Alþýðublaðið - 07.05.1960, Qupperneq 13

Alþýðublaðið - 07.05.1960, Qupperneq 13
GRIKKLAND hefur staðfest sáttmálann um stöðu flótt-a- manna, sem gerður var að til- hlutan Samei’nuðu þjóðanna árið 1951. Áður höfðu 23 ríki staðlest han-n, þeirra á meðal Danmörk, ísland, Noregur og Svíþjóð. Afríka hefur á síðustu 12 mánuðum fengið samtals níu lán 'hjá Alþjóðabankanum og néma þau alls rúmum 260 milljónum dollara. Iðnaðarframleiðsla Sovét- ríkjanna árið 1959 hefur hlut fallstöluna 111, ef miðað er við töluna 100 árið 1958. Sé miðað við söm utölu ári 1953, verður framleiðslutalan fyrir 1959: 189. Þessar tölur eru teknar úr marzhefti hagtíð- inda Sameinuðu þjóðanna. Mestu betlarar sögunnar —• í svari’, sem Dag Hammar- skjöld, framkvæmdastjóri SÞ, gaf við spurningu blaðamanns varðandi skortinn á alþjóðleg um áhuga á baráttu Alþjóða heilh|rigðismálastoI)|iunairihn- ar (WHO) gegn mýraköldu, sagði hann m. a.: ,,Ég er dá- lítið vonsvikinn yfir árangr- i’num af fjársöfnun WHO og ýmsum öðrum herferðum, sem nú standa yfir. Sé litið á Sam einuðu þjóðirnar sem fjöl- skýldu verður það að segjast að þaer eru mestu betlarar ver aldarinnar — og veraldarsög- unnar — og þetta skýrir hvers vegna ég er ekki sleginn furðu. Hins vegar snúum við okkur til heimsins í vitund þess að málefni vort er gott — og það skýri’r hvers vegna ég er dá- lítið vonsvikinn.“ Júgóslavía hefur gerzt 77. aðildar r í ki Alþj óðaf lugmála- stofnunarinnar (ICAO). Spánn he3ur gerzt 59 aðild- arríki Alþjóða-fjármálastofn- unari’nnar (IFC). Framlag Spánar er 1 108 000 dollarar, aijiiiiiiiiinHHiim-Hi.íiuiiiiiimuiHiimniiiiiuiuuiHii v/nn- ingurínn kom i í GÆR var dregið í 5. flokki Vöruhappdrættis S.Í.B.S. Dreg- ið var um 860 vinninga að fjái'- hæð samtals kr. 964.000,00. — Eftirtalin númer hlutu hæstu vipningana: 200 þúsund krónur nr. 55268. 100 þúsund krónur nr. 29713. 50 þúsund krónur nr. 15682. 10 þúsund krónur nr. 23539 30412 32302 34876 35076 49871 50091 56289 56692 64655. 5 þúsund krónur nr. 1663 4955 8124 12691 13623 38018 38762 40881 44667 45429 53585 58130 58797 63631. og- er þá heildarhöfuðstóll stofnunarinnar orðinn 96 506- 000 dollarar. Ghana í IAFA. Stjórn Al- þ j óðakj arnorkuBtof nunarinn- ar (IAFA) samþykkti á fundi sínum í Vínarborg nýlega með samhljóða atkvæðum> að mæla með upptöku Ghana í stofnunina. Málið verður tek- i’ð fyrir á ársþingi hennár, sem hefst 20. september, og verði upptakan samþykkt er Ghana 71. aðildarríki IAFA. Sfapafell með ÓLAFSVIK, 5. maí. — í lok aprílmánaðar var afli Ólafsvík urháta orðinn 9731 tonn í 1033 róðrum. í dag hefur Stapafell, sem var og er aflahæst, losað 1200 tonn í 95 róðrum. Nýsmíði fiski- KOMEE) er til Hveravall'á, hvítan lít eg jökulskalla, fjöllin há og brjóstabreið. Bælið sjáum bergs við stalla. Bjó þar Eyvindur og Halla útlegðar f napri neyð, Svonja reyndust sumra kjörin. Seka hitti níðingsörin. Mannúðin var lota Iág. . Samúðina sízt þau fun%, samvizkuna í f jötur bundu, fótgangandi fjöllum á. Móðirin með