Alþýðublaðið - 08.06.1960, Side 2

Alþýðublaðið - 08.06.1960, Side 2
í'' 9 í \ .'I 1 ðrtgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúa*. ritstjómar: Sigvaldi HJáimarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14900—14902 — 14 903. Auglýsingasími: £4906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- Cata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3.00 eint. Njósnir á íslandi Nikita Krústsjov, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, sagði í ræðu í vikunni sem leið, að Rúss- ar njósnuðu ekki og afneituðu slíkum starfsaðferð- um með öllu. Hann kvað Rússa vera þjóð með siðferðiskennd á háu og göfugu stigi, og mundi það siðferðisstig verða ríkjandi um allan heim, Jpegar kommúnisminn hefði sigrað. Vonandi hefur áhöfninn á togaranum P-* 9013, sem um sama leyti var staddur undan Jökli, ekki verið svo önnum kafin við að mæla styrkleik og tíðni loranstöðvarinnar á Gufuskálum, að henni hafi ekki gefizt tími til að hlusta á þennan boð- skap foringja síns. Það verður erfitt að sannfæra fiskimanna- jþjóð um að fogarinn P-9013 hafi ekki verið að tijósna um radarstöðina á Straumnesfjalli og lor- ansíöðina á Gufuskálum. Það getur ekki verið til- viljun, að sömu dagana sáust rússneskir togarar áti fyrir St. Kilda í Suðureyjum. Þeir höfðu svo jaiikið við, að toga, (þar sem engin fiskimið voru), og héldu sig utan landhelgi. ‘ ísland er opið land, þar sem allir geta farið xerða sinna eftir vild, svo að njósnir virðast hér óþarfar. En meirihlutinn af „njósnum“ nútímans eru öflun upplýsinga um stjórnmál og einstakl- inga, landvarnir, samgöngur, framleiðslu og fleira. Það væri bamalegt að halda, að hér sé ekki æði- margt, sem íslendingum sjálfum kann að virðast títils virði, sem stórveldin vilja fá upplýsingar um. Það væri einnig barnalegt að halda, að hér hafi ekki verið stundaðar beinar og óbeinar „njósn- ír“ í svo stórum stíl, sem erlend ríki telja nauð- /jynlegt og með þeirri tækni, sem þau telja þurfa.. Njósnir rússneska togarans sýna íslendingum, hversu ófullkomin strandgæzla okkar er, þrátt fyr- tr góð störf þeirra, sem þar eru, og verulega aukn- ingu gæzlunnar síðustu ár. Við höfum haft mikið fyrir útfærzlu landhelginnar, og nú varðar þjóð- arsóma, að hennar sé gætt á viðunandi hátt. Er íhugandi, hvort ekki ætti að bæta við 4—5 gæzlu- ílugvélum, en vitað er, að landhelgisgæzlan hefur undirbúið smíði nýs gæzluskips. Það er svo mál fyrir varnarliðið að íhuga hina hernaðarlegu hlið þessa máls. Vafalaust hefði þessi rússneski togari getað sprengt í loft upp báðar .stöðvarnar, sem hann yar að snuðra um, ef slíkar aðgerðir hefðu verið á dagskrá. H annes h o r n i n u ýjf Leiklist Agnars Þórð- arsonar. 'jij’ Stungið a kílum. ýý Tímahær boðskapur. Innflutningsskrif- stofan — In Memori- an. MIG furðar dálítið á |iví, hve lítið hefur verið skrifað um út- varpsleikrit Agnars Þórðarson- ar: Ekið fyrir stapann. — Gildi leikritsins Iiggur fyrst og fremst í því að það hittir í mark, ein- mitt nú. Það tekur til meðferðar ríkan þátt í Iífi og lifnaði manna i Reykavík og bregður upp mynd um af fjölskyldu- og viðskipta- Iífi, sem sannarlega er algengara hér en maður skyldi ætla. LEIKRITIÐ var vel gert og frammistaða leikaranna, og þá fyrst og fremst Ævars Kvaran, var með miklum ágætum. Ueik- ritið var þrungið ádeilu alveg eins og útvarpsleikrit Agnars í fyrra: Viíxlar með afföllum, — Hann ræðst á snobbismann, tildr ið, býjífið og lausungina. Og hann ekki aðeins beinir vopnum sínum að þessum megingöllum í nútíma lífi okkar íslendinga heldur leiðir hann hlustandann á leiðarenda og sýnir hvert þetta leiðir okkur ef áfram heldur eins og verið hefur. ÉG VEIT, að víðast hvar í öðrum löndum hefði leikrit þetta vakið miklar umræður, en hér þegja menn þunnu hljóði. Er það