Alþýðublaðið - 22.06.1960, Page 11
Brynjar beztur
í Stykkishólmi
FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT var háð
í Stykkishólmi 17. júní og náð-
ist góður árangur í mörgum
greinum.
HELZTU ÚRSLIT:
100 m. hlaup:
Brynjar Jenson, 11,5
Jón Lárusson, 11,9
Karl Torfason, 12,1
800 m hlaup:
Hannes Gunn.ss, 2:21,3
Hástökk:
Karl Torfason, 1,56
Jón E Lárusson, 1,51
Gíslí Kristjánsson, 1,51
Langstökk:
Brynjar Jenson, 5,91
Karl Torfason, 5,81
Jón Lárusson, 5,66
Þrístökk:
Brynjar Jenson, 12,58
Karl Torfason, 12,26
Jón E. Lárusson, 11,69
Kúluvarp:
Brynjar Jenson, 13,50
Kringlukast:
Brynjar Jenson, 40,06
Spjótkast:
Hildim. Björnss., 50,20
Kristinn Zimsen, 44,59
100 m. hlaup kvenna:
Svala Lárusdóttir, 14,3
Hástökk kvenna:
Svala Lárusdóttir, 1,31
Langstökk kvenna:
Svala Lárusdóttir, 4,08
17 júní bikarinn vann að
þessu sinni Brynjar Jenson, en
hann átti bezta afrek mótsins,
11,5 sek. í 100 m hlaupi, sem
gefur 737 stig.
Nokkrir gestir tóku þátt í mót
inu og náðu góðum árangri —
Erlingur Jóahnnesson, ÍM, varp-
aði kúlunni 13,89 m. og kringl-
unni 41,66 m. Svandís Halls-
dóttir Umf. Eldborg hljóp 100 m.
á mjög góðum tíma 13,9 sek. Hún
, stökk einnig 4,30 m. í langstökki
i — Elísabet Halldórsdóttir 4,11
| og Helga Sveinbjörnsdóttir 4,06.
í keppni íþróttavikunnar, 19.
jún!í, náði Brynjar Jenson 42,67
m. í kringlukasti Næsta frjáls-
íþróttamót á Snæfellsnesi verð-
ur Héraðsmót HSH að Görðum
i Staðarsveit 10. júlí.
ÚRSLIT frjálsíþróttanióts i
Porsgrunn, Noregi nýl.: 110 m
grindahlaup Ancireas Larsen
Nyhus, 15,5, 100 m. Bunæs, 10,7
(Bunæs fékk 10,6 í undanrás-
um) annar varð Lövaas á 10,9
sek. — Hástökk Gunnar Husby
1,95 (1,98 í aukastökki). Kúlu-
varp: Stein Haugen, 15,53 m.,
Björn Andersen, 15,45 m.
Sleggjukast: Strandli 60,10,
Krogh 59,73 m. 3000 m. hindr-
unarhlaup: Næss 9:10,4, Dahl,
9:16,6 mín. 1500 m. Stamnes,
4:00,0 og Sletten, 4:02,5 mín.
Stangarstökk; Larsen Nyhus,
4,00 m. 800 m.: Bentzon, 1:54,4,
Borgen, 1:55,1. f Osló stökk
Geir Husby, 7,19 í langstökki.
Patter-
son vann
ÚRSLIT urðu þau í keppni
Ingemars Johansson, heims-
me'stara í þungavigt og Floyd
Patterson, fyrrverandi heims-
meistara í fyrrinótt, að sá síð-
arnefndi sigraði næsta auðveld
lega á rothöggi í fimmtu lotu.
Var Patterson í sókn allan tím-
ann og var varla hægt að segja,
að Ingemar kæmj höggi á and-
stæðing sinn utan einu sinni. —
Þetta er í fyrsta sinn, sem
heimsmeistari endurheimtir tit
il sinn í þungavigt eftir að h’afa
tapað honum, en Ingemar sigr-
aði Patterson á rothöggi í
keppni þeirra fyrir einu ári.
FRÁBÆR árangur náðist á
frjálsíþróttamóti í Köln nýlega,
er Hary hljóp 100 m- á 10,2 sek.