brjóstabarnið berfætt yfir kalda hjarnið flýtti sér úr byggðum burt. Ofsótt var hún öllum stundum, elt af grimmum spora- hundum. Áfram hélt, en hvert veit hvurt? Eyvindur með kreppta kynngi krufði marga fjalla. bingi, fylgsni ef gæti fundið þar. Lagvirkur því löngum var ’ann, langt af flestum mönnum bar ’ann, mosa og lyng í bólið bar. B.eggja hjörtu sútin særði, sálar angist lífið tærði, hungrið þrengdi oftast að. Böls og nauða bar á skerin. Barnið Halla lét í hverinn. Það var sorglegt banabað. Móðurástin sorgum særðist. Sundurkramið hjartað bærðist. Hrundu tregatár um kinn. Nauðug stóð við banabeðinn. Burtu færðist sálargleðin. Harður reyndist heimurinn. Munu ei þeir, sem miklu stela, máske æfðir í að fela, heiðraðir s.em heldri menn, borðialagðir bera krossa? Blind er þjóðin slíkum hossa. Víst er hún ekki vöknuð enn. HANNES JÓNSSON frá Spákonufelli. Iðnaðarbanki Íslands fær mnan MÁNUDAGINN 2. maí var haldinn aðalfundur Félags ísl. dráttarbrautaeigenda. Formað- ur félagsins, Bjarni Einarsson, skipasmíðameistari, skýrði frá störfum félagsins á s.l. ári. Var m.a. unnið að því að bæta að- stöðu dráttarbrautanna við ný- smíði fiskibáta innanlands. I því skyni hækkaði Alþingi að ósk félagsins heimild til ríkis- ábyrgðar vegna nýsmíði úr 4 milljónum kr, í 10 millj. kr. Auk þess voru endurgreiðslur aðflutningsgjalda af efni til ný- smíða hækkaðar verulega á s.l, ári. Reikna má með því, að ný- smíði fiskibáta muni aukast innanlands á næstunni, enda eru bátar smíðaðir hér nú full- komlega samkeppnishæfir bæði að gæðum og verði á við báta byggða erlendis. Á s. 1. ári gekk Félag ísl. dráttarbrautaeigenda í Lands- samband iðnaðarmanna. Stjórn Félags ísl. dráttar- brautaeigenda var endurkosin, en hana skipa: Bjarni Einars- son, formaður, Marsellíus Bern harðsson, ritari og Sigurjón Einarsson, gjaldkeri. Aflinn um s.l. mánaðamót var annars sem hér segir: 1. Stapafell 1178,6 tonn í 93 róðrum. 2. Jón Jónsson 1016 tonn £ 95 róðrum. 3. Bjarni Ólafsson 908,8 tonn í 92 róðrum. 4. Jökull 841 tonn í 91 róðri. 5. Glaður 818 tonn (eingöngu netafiskur) £ 79 róðrum. 6. Hrönn 770 tonn í 86 róðrum 7. Víkingur 750 tonn í 88 róðrum. ,8. Sæfell 715 tonn £76 róðrum 9. Þórður Ólafsson 676 tonn i 81 róðri. 10. Bárður Snæfellsás 612 tonn £ 72 róðrum. 11. Týr 503 tonn £ 68 róðrum. 12. Valafell 383 tonn i 37 róðrum. 13. Fróði 376 tonn £ 62 róðrum. O.Á. ir 2.-5. hæð BÆJARBÁÐ hefur samþykkt umsókn Iðnaðarbanka Islands um leyfi til að byggja 2., 3., 4. og 5. hæð Iðnaðai'bankans við Lækjargötu 10B. Samkvæmt upplýsingumi bankastjórans, Guðmundar Ól- afs, er búið að steypa kjallara og 1. hæð hússins, en ráðgert að tseypa 2. hæð í næstu viku. —< Búizt er við, að á þessu ári' verði lokið við að steypa allar hæðirnar. Þó að allt gangi eftir áætlun, er ekki reiknað með að: Iðnað- larbanki íslands geti' flutt starf- semi sína í húsið %rr en siðari hluta næsta árs. Bankinn mun nota mikinn hluta hússins til eigin þarfa, en ráðstafa afg'ang inum á einhvern hátt, sagði