Alþýðublaðið - 07.05.1960, Blaðsíða 8
Péffinn' og
tannbrinn
JÓHANNES páfi 23. þarf
ekki lengur að kvíða íyrir
því að fara til tannlæknis-
ins. Hann hefur nefnilega
fengið sænskan lofttannbor,
sem engum sársauka veld-
ur. J'óhannesi er sem kunn-
ugí er ekkert mannlegt ó-
kunnugt — heldur ekki
tannpína, — og hann heíur
ákveðið að þessi sænski bor
skuli notaðar á sínar heil-
ögu tennur, þegar þörf er á.
Góður heim að sækja.
FRÁ RÓM. — Simpansi einn í dýragarðinum í Milano
fékk fáséðan gest í heimsókn um daginn, þegar hænu-
unginn Domenico labbaði sig inn í búrið til hans. Ekki er
þess getið, að hann hafi spurt hann frétta úr sínu byggðar-
lagi né heldur hellt upp á könnuna, en ekki verður annað
séð en að mikið hafi honum þótf til gestsins koma.
IBHBHHHBÍEHraíSfSHBnHeMHBHBBHHHEBSMHElESaEEISHBBBBBBHBflBBHBBBHEIBHBBiS
Grænlenzk-
ur dægur-
laga-
söngvari
IJM páskana kom á mark
aðinn í Danmörku hljóm-
plata, sem er einstök í sinni
röð. Það er sem sagt fyrsta
platan, sem Grænlendingur
.syngur inn á. Fyrsti hljóm-
plötusöngvari Grænlend-
inga heitir Lars Svendsen
og þrátt fyrir nafnið er
hann ekta eskimói. Hann
syngur bæði grænlenzk þjóð
lög og dægurlög, sem náð
hafa vinsældum á Græn-
landi. í júní næstkomandi
verður Svendsen starfsmað-
ur í hljómlistardeild græn-
lenzka útvarpsins.
☆
Naruhito
Hironomiya
Tízkumyndir fyrir kvenfólk í sumarfríi
ENNÞÁ höfum við kom-
izt yfir tízkumyndir, sem
kvenfólkið hefur kannski
gaman af áð sjá. Þessi föt
eru einkum ætluð til brúks
í sumarfríinu, sem nú er
.varla langt undan hjá þeim,
sem yfirleitt fá nokkurt
sumarfrí.
1. Brúnröndótt, hand-
prjónuð ullarkápa frá Renee
COLLARD. Kápan er með
stórum kraga, bundnu belti
og hálflöngum ermum.
2. Þægileg, hvít kápa úr
ullarefni með stórum herra-
kraga, hneppt að framan,
með vasalokum og víðum
hálflöngum ermum. Þessa
kápu á helzt að nota yfir
sléttu pilsi og síðri, víðri
blússu með uppstandandi
kraga, lausum frá hálsin-
um. Ermarnar eru stuttar og
kápan er teiknuð af Jéan
Patou.
3. Handprjónuð, dökkblá
mussa með kögri að neðan.
Notuð við heiðbláar síðbux-
ur. Þetta er frá Christian
Dior.
4. Hubert de Givenchy
hefur teiknað þennan Ijósa
kjól, sem bæði er ermalaus
og kragalaus. Hann er með
tveim vösum að framan og
dökkbrúnu belti.
5. Þannig er fínast að vera
til fara á útreiðartúrum,
segir Hermes. Stúlkan er í
aðskornum, gulum jakka
með fjórum vösum. Jakk-
inn er með svörtum uppslög
um á ermunum og svörtum
kraga. Reiðbuxurnar eru
beinhvítar.
6. Loks er hvítur jersey-
kjóll frá Maggy Rouff.
Hann er kragalaus og erma
laus, hnepptur niður í mitt-
ið og með belti með svört-
um, brúnum og hvítum
röndum. Sami litur er á
jakkanum og beltinu. Jakk-
inn er eins og sjá má á
myndinni beinn niður með
herrakraga og hálflöngum
ermum.
MICHIKO, krónprinsessa
í Japan, hefur fætt manni
sínum son og þjóðinni til-
vonandi krónprins. Sonur-
inn var skírður hinu hljóm
fagra nafni Naruhito Hiro-
nomiya. Naruhito táknar
þann, sem hefur til að bera
hugrekki og heitar tilfinn-
ingar, vizku, siðferðilega
fullkomnun og manngæzku,
en Hironomiya táknar
„hinn háa herra“. Þegar
barnið var skírt, voru við-
hafðar aldagamlar venjur
og forneskjulegir seiðir
framdir til þess að vernda
barnið gegn illum öndum
og auka á persónukosti þess.
Þegar „hinn hái herra“
verður keisari, verður hann
sá 126. í röðinni, — keisara-
röð, sem haldizt hefur óslit-
in frá stofnun japanska rík-
isins.
☆
NÚ er voriff komiff — á
norffurhveli jarffar aff
minnsta kosti, og í Banda-
ríkjunum eru útgáfufélögin
farin að hamast viff aff gefa
út Gerffu-þaff-sjálfur bæk-
ur. Þessar bækur seljast
geysilega í Bandaríkjunum
og hugdettur útgefendanna
eru margar hverjar hinar
snjöllusu! Síffasta bókin á
þessum markaffi heitir:
„Smíðaðu sjálfur gömlu hús
gögnin þín.“
Úr myndabók Tony‘s.
>nif Jín!
FÍNA fólkið í heiminum
er að breytast, og suwir
segja að meðal þess hafi
orðið bylting. Eitt byltingar
einkennið er hin nýja af-
staða enska aðalsins til ljós-
myndara. Þeir eru nú settir
á bekk með rithöfundum,
leikrum og arkitektum. Þeir
eru orðnir virðulegir með-
borgarar.
Hinn fínasti meðal fínna
Ijósmyndara er Cecil Bea-
ton, maðrinn, sem látinn var
&
Á SÍÐASTA ári voru
byggðar 70 000 nýjar einka
sundlaugar í Bandaríkjun-
um, en það er augljóst
merki aukinnar velmegun-
ar. Flestar sundlaugarnar
eru með lýsingu í botni —
enda er það í tízku að fara
í laugina þegar gestirnir
fara að finna á sér á kvöld-
in og þá er gott að allt sé
vel upplýst.
taka fyrstu mynd:
Andrew prins í I
ham Palace. Beatoi
aldra „herramaðux
býr tik alls konar
Hann teiknaði leik
My Fair Lady, hefx
að föt, bókakápur o
skerma, og smekk
hefur verið hæstí
Englandi undanfari
En til skamms tíma
fínt að kalla hann 1
ara. Ekki meðal fíi
ins.
Cecil Beaton tók
tíma fyrstu mynd:
Charles prinsi o|
prinsessu, en hans i
ei getið þá, en nú
fyrst og fremst kalli
myndari. Fólki e
ljóst, að í höndum
er ljósmyndavélin
legt tæki. Beaton s£
ur: „Nú eru Ijósm
settir á bekk með ö<
meðal fína fólksin
sem ekki gera þai
eftir tímanum."
g 7, mai 1960 — Alþýðublaðið