Alþýðublaðið - 08.06.1960, Blaðsíða 3
LAUGARDAGINN fyrir hvíta-
sunnu rákust þrír drengir á
skellinöðrum á bifreiS á Hjalla-
vegi í Langholtshverfi. Þeir
slösuðust allir meira og minna
við áreksturinn. Tveir þeirra
voru fluttir á sjúkrahús, og hef
ur annar þeirra ekki komið til
meðvitundar á fjórða sólar-
hring.
Drengirnir voru á tveim
skellinöðrum. Á annarri var
Hallgrímur Pétursson, 14 ára,
Balbohverfi 7, og Agnar Árna-
son, 12 ára, Skipasundi 5. Hall-
grímur ók. Á hinni skellinöðr-
unni var Grettir K. Jóhannsson,
13 ára, Balbohverfi 9.
Drenginir hentust í götuna
eftir áreksturinn, þar sem þeir
lágu ósjálfbjarga þar til sjúkra-
bifreið kom á staðinn. Einn
drengjanna mun hafa kastazt á
framrúðu bifreiðarinnar, sem
brotnaði. 'Við það meiddist öku-
maður hennar nokkuð.
Við rannsókn á slysavarðstof
unni kom í ljós, að Hallgrímur
hafði tábrotnað og skrámazt.
Hann fékk að fara heim til sín.
Þeir Agnar og Grettir höfðu
fengið höfuðáverka og voru
Herbúðaltf
HVAÐ í ósköpunum er
þetta? Brezki liðþjálfinn
hefur upplifað sitt af
hverju um dagana, en iþað ^
hefur aldrei áður átt fyrir
honum lað liggja að mæta
þremur austurlenzkum
þokkadísum í miðjum her-
búðunum. Skýring: Þær
eru í kvennasveit herdeild
arinnar og eru að fara að
leika í revýunni „Fall-
byssudrunurnar“, sem
færð var upp í herstöðinni.
fluttir á Landakotsspítala. Mun
Grettir hafa höfuðkúpubrotnað.
Hann hafði ekki komið til með-
vitundar í gærkvöldi, allt frá
hádegi sl. laugardag.
Skellinöðrurnar skemmdust
allar mikið og bifreiðin tölu-
vert. Drengirnir óku á fleygi-
ferð á vinstri hlið hennar. Lág-
marksaldur til aksturs á svona
hljólum eru 15 ár. Allir dreng-
irnir voru undir þeim aldri.
Önnur skellinaðran var óskrá-
sett.
WWWMWMWtMWWMMWMM
Sigga Vigga
,.JÆJA! SÝNIST ÞÉR ÞAU LEKA?"
Fregn til Alþýðublaðsins.
Siglufirði í gær.
VARÐSKIPIÐ Ægir
kom hingað inn í gær-
morgun úr rannsóknar-
leiðangri sínum. Hafði
skipið rannsakað svæðið
frá Reykjanesi að Kol-
beinsey. Mikið þörunga-
magn fannst í sjónum og
góð skilyrði fyrir rauð-
átu en hún skapár aftur á
móti góð skilyrði fyrir
síldina.
Hér fara á eftir ihelztu atriði
úr skýrslu um för Ægis:
Skiþið fór allt að 160 sjómíl-
ur frá landi og allt út að ísnum
út af Vestfjörðum. Reyndist ís-
inn þar vera lengra undan landi
en undanfarin 5 ár eða 60-70
sjómílur út af norðanverðum
Vestfjörðum. Úrvinnslu gagna
þeirra, er safnað, var er ekki
að fullu lokið en þetta 'hefur þó
komiðfram:
Hitastig sjávar er hærra á
fyrrgreindu svæði en meðalhita
stigið hefur verið s. 1. 10 ár. Er
það svipað og það var 1957. —
Þörungamagn í sjónum reynd-
ist meira en í fyrra en út af
Faxaflóa og Breiðafirði var
rauðátumagn í meðaLLagi. Út
af Vestfjörðum og vestanverðu
Norðurlandi var talsvert af
rauðátu. Athuganir á aldurs-
dreifingu rauðátu sýna, að að-
allega er um að ræða fullvaxin
dýr, sem munu hrygna næstu
2-3 vikur_ Mikinn hluta rann-
sóknartímans var tíð erfið og
því slæm skilyrði til síldarleit-
ar.
Hvergi fannst verulegt shd-
Ffamhald á bls. 7.
I
sinn yfir
Á ANNAN í hvítasunnu synti
Eyjólfur Jónsson sundkappi í
30. sinn yfir Skerjafjörð. Synti
hann á 1 klst. og 13 mín. En
daginn áður, hvítasunnudag,
hafði hann synt á 54 mín. og
er það mettími hans.
í tilefni áf 30. sundi Eyjólfs
yfir Skerjafjörð fóru nokkrir
vinir hans og samherjar með
honum í tveimur vélbátum, þar
á meðal forseti ÍSÍ, Benedikt
Waage, formaður SSÍ, Erlingur
Pálsson, formaður Þróttar, og
Pétur Eiríksson, sundkappi.
Þegar Eyjólfur steig á land
tóku forsetahjónin á móti sund-
kappanum og buðu honum á-
samt fylgdarliði að Bessastöð-
um til kaffidrykkju.
Eins og áður hefur komið
fram í blöðum synti Eyjólfur
Viðeyjarsund 30. maí sl. og var
það í 5. sinn, að hann synti
slíkt sund. 1. júní synti hann'
aftur Viðeyjarsund. Eyjólfur er
nú í ágætri æfingu og hyggst
leysa fleiri sundafrek af hendi
í sumar. Þá mun hann og reyna
fyrir haustið að synda yfir
Ermarsund, en áður hefur hann
gert tvær tilraunir til þess.
Alþýðublaðið — ^8. júní 1960 J