bankastjórinn aðspurður. POLYFONKOBINN hélt x siðastliðinni viku 5 kirkjutón- leika £ Kristskirkju, Landakoti. Húsfyllir var £ öll fimm skipt- in. Blaðaummæli voru mjög lofsamleg. Vegna fjölda áskorana verða tónleikarnir endurteknir í Kristskirkju sunnudaginp 8. mai klukkan 9 síðdegis. Brazilíu KAJ A. SVANHOLM for- stjóri £ Rio de Janeiro hefur ný lega sent Náttúrugripasafninu að gjöf uppsettan krókódil frá Brazilíu. Kaj Svanholm hefur áður sent Náttúrugripasafninu rausnarlegar gjafir, sem bera I vott um hlýhug hans til íslands. Abaífundur FéSags Sam. þjóðanna Aðalfundur Starfsmanna- fél. Reykja- víkurbæjar AÐALFUNDUR Starfsmanna- félags Reykjavíkurbæjar var haldinn í Tjarnarkaffi 9. marz s. 1. Félagsmenn eru nú rúm- lega 800. Stjórn félagsins skipa nú: Júlíus Björnsson formaður, Ragnar Þorgrímsson varafor- maður, Kristín Þorláksdóttir ritari, Gunnar Gíslason gjald- keri, Haukur Eyjólfsson bréf- ritari, Þórður Ág. Þórðarson spjaldskrárritari og Georg Þor- steinsson fjármálaritari. — Varastjórn: Bjarni Bjarnason, Hákon Þorkelsson og Magnús Óskarsson. Auk venjulegra aðalfundar- starfa var kosið í nefndir inn- an félagsins, ennfremur 17 full trúar á þing B.S.R.B. AÐALFUNDUR Félags Sam einuðu þjóðanna á íslandi var haldinn 9. apríl s. 1. Jóhannes G, Helgason flutti aðalskýrslu félagsstjórnar en Jón Magnús- son ritari og framkvæmdastjóri félagsins gerði grein fyrir reikningum félagsins. Starfsaðstaða félagsins hef- ur batnað verulega. Félagið gekk á'síðastliðnu ári í Alþjóða samband félaga Sameinuðu þjóðanna, sem hefur aðsetur í Genf. Félagið hefur fengið skrif stofu í Tjarnargötu 16, og hef- ur komið þar upp vísi að bóka- safni. Félagið fær nú fjárfram- lag til starfsemi sinnar af fjár- veitingu til Sameinuðu þjóð- anna á fjárlögum. Á vegum félagsins er um þessar mundir að koma út heimildarrit um Sameinuðu þjóðirnar, sem Freysteinn Gunnarsson, skólastjóri, hefur íslenzkað. Ritgerðarsamkeppni barna á vegum félagsins og barnablaðsins Æskunnar um ísland og Sameinuðu þjóðirnar stendur nú yfir. Félagið hvggst koma á árlegri ritgerðarsam- keppn í skólum. Sú ritgerðar- samkeppni á að vera tengd degi Sameinuðu þjóðanna. Félagið hefur árlega unnið margháttað starf vegna dags Sameinuðu þjóðanna 24. okt. Jóhannes G. Helgason baðst undan endurkosningu og var Ármann S'nævarr prófessor kosinn formaður. Aðrir £ stjórn voru kjörnir: Aðalmenn: Helgi Elíasson, f ræðslumálast j óri, Jón Magnússon hdl., Jón Magn ússon, fréttastjóri og Kjartan Ragnars, stjórnarráðsfulltrúi. Hatnfirðingar ráða garð- yrkjuráðunauf BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarð ar hefur samþykkt ályktunar- tillögu frá meirihlutanum, þess efnis, að bæjarstjóra sé heim- ilt að ráða garðyrkjuráðunaut. Tillgangurinn er að stuðla að Jegrun opinberra svæða og al- menningsgarða í Hafnarfirði, og jafnframt gefa bæjarbúum kost á leiðbeiningum um fegr- un lóða og garðrækt. Alþýðublaðið —- 7. maí 1960 J*

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.