Karl Kaufmann fékk 45,7 í 400
m. — nýtt Evrópumet, Kinder
fékk 46,1 sek. Janz 50,6 í 400
m. grind, þýzkt met. Paul Schm
idt sigraði í 800 m á 1:46,5 mín.
Wágli, Sviss, 1:47,3 mín.
Á MÓTI í Prag sigraði Evr-
ópumeistarinn Schmidt, Pól-
landi í þrístökki með 16,53 m,
sem er bezti árangur, sem náðst
hefur í greininni á þessu ári og
pólskt met. — í 1500 m, hlaupi
varð Vanms, Rúmeníu fyrstur á
nýju rúmensku meti 3:40,2 mín.
Annar Grodotzki, A.-Þýzkal.,
á 3:41,7 mín., Momotkov, Sovét.
3:42,7 og fjórði fyrrverandi
1 3:44,1 mín.
Ekki vitum við úr hvaða leik þessi mynd er, en orsökin til þess
að við birtum hana cr, að hún hl'aut 1. verðlaun í samkeppni,
sem Encyclopedia Britanniea efndi til um beztu knatíspyrnu-
myndina í Englandi á sl. ári.
Tölfræbi á að sanna
r
ágæti flokksins
HONG KONG, júní, (UPI). —
Tölfræðingarnir í Kína eiga
ekki sjö dagana sæla um þess-
ar mundir. Þeim hefur verið
skipað að semja hagskýrslur,
sem sanni ágæti forustu kom-
múnistaflokksins. En nú hef-
ur allt þeirra starf verið van-
þakkað og því lýst yfir, að
það sé rangt í meginatriðum.
Síðastliðið haust skrifaði
forstjóri kínversku hagstof-
unnar í Peking, að tölfræðin
ætti að sanna „ágæti flokks-
línunnar“. Hann kvað hana
„eiga að sýna hina miklu
sigra, sem unnist hefðu“ og
benti á, að starf hagfræðing-
anna árlð 1958 hefði verið
mjög gott.
En í ágústmánuði, áður en
greinin birtist, hafði mið-
stjórn kommúnistaflokksins
tekið aðra afstöðu. Hún komst
að þeirri niðurstöðu, að fram-
leiðslutölur ársi'ns 1958 væru
ónákvæmar og allt að því fals
aðar og sömuleiðis tölurnar
fyrir árið 1959. Hugmynd for-
stjórans virtist vera sú, að
ekki ætti að styðjast við kaíd-
ar staðreyndir nema því að-
eins, að það hentaði flokkn-
um. Hann sagði í grein sinmi,
að „vinna yrði að því að sam-
ræma tölfræðilegar niðurstöð-
ur pólitískri stefnu flokksins“.
Þetta er erfitt verk fyrir heið-
arlegan hagfræðing og töl-
fræðing, ef ekki ómögulegt.
Til þess þarf að hagræða íöl-
um þannig, að þær henti kröf-
um flokksins um efnahags-
þróunina.
Miðstjórn kommúnista-
flokksins tók skýrt fram, að
það væri algerlega rangt að
gera mikið úr ýmsu, sem mið-
ur færi, heldur eigi að leggja
höfuðáherzlu á að auglýsa það
sem vel tekst. En samíímis
því að tölfræðingarnir verða
að láta allt líta vel út á papp-
írnum, þá vill flokksforustan
fá nákvæmar upplýsingar um
hið raunverulega ástand cg
allt þetta vefst fyrir töífrsað-
ingunum.
Vélsetjari óskast
Alþýðublaðið
Sumarvinna á skrifsfofu. j
Pilfur eða sfúlka
t '
sem unnið hafa á skrifstofu, óskast til aS
leysa af í sumarfríum 2%—3 mánuði.
Tilboð er greini aldur og fyrri vinnuveit-
anda, sendist afgreiðslu blaðsins merkt:
„Sumar 1960“.
Tifboð óskasf
í Pick-up Veapon og vörubifreiðir er verða
til sýnis í Rauðarárporti miðvikudaginn 22.
þ. m. kl. 1—3. Tilboðin verða opnuð í skrif-
stofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunefnd varnarliðseigna.
Alþýðublaðið — 22. júní 1960 J