Alþýðublaðið - 30.06.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 30.06.1960, Blaðsíða 3
ikil síld til Seyðisfjarbar Hætt að rjúfa simtöl við Hafnarfjörð SJÁLFVIRKT síma- samband verður opnað að kvöldi hins 1. júlí nk. á milli Keflavíkur ann- ars vegar og Reykjavík- ur og Hafnarfjarðar hins vegar. Þann dag verður hætt að rjúfa símtöl á milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur eftir ákveð- inn tíma, og reiknast sím tölin sem einföld innan'- hæjarsímtöl, án tillits til samtalslengdar. Frá þessu var skýrt á blaða- rnannafundi, sem póst- og síma málastjórnin hélt í gærdag. Þar var ennfremur upplýst, að opnaðar verði sjálfvirkar sím- stöðvar í Gerðum og Sandgerði ag kvöldi 2. júlí, með sjálf- virku sambandi sín á milli og við Keflavík, Reykjavík og Hafnarfjörð. Símnotendur þar fá ný símanúmer. Þá verður einnig opnuð sjálfvirk símstöð í Grindavík seint í júlí. Ný við- bótarsímaskrá hefur verið gef- in út. Með nýju sjálfvirku lang- línuafgreiðslunni milli Kefla- víkur og Reykjavíkur er í fyrsta skipti innleiddur hér sjálfvirkur reikningur eftir samtalstíma. Pöntun hefur ver- ið gerð á sjálfvirkum útbún- aði til þess að tengja Vest- mannaeyjar, Akranes og Akur- eyri við þetta kerfi. Símtölin verða þannig ó- dýrari. Stutt langlínusamtöl kosta ekki meira en innanbæj- arsímtöl. Langlínusímtöl geta jafnvel orðið ókeypis hjá þeim, sem ekki hafa yfirsímtöl (fleiri en 600 innanbæjarsímtöl á árs- fjórðungi), en annars koma þau fram í yfirsímtalsreikningi innanbæjarsímtala. í sjálfvirkum símtölum milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar annars vegar og Keflavíkur, Gerða, Sandgerðis og Grinda- víkