Alþýðublaðið - 08.06.1960, Page 1

Alþýðublaðið - 08.06.1960, Page 1
 KJARVAL ..SLÆR i' GEGN" í QSLQ MÁLVERKASÝNING Kjarv- als í Kunstnerens Hus í Oslo, hefur vakið mikla athygli og hrifningu. Á sýningunni eru 58 myndir, en aðeins tvær þeirra voru til sölu, og eru það hraun- myndir úr Bessastaðahrauni. — Myndirnar seldust strax. Listia- safn Norska ríkisins keypti aðra en hina keypti kunnur auðkýf- ingur og listaverkasafnari. — Önnur myndin fór á 4000 þús. norskar krónur, en hin á 5000 kr. norskar. Sýningin vor opnuð 2. júní s. 1. að viðstöddu miklu fjöl- menni, iþar á meðal margir kunn ustu málarar Noregs. Sýningin er sett upp í aðalsal hússins, og er þar á um 75 m. veggplássi. Á sýningunni eru nær eingöngu listaverk, se-m Kjarval á sjálf- ur, gamlar myndir, portrettar, fantasíur og nokkrar nýjar limdslagsmyndir. Eftir opnun sýningarinnar sat Kjarval boð hjá íslenzka sendiherranum í Oslo, Haraldi Guðmundssyni, en ihann er verndari sýningarinnar. Einnig héldu listamenn í Oslo Kjarvali glæsilega veizlu, og voru hon- um íluttar margar snjallar ræð ur. Listamaðurinn sjálfur þak'k- aði, og einnig sendiherrann, — Haraldur Guðmundsson fyrir íslands -hönd. Það var fyrir áeggjan norska sendiherrans hér, Bjarne Börde og menntamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar, að Kjarval þáði boðið um að halda sýninguna, og einiiig að koma þangað sjálf- ur. -ySj- ÞAR kom að því! Það er kominn lögregluvörður á Arn- arhól. Verkefni; 'að fjarlægja fullu kallana, sem spillt hafa friðnum á hólnum, Myndin af verði laganna var tekin í gær- dag. Yfir hann gnæfir fyrsti Reykvíkingurinn. Blessuð ÞAÐ ERU nærri tvö hundruð nemendur í skólagörðum Reykjavíkur í ár — og enn geta nokkrir komizt að. Skól- inn byrjaði 2. þ.m., Jón Pálsson (tómtsundaþátturinn m.m.) er verkstjóri og til aðstoðar honum fimm stúlkur. Skólinn starfar í Aldamótagörðunum og aldur ungra garðyrkju- fólksins er 10-13 ár. Hér er spáný Alþýðublaðsmynd af nokkrum stykkjum. Fre-gn til Alþýðublaðsins. Siglufirði í gær. MIKILL undirbúningur undir síldarvertíðina er nú hafinn hér. Er unnið að viðgerðum á síldar- plönunum og í síldar- verksmiðjunum. Líf og fjör er að færast yfir bæ- inn eins og alltaf þegar síldarvertíð fer í hönd. Ekki þora menn að spá neinu um afla í sumar. Mörg aflaleys- issumur hafa gert menn var- kára í þeim sökum. En þó eru menn hinir vonbeztu. FYRSTU BÁTARNIR NORÐUR UM HELGI. Talið er að fyrstu bátarnir komi norður um næstu helgi. Margir koma sjálfsagt um miðj- an mánuðinn og um 20. júní má búast við, að flestir bátanna verði komnir á miðin. J.M. Alþýðublaðið fékk þær upp- lýsingar á skrifstofu Baldurs Gunnarssonar útgerðarmanns í Reykjavík í gær, að Guðmund- ur Þórðarson mundu líklega halda norður um næstu helgi.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.