Alþýðublaðið - 15.06.1960, Page 2

Alþýðublaðið - 15.06.1960, Page 2
 =— Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. <— Fulltrúax Cfitstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: Djörgvin Guðmundsson. — Símar: 14900 — 14902-^-14 903. Auglýsingasími: 314906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- Gata 8—10. — Askriftargjald: kr. 45.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Jtgefandi: Alþýðuflokkurinn. — Hverjir græðap í HVERJIR GRÆÐA á nýja efnahagskerfinu, j nem ríkisstjórnin hefur innleitt? Þannig spyrja j menn, ekki sízt er þeir lesa í blöðum stjórnarand- ] stæðinga um væntanlegan stórgróða auðmanna í I- þessu „óhefta auðvaldsskipulagi”. Við skulum kanna málið sjálf og þá íhuga eft- i í rtalin atriði: | 1) Með uppbótakerfinu tryggði ríkisvaldið viss- um aðilum acorgróða á útgerð. í samninga- makki útgerðarmanna og stjórnarvalda var á- vallt samið um að miða við meiri eða minni j skussa — og fengu þá allir sem gerðu betur því meiri uppbætur og tryggan gróða. i Með nýja kerfinu er engum tryggður slíkur gróði. Þeir, sem gera út á hagkvæman hátt og !f ná góðum árangri, njóta þess í góðri afkomu og geta vafalaust grætt. Skussarnir eru ekki rík- istryggðir lengur. Þeir verða að fara á hausinn, ef þeir geta ekki bjargað sér, og það er án efa j hagkvæmt fynr þjóðarbúið. I 0 Með liaftakerfinu var þeim aðilum í verzlun- inni tryggður meiri eða minni gróði, sem höfðu aðstöðu til að fá innflutningsleyfi, hvort sem þeir verzluðu hagkvæmt eða ekki. Með verzlunarfrelsinu 2r gort ráð fyrir, að þeir fái viðskiptin sem geta boðið fólkinu bezta vöru fyrir sanngjarnast verð. Þetta er hagstætt fyrir einstaklinga og heildina. Margt fleira mætti benda á. Það fylgir nýja j cerfinu, að vextir hafa verið hækkaðir, svo að stór í 'ýrirtæki í útgerð, fiskvinnslu, útflutningi og inn- i Jutningi verða að greiða tugum milljóna meira i ýrir lánsfé en áður. Sennilega er vaxtahækkunin. . ekki minna álag á þessa aðila en stóreignaskattuir I nn, svo því fer fjarri að sérstaklega sé að þeim : hluð, Hafa þeir borið sig hvað verst yfir kerfis- j' breytingunni, sem höfðu tryggt sér öruggastan j. gróða og aðstöðu í styrkja- og haftafarganinu áður j’ :yrr. j, Það var kominn tími til að stokka spilin og end j' urskoða allt kerfið. Þeir sem sýna hagkvæmastan ' -’ekstur í framleiðslu eða verzlun eiga að njóta þess. ; -Hinir, sem lifðu í skjóli hafta og uppbóta, verða að víkja. f HIMIMHMIIIHIM 1 Laus sfaða Hér við embættið er laus til umsóknar staða fulltrúa I. stigs. Laun samkvæmt launalögum. Umsóknir sendist fyrir 1. júlí n.k. Bæjarfógetinn á ísafirði 14. júní 1960. fyrir árslok AÐALFUNDUR Eimskipafé- fötsudaginn 3. þ. m. Formaður félagsstjórnar, Einar B. Guð- mundsson hæstaréttarlögmað- ur, skýrði frá hag félagsins og framkvæmdum á liðnu ári, en gjaldkeri félagsstjórnar, Birgir Kjaran hagfræðingur, las upp reikninga félagsins og skýrði þá. Árið 1959 voru alls 13 skip í förum á vegum féalgsins, og fóru þau samtals 91 ferð milli íslands og útlanda og 68 ferðir frá Reykjavík út á land. Þar af voru 4 leiguskip (3 íslenzk og 1 erlent), er fóru 5 ferðir milli landa og 2 ferðir frá Reykja- vík út á land. Ferðum skipanna var hagað á svipaðan hátt og undanfarin ár og aðaláherzlan lögð á að sinna flutningsþörfum jalnt útflytj- enda og innflytjenda, jafnframt þvf sem reynt var að hagnýta skiprúmið svo vel sem mögu- legt var, að því er snertir hlut- falli milli burðarmagns og rúm- máls skipanna, en á því veltur mjög um rekstrarafkomu skip- anna. áður hefur komið fram í frétt- um, að samið hefur verið við Álborg Værft í Danmörlcu um smíð-i á sams konar skipi og m.s. Selfoss (systurskipi) tU afhend- ingar í árslok 1960. Kjölur skips ins var lagður 30. sept. 1959, og með því að smíði skipsins hefur miðað svo vel áfram, að því mun verða hleypt af stokkunum 21. þ. m., er allt útlit fyrir að af- hending skipsins fari fram í árslok, eins og fyrirhugað var. Samþykkt var að greiða hlut höfum 10% arð af hlutafé þeirra. Úr stjórn félagsins áttu að ganga þeir Einar B. Guð- mundsson, Birgir Kjaran, Rich- ard Thors og Grettir Eggerts- son, Winnipeg, en voru allir end urkjörnir. Endurskoðandi' var endurkjörinn Ari O. Thorlacius. — Fundarstjóri