengra, eins
langt og æstustu Púrítanarnir
á sínum tíma, t. d. Nezamof,
er vill útrýma öllum kynferð-
isafskiftum karla og kvenna,
nema það sem þarf til að lialda
við mannkyninu, og enda leggja
dauðahegningu við vissri teg-
und kynsjúkdóma. Eg býst ekk:
við að þér eigið nokkra samleið
DODDS
jKIDNEY
M PILLS *
&
DODD’S nýrnapillur eru bezta
nýrnameðalið. Lækna og gigt.
með honum, enda ekki ámælis-! bakverki> hjartabilun, þvag-
vert. Það getur eðlilega ekki1
legfið prestum kristinnar kirkju
í miklu rúmi, þótt opinberar
skýrslur hermi, að 80% af öll-
um karlmönnum og 50% af
öllu kvenfólki í New York verði
teppu, og önnur veikindi, sem
stafa frá nýrunum. — Dodd’s
Kidney Pills kosta 50c askjan,
eða 6 öskjur fyrir $2.50, og fást
hjá öllum lyfsögum, eða frá
l The Dodds Medicine Co., Ltd.
kynsjúkdómum að bráð, og að; Toronto, Ontario.
um 25 % af þeim, sem leggjast (
á almenna sjúkrahúsið í Tor., " »
¥
ontoborg, séu haldnir af voða-1 hafa þe,;íar lokið þvf. Kona
legustu tegund þessara sjuk-, Lenins hefir sama embættr og
dóma. Eg veit að þér eruð sam 1 meðan hann lifði; <jr skrifstofu-
þykkur því, að um slíka hluti j stjóri eða .stýra í kennslumála-
beri ekki að tala opinberlega, deildinni. Kona Trotzkys er
sízt prestum. Sálin mun vera í: sérfræðingur í sögu og fögrum
þeirra umsjá, og þá gerir minna | Hstum, og hefir á hendi umsjón
með listasöfnunum í Moskva.
í enn æðri stöðum eru Alex-
andra Kollontai, fullvalda full-
trúi ríkis síns í Mexico, eins og
hún áður var í Noregi, af göml-
um rússneskum aðalættum og
hámenntuð, og Yakovleva, sem
er “æðsta ráð” í kennslumála.
deildinni. Allstaðar, og á öll-
um sviðum, eru starfskrafta-
duglegra og gáfaðra kvenna
til um hreysið.
* *
Dr. Richard Beck hefir ný-
lega haldið fyrirlestur í Minne-
sota um fornmenningu vora.
Hann segir þar eitthvað á þá
leið, að sér finnist að menn-
ingarástand þjóðanna muni fara
■býsna mikið eftir kjörum kon_
unnar.
Eg er á sömu skoðun. Að
vísu getur hámenning átt sér i þegnir með þökkum í þarfir rík-
stað um stund með þrælkuðum isins I jafnvel í sjálfri miðstjórn
konum, en hún er þá rotin, eins ráðstjórnanna; þar eru meira að
og t. d. í Rússlandi fyrir’ bylt- segja konur austan úr Turkest-
inguna, eða stendur fáum og < an, er fyrir 19 árum síðan hefðu
veikburða fótum, eins og t. d. nann-st verið flokkaðar með hús
í sumum latneskum löndum dýrum, af þáverandi stjórnar-
eða á Indlandi. j völdum. —
Hvernig stendur þá konan á [ Virðist yður nú til muna
Rússlandi nú, samanborið við j háskalegt, þótt Rússarnir ^éu
það, sem var fyrir 10 árum síð- komnir frá hinni fornu lífsskoð..
