Alþýðublaðið - 18.05.1960, Side 16

Alþýðublaðið - 18.05.1960, Side 16
ij Bar í lofti Hin stora þota Boeing 707 er svo stór, að þar er rúm fyrir bar. Meðan þessi stórvaxna farþega- þota svífur hljóðlaust gegnum geiminn í 10 km. hæð með 980 km. hraða á klukkustund verða kokteilar barþjónsins eini hristingurinn um borð. Nýlega hefur Air Franoe fengið slíkar flugvéljar af- hentar á Orlyflugvelli. Irar éta smjör í HEIMINUM öllum (Sovét- ríkin og Kína þó undanskilin) var framleitt heldur minna smjör árið 1959 en árið á und- an. 'Samkvæmt mánaðarriti Matvæla- og landbúnaðar- ■ stófnúnar Sameinuðú þjóð- anna (FAO) framleiddu 17 helztu smjörframleiðslulönd • heimsins (þau sem hafa árleg- ar skýrslur yfir framleiðsluná) alls um 2,45 milljónir tonna af smjöri, ‘en árið 1958 var magnið 2,54 millj. tonn. Með- al' þessara 17 landa eru Dan- mörk, Finnland, Noregur og Svíþjóð. Einu löndin sem veru ' lega höfðu aukið smjörfram- leiðslu sína voru Ástralía og Vestur-Þýzkaland, en sam- drátturinn var mestur í Banda ríkjunum, Hollandi og Frakk- landi. Af skýrslunni er ljóst, að írar eru mestu smjörætur heimsins. Þeir eta árlega 16,2 kg. af smjöri á hvern íbúa. Næst kemur Danmörk með 12,2 kg., síðan Svíþjóð og Belgía með 10,7 kg. hvort og Bretland með 9 kg. Næst á eftir 'Vestur-Þýzkalandi og Frakklandi kemur Sviss með 6,7 'kg. á hvern íbúa, síðan Holland með 5,7 kg. Nevzlan í Bandaríkjunum og Sovétríkj , unum er 3,8 kg. á íbúa, en í Ístlíu er hún aðeins 1,9 kg. á íbúa. 41. árg. — Miðvikudagur 18. maí 1960 — 111. tbl. DEMO- KRAIAR ÞRÍR háskólaprófessorar, sem undanfarin 12 ár hafa kannað styrkleika tveggja aðalflokkanna og afstöðu kjósenda til þeirra, spá því að Demókratar sigri í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í haust. Þremenningarnir eru allir prófessorar við Mich- igan-háskólann og birtast niðurstöður þeirra í nýút- kominni bók, sem nefnist „The American Voter“, (hinh bandáríski kjós- andi). Niðurstöður þeirra eru byggðar á nákvæmri athugun á úrslitum kosn- inganna 1948, 1952, 1954, 1956 og 1958. Þeir benda á, að Demó- kratar hafi haft 3:2 meiri- hluta meðal þjóðarinnar á þessum árum, enda þótt Eisenhower, frambjóð- andi Repúblíkana hafi unnið forsetakosningarn- ar 1952 og 1956. En Nix- on, varaforseti, sem er líklegasta forsetaefni Re- búblikana nú, er fyrst og fremst flokksmaður, nýt- ur álits í eigin flokki en lítiís metinn af Demókröt um. Eisenhower áftur á móti, höfðaði til stuðnings manna beggja flokkanna og vann því kosningarnar þvert ofan í það, sem styrkleiki flokks hans sagði til um. Vísindamennirnir telja, að sigur Eisenhowers þýði ekki, að Rebúblikanar vinni nú. WWWWWWMWWWWWWWWWWWWHWWWWWHWWWWVW öðrum löndum 14 AFRÍSKIR efnahags- fræðingar frá 10 löndum og landsvæðum hafa að undan- förnu verið á ferðalagi erlend- is og m.a. heimsótt Puerto Rico og Jamaica. Þaðan héldu þeir til Aðalstöðva Sameinuðu þjóðanna í New York, þar sem þeir tóku þátt í námskeiði fyr- ir opinbera embætlismenn í löndum Afríku. Ferðalagið er liður í tæknihjálp S.Þ. fyrir Afríku. í Puerto Rico skoðuðu Af- ríkumennirnir stálverk- smiðju, sem byggð var fyrir WWWWMWMWWMWWWWWV || Landslið og fblaðalið á ;; Laugardals- ;; vellinum 11. síðan er Íbróftasíðan nokkrum árum. Hún breytir nú árlega brotajárni í 20.000 tonn af stáli. Svo að segja öll lönd Afríku fyrir sunnan Sa- hara verða að flytja inn stál og stálvörur. Þess vegna er það merkilegt fyrir Afríkubúa að sjá hvernig þessi vandamál eru leyst á landsvæði eins og Puerto Rico. Danskur efnahagsfræðihg- ur, Carl M. Wright, sem starf- ar í efnabags- og félagsdeild Sameinuðu þjóðanna og stjórnar námskeiðunum fyrir Afríkubúa, segir, að heimsókn sem þessi færi hinum afrísku gestum lausn á vandamálum, sem þeir hafi kannski hingað til tali'ð óleysanleg. Hér er um að ræða eina tegund * tækni- hjálpar, sem er í því fólgin, að senda menn frá vanþróuð- um löndum til landa, sem nú eru á þróunarbraut. Sum þeirra eru aðeins nokkrum árum á undan ríkjum Afríku í efnahagsþróuninni. Afríkumennirnir voru frá þessum tíu löndum: Ghana, Guinea, Líberíu, Líbýu, Arab- íska sambandslýðveldinu, Brezka Sómalílandi, gæzlu- verndarsvæðinu Sómalílandi (undir ítalskri stjórn), Tógó- landi, Túnis og Eþíópíu. Koptinn reynist vel Nei, þetta er ekki stórslys — heldur æfing. Það er verið að reyna kopta við björgun úr 'brennandi flugvélarflaki, og í ljós kemur, að hann reynist ágæta vel í þeim efnum. Þetta gerist í Luton í Englandi. Kveikt hefur verið í gömlu flugvélarræskni og þar í hafður gervimaður 35 sekúndum eftir, að flugvélin hafði náð yfir flakið, var búið að bjarga honum út úr eldinum og níu mínút- um þar eftir var hann kominn á skurðarborðið í næsta sjúkrahúsi. <»„W«WlWiWIWWiMMMWWMMMWWIWMWW tWWWWW*WWWWWWWWWWWMWWWWMIi

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.