var Lárus Jóh- annesson hæstarréttardómari, en ritari Tómas Jónsson borgar- lögmaður. Nemendasam- hand kvenna- skólans NEMENDASAMBAND Kvennaskólans í Reykjavík t efndi til samky mis að Hótel Borg miðvikudasinn 26. maí S« 1. og bauð til þess öllum þeim nemendum, sem útskrifuðust i vor. i Starfsemi Nemendasam- bandsins hefur legið niðri unií nokkurt skeið, en í vor var hún skipulögð að nýju undir stjórn frú Ástu Björnsdóttur, sera kiörin var formaður. Húií stýrði hófi þessu og bauð alla velkomna, en frú Guðrún P. Helgadóttir, forstöðukona Kvennaskólans ávarpaði nýlið- ana. Auk þess fluttu ávörp frú Sigríður J. Magnússon, frú Mat grét Ásgeirsdóttir, frk. Erla' Ágústsdóttir og frk. Elín Ingv- arsdóttir, sem þakkaði boðið fyrir hönd hinna nýútskrifuðu nemenda. Loks mælti sr. Bjarni Jóns- son, vígslubiskup, nokkur orð af þeirri alvöru og gamansemi, sem honum er sérstaklega lag- in, en hann var kennari viS skólann. og hefur átt sæti í skólanefnd síðan árið 1914. Hannes á h o r n i n u •fe Fara skemmdarverk í görðum aftur í vöxt? Geðsjúkdómur undir- rótin. Auglýst eftir sjálfobða liðum til varnar. FRÁSÖGN Hafliða Jónssonar, garðyrkjuráðunauts bæjarins um vaxandi skemmdarverk í görðum á blómabeðum og trjá- gróðri, hlýtur að vekja athygli og hryggð. — Slík skemmdar- verk eru einn skírasti votturinn um hörmulegt andlegt ástand hjá þeim, sem að þessum verk- um standa. Ég minnist þess, að það var næstum jafn snemma, að ég fór að skrifa þessa pistla mína og að skriður komst á það, að auka ræktun blóma og trjáa í borginni. UM SAMA LEYTI var ráðinn fyrsti garðyrkjuráðunautur að bænum. Hann hófst þegar handa af miklum dugnaði þó að hans nyti ekki lengi við, enda held ég að sá maður þurfi að hafa mikla þolinmæði til að bera, sem berst við skemmdarverk á við- kvæmum gróðri. Garðyrkjuráðu nauturinn byrjaði með því að planta trjám á Arnarhól, en þau voru brotin niður eða slitin upp ' jafnóðum og þau voru sett nið- ur. ÞÁ BAÐ ég hann að gefast aldrei upp. Vitanlega væri þetta j eins og kleppsvinna og dýrt væri ! það, að setja niður tré á hverju vori ár eftir ár, en ef ekki væri haldið áfram viðstöðulaust — myndu vandalarnir telja sig hafa unnið sigur, Ég hélt því þá fram, að fyrsta skijyrðið fyrir því að geta sigrast á skemmdarstarf- seminni væri það. að gefast aldr ei upp fyrir henni. ÉG VEIT, að skemmdarverk hafa verið framin á hverju ári, bæði í görðum — við heimili fólks og eins á opinberum görð- um, en ég hélt, vegna þess að þessi prýði þorgarinnar og yndi bæjarbúa vex stöðugt, að búið væri að mestu að sígrast á bess- um leiða geðsjúkdómi. Nú segir garðyrkjuráðunautur að sjúk- dómurinn fari í vöxt og aldrei hafi verið skemmt eins mikið og nú. ÞETTA eru hörmulega fréttir Það er engum blöðum um það að fletta, að þeir, sem þessi skemmdarverk fremja eru and- lega sjúkir. Þetta fólk, hvort sem um unglinga er að ræða eða fullorðið fólk, er óánægt með sjálft sig, það þjáist af minni- máttarkennd og reynir að hefja sig með því að spilla góðum verkum, sem aðrir vinna. — Vel má líka vera að hér séu að verki drykkj usjúklingar, sem aðallega vinna verk aín um nætur. LÖGREGLAN leitar að brennu. vörgum þegar grunur leikur á, að kveikt hafi verið í. Ég vií láta leggja skemmdir á gróðri að jöfnu við athæfi brennu- varga, Ég veit ekki hvort lög hafa nokkur fyrirmæli urn skemmdir á gróðri, ef svo er ekki þá þurfa ákvæði um það að komast inn í þau. EKKERT er fegurra á vori og sumri en blóma- og trjágróður við heimili borgaranna og í görð um bæjarfélagsins. Hann gefur okkur hlýju og hann gerir okk- ur lífið léttara um leið og hann lyftir huganum svo að við verð- um betri þjóðfélagsþegnar. Við verðum bví að gerast sjálfboða- liðar í vörn fyrir þennan gim- stein okkar. Með því leggjum við líka okkar skerf fram að auka fegurðina og hlýleikann í Reykjavík. Hannes á horninu. Leiðrétting ÞAU mistök urðu í greini minni í blaðinu í g-æ-r um óper- una Rigoletto, að nafn Guðrún- ar Þorsteinsdóttur, sem söng Givönnu, fóstru Gildu féll nið- ur. Guðrún syngur hlutverk sitt af smekkvísi og með fal- legri' altrödd. — Er hún hér með beðin afsökunar á mistökunj þessum. — G.G. j £ 15. júní 1960 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.