vegna þess að gagnrýnendur ; taka starf sitt ekki alvarlega, eða 1 er það vegna þess, að þeir og aðr ir, sem skrifa í blöð séu andvíg- ir sjónarviðum skáldsins? — Ég vil þakka Agnar Þórðarsyni fyrir þessi ágætu leikrit. Þau hafa haft mikinn boðslcap að flytja. Hann hefur ekki hlífst við að fletta ofan af spillingunni, en um leið hefur hann beint hug okkar inn á betra og farsælla fíf- erni. INNFLUTNINGSSKRIFSTOF- AN hefur verið lögð niður. Það er ekki hægt að láta þann merk- isatburð fara svo fram hjá sér, að ekki sé minnst á hann. Nú hætta kaupsýslumenn og ferða- menn að standa í biðröðum á Skólavörðustíg 12, að sitja fyrir nefndarmönnum alls staðar þar sem líkur eru til að hægt sé að klófesta þá. Nú er allt þetta niður í Útvegsbanka og Lands- banka. ÞAÐ verður allt frjálsara. Það ferðamanni gjaldeyri fyrir allt að sjö þúsund króna. Það getur vel verið að ýmsum dugi það ekki. En margir, ég held flestir -— hafa ekki fengíð svo mikinn gjaldeyri á undanförnum árum og sú staðreynd hefur opnað möguleika fyrir okri á gjaldeyri á svörtum markaði. Mér er sagt — að svartur markaður með gjaldeyri sé úr sögunni. Hann fellur því í sömu gröfina og svindlið með uppbæturnar. Far vel, Frans! EN í SAMBANDI við allar þessar breytingar vil ég segja þetta: Að mínu áliti er hér að eins um tilraun að ræða til þess að koma einhverju skikki á fjár- mál okkar og efnahagsmál yfir- leitt. En reynslan sjálf á eftir að sanna það hvort tilraunin tekst eða ekki. Það er víst, að stefnt er í rétta átt, en hvort friður fæst til þess að láta skipulagið þróast á eðlilegan hátt, er allt annað mál.. ÞESSU ræður þjóðin sjálf, — allur almenningur. Og ef hann bregður fæti fyrir tilraunina get KAUPUM hreinar ullar- ur hann engan um sakað nemat sjálfan sig. En hann hefur verið misvirtur á umliðnum árum. —- Heldur hann því áfram? Hefui) hann ekkert vitkast? Hannes á horninu. Everest BALÐURSGOTU 30. Framhald nf 16. síðu. ] lögu við norðurhryggxnn sjálfan og ætlað að gangá eftir honum til tindsins. ÞaíS hefur verið talið erfiðara og næðingssamara en fara inn- anvert við kámbinn framatt í hlíðinni. Þá leið völdu þeil Norton og Somerwell nokkr- um dögum áður og einnig Smythe og Shipton oó fl. I seinni leiðöngrum á norður- hlíðinni. Því verður að bæta við, að í leiðangrinum 1933 fannst hakastafur í bergflá- anum um 20 metrum neðatt við kambinn og um 50 m, austan við Fyrsta stallinn, Sá stafur hlaut að tilheyra Mallory og Irvine. Mörgum þykir líklegt að þarna hafi slys'ð orðið. Kunnugir hafa gert sér þá hugmynd að Mal- lory hafi ákveðið, að þeir skyldu ganga í vað, af þvl að hann vildi gefa félaga sítt um þann siðferðilega stuðn- ing, sem því fylgdi að vera S vað með reyndari manni. Hins vegar er talið varhuga- vert að ganga í vað í berg- fláunum norðan í hákambi Everest. Síðan getur verið, að Irvine liafi misst fótanna, þegar svo stóð á að Mallory gat ekki náð sér í neina styrktarfestu, og hafi hinn óreyndi ofurhugi þannig hrifið hann með sér fram a£ lxengifluginu. 1 Jarðarför móður minnar, INGIRÍÐAR JÓHANNESDÓTTUR, Laugavegi 142, fer fram frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 9. júní kl. 3 e. m, Blóm vinsamlegast afþökkuð. F. h. vandamanna. | Ásgeir Sigurjónsson. Móðir mín, j GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR, verður jarðsett frá ísafjarðarkirkju næ!stkomand,i föstudlag þann 10. þ. m. kl. 2 eftir hádegi. Minningarathöfn verður haldin í dag þann 8. þ. m. í Dóm- kirkjunni kl. 11 fyrir hádegi. Fyrir hönd aðstandenda. j: Björg Jónasdóttir. oia I0REGIÐ VERÐUR Á FÖSTUDAG. 1.055 vinningar að upphæð 1.355.000 krónur, Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja. 1 HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS. 8.' júnf 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.