Alþýðublaðið - 15.05.1960, Blaðsíða 3
Listaháfíð
leikhússins
: MIÐASALA
HEFST Á MORGUN
EINS og áður ihefur verið
skýrt frá, efnir Þjóðleikhúsið
til listahátíðar 4.-17. júní n. k.
Flutt verður óperan „Selda
brúðurin“ eftir Smetana, undir
stjórn dr. Smetácéks. — Það er
gestaleikur Fragóperunnar og
eru einsöngvararnir úrvals-
Safna
fyrir
orgeli
AKUREYRI, 14. maí. — Hér
stendur yfir söfnun til kaupa
á pípuorgeli fyrir kirkjuna og
er m. a. 50 kr. veita í gangi í
því skyni. Verið er að smíða
orgelið hjá G/s Steinmayer &
Co. í Suður-Þýzkalandi, en það
fyrirtæki hefur mikla reynslu
í smíði slíkra hljóðfæra.
Organleikari kirkjunnar, Ja-
kob Tryggvason, hefur farið
utan til að kynna sér þessa gerð
orgela. Er tegundin hin vand-
aðasta, m. a. hefur hljóðfærið
43 raddir, en stærstu orgel hér-
lendis hafa 30—40 raddir.
Pípuorgel eru þegar til í 17
kirkjum hér á landi. Þykir
mörgum mál til þess komið,
að hin veglega Akureyrarkirkj a
eignist slíkan grip. — G. St.
söngvarar, en Pragóperan er
meðal be/tu ópera á meginland-
inu. Þjóðleikhúskórinn syngur
kórhlutverk óperunnar, ncm-
endur Listdansskóla Þjóðleik-
hússins dansa og Sinfóníuhljóm
sveit íslands leikur undir.
„Rigoletto“ hin vinsæla ópera
eftir Verdi, verður rú flutt í
annað sinn í Þjóðleikhúsinu og
verður Guðmundur Jónsson —
sem fyrr i titilhlutverkinu. —
Gestir verða Nicolai Gedda frá
Metropolitan óperunni í New
York, Stina Britta Melander frá
Berlínaróperunni og Sven Eri'k
Vikström frá Stokkhólmsóper-
unni, er tekur við af Gedda, —
sem syngur aðeins tvisvar sinn
um. BaUettinn ,,Fröken Julie“,
sem hinn frægi' balletthöfundur
Birgit Gullberg hefur samið, —
verður sýndur undir stjórn höf-
undarins og sem jafnframt
dansar eitt hlutverkið. Aðal-
dansarar verða Margaretha von
Bahr og Klaus Salin, sólódans-
arar frá Finnsku óperunni í
Helsingfors, auk þess dansa
nemendur úr Listdanskóla Þjóð
leikhússins með í haUettinum.
Sinfóníuhljómsveit íslands leik
ur undir. Auk þessa verða á
listahátíðinni sýnd tvö leikri't,
afmælssýningin „í Skálholti“,
eftir Guðmund Kamhan, og
„Hjónaspil“, eftir Thorntori
Wilder.
Sala aðgöngumiða hefst á
morgun.
MÁLVERKASÝNING Kristjáns Davíðssonar í Bogasal Þjóð-
minjasafnsins hefur nú staðið í viku, Selzt hafa 15 myndir og
aðsókn verið góð. Sýningunni lýkur í kvöld. Hér sést listam'að-
urinn við eitt stærsta og sérkennilegasta listaverkið á sýning-
unni.
~lur
fluttar út
Sigga Vigga
i, JÆJA, AOEIN5 SEX DA&AR TIL 5UNNUÐA&S/"
ÚTLIT er fyrir, að
samningar takist um tals-
verðan útflutning á fiski-
bollum til Finnlands. Hef
ur verSð flutt nokkuð af
bollum til Finnlands til
reynslu og hafa þær líkað
mjög vel.
Það er fyrirtækið Ora Kjöt
& Rengi h.f. í Kópavogi, sem
hefur verið að þreifa fyrir sér
um útflutning á fiskbollum.
Hafa verið fluttir út 300 kassar
en útlit er fyrir, að útflutning-
ur á miklu meira magni takizt.
ÁÐUR FLUTT ÚT.
Ora Kjöt & Rengi hefur áð-
ur flutt út nokkuð af fiskboll-
um. Var það á árunum 1955,
1956 og 1958. Ekki er Alþýðu-
blaðinu kunnugt um, að aðrir
hafi flutt út fiskbollur. Einnig
hefur fyrirtæki þetta flutt út
Sýning í Elliheimilinu
SÝNING verður í dag í Elli-
heimilinu á munum, sem gamla
fólkið hefur unnið. — Kcnnari
er Alda Friðriksdóttir.
talsvert af murtu til Banda-
ríkjanna °g Frakklands. Mun
Ora Kjöt & Rengi vera eina
fyrirtækið, er flutt hefur út
murtu.
Vorsýning
í DAG kl. 2 síðd. verður vor-
sýning Iiandíða- og myndlistia-
skólans opnuð í húsakynnum
skólans að Skipholti 1.
Á sýningunni' eru sýnishorn
af vetrarvinnu nemenda í náms
greinum þeim, sem kenndar eru
í skólanum, en þær eru: list-
málun, teiknun, sáldþrykk, lító-
grafía, dúk- og trérista, mosaik,
bastik, mynzturteiknun, alm.
vefnaður, myndvefnaður, út-
saumur, tauþrykk, bókband. —
Þar er einnig fjölbreytileg
vinna barna m- a. teikningar,
vatnsltamyndir, mosaik, fönd-
ur o. fl.
Sýningin verður aðeins opin
í dag og á morgun kl. 2-10 síðd.
ELDUR kom upp í skúr við
Melaskóla í gær, nokkru eftir
hádegið. — Urðu talsverðar
skemmdir á skúrnum.
A
me
fel
ALÞÝÐUBLADIÐ spurðist
fyrir um það hjá Landhelgis-
gæzlunni í gær, hviað helzt væri
að frétta af erlendum togurum
hér við land.
Brezkir togarar eru að veið-
um fyrir suð-austan. Þeir veiða
þar fast við 12 mílna mörkiri.
Þar er tundurspillirinn Battle
Axe á varðbergi,
Fyrir norð-vestan eru fjöl-
margir togarar, en þeir eru
djúpt úti, því mjög gott veður
hefur verið undaní'arið. Þarna
eru líka brezku herskipin Pallis
er og Delight.
Fjölmargir brezkir togarar
eru ennfremur dreift fyrir Norð
urlandi. Þeir halda sig frá 12
mílna mörkunum. íslenzku
varðskipin eru á vakki og hafa
auga með togurunum.
INNBROT
INNBROT var framið í fyrri-
nótt í Bústaðabúðina að Hólm-
garði 34.
Stolið var þaðan um 400
krónum í peningum, sígarett-
um og nokkru af sælgæti.
Diefenbaker
í Keflavík
J. DIEFENBAKER, forsætis-
ráðherra Kanada kom við á
Keflavíkurflugvelli í gær á leið
frá London. Mun hann hafa
verið að koma laf samveldisráð-
herrafundinum þar og fór heim
leiðis í kanadiskri þotu frá
hernum,
Forsætsráðherrann stanzaði
um hálfa aðra klukkustund á
vellinum, kom um hálfeitt leyt-
ið. Þaðan hélt liann til Goose
Bay í Labrador.
Alþýðublaðið — 15. maí 1960 3
I