an? ! un Evrópu, að mannkynið sé
Fyrir 10 áruin 9Íðan voru ' fyrst o.gi fremst karlmenn og
kjör rússneskra kvenna þau, að! kvendýr, og til hinnar, að við
segja mátti að almenningsálit- séum fyrst og fremst mann-
ið skifti þeim í þrennt: skikk. eskjur, eða eins og sumir vilja
anlegt núll og barnamaskínu, j segja, guðdómlegar verur í
undirgefna ströngum, en oftast; mannsmynd, án þess þó að af-
velviljuðum heimilisföður; á- neita réttu eðli annars kynsins
burðardýr og barnamaskínu, j eða beggja? Finnst yður, sem
undirgefna fylliríisbarsmíð hús^ þjóni Krists, að það sé nokkuð
bóndahnefans; meira eða minna glæpsamlegt eða íhugavert við
glæsilega skrýdda munaðar. það, að strætissóparinn skuli
vöru, undirgefna losta og metinn til jafns við kaupmann-
nautnasýki lávarða og stór. j inn, að minnsta kosti, og að
eignamanna. —
Nú er konan fyllilega jafn-
smábóndinn og stjórnarformað-
urinn skuli umgangast sem full-
rétthá manninum í Rússlandi, j komnir jafningjar. Finnst yð-
og móðurköllun hennar er um ur í alvöru, sem lærisveini Jesú
leið viðurkennd, framar en í i Krists, að þeir menn séu ámæl-
nokkru öðru landi hvítra manna. | isverðir, sem lifa og deyja fyrir
sem eg veit um. Konum og 1 þá hugsjón, að lyfta smælingj.
körlum er greitt jafnhátt kaup anum upp til 9Í11, að afsala sér
fyrir jafnt verk í Rússlandi, að prjáli fyrir einfaldleik; sællífi
hverju sem gengið er, og kon- | fyrir óbrotna hætti; munaðar-
ur hafa aðgang til jafns við
karla. Og þungaðar konur, er
vinna, fá frí 8 vikúr fyrir barns
burð og 8 vikur eftir, með full.
um launúm, og sem skyldugjald
lífi fyrir hreinlífi og púrítanska
siðu ? Og er yður nokkur nautn
í því, að grípa steininn eða
skarnköggulinn, sem næst ligg-
ur, til þess að slengja í þá, ef
en ekki ölmusu eða náðargjöf. , þeir rasa á þeim mjóa vegí fórn
í hjónabandi hefir hún fyllileg'a ; fýsi og eljanþreks, er þeir klöngr
jafnan rétt á við mannin, jafnf jast nú, undir þungri byrði; hálf
til skilnaðar sem sambúðar.___j miljón manna og kvenna, með
Skilnaður er jafnauðveldur sem 140,000,000 stallbræðra og
hjónaband. Ef annað vill skilja. systra í eftirdragi?
tilkynnir f>að skilnaðinn, og Frá því að eg fór fyrst að
kostar ekkert. Er skilnaður þá þroskast til umhugsunar um
ekki óhemjulega tíður? Jú j mannfélagsmál, og fram undir
heldur skilst mér það á yður, þenna dag, brutust í mér von-
samkvæmt “beztu” skýrslum’ ar- °g draumórar um það, að
sem þér hafið. Hverjar eru þær ísland myndi geta lagt á vaðið
annars? Skilnaður er þó ekki j fyrst, yfir á fyrirheitna landið,
tíðari en það, að fimm til sex ( þangað sem afkomendur okkar
af hverjum hundrað hjónum j eiSa ¥tir að komast. Eg er
skilja á Rússlandi, samkvæmt jafnsannfærður uni það nú, og
opinberum skýrslum, Jsömdum
af hagfræðingi ráðstjórnarinn-
*ar, prót.es9or Mihailovsky. 1—
eg hefi nokkru sinni áður ver-
ið, að engri þjóð hefði verið
_þetta jafnhægt, og afkomend-
Þessar beztu skýrslur yðar j um þeirra manna, er tóku
segja ótíðari hjónaskilnaði í; kristni að fyrirsögn Þorgeirs
Bandaríkjunqm. — Við skulum ! Ljósvetningagoða. Og þótt eg
sjá. Við komum þangað f næsta j ekki hyggi að við séum for-
blaði. j feðrabetrungar, þá hefir þó ís-
Árangurinn — þér vilduð lenzk menning verið furðanlega
máske heldur segja afleiðingin j heilbrigð fram 'á þessa trfma,
er sú, að allar konur, sem eitt- þótt lágt væri undir loftið, og
hvað vilja komast, eru nú að (mjótt á milli veggjanna. Við
vinna sig í áttina þangað, eða I vorum mátulega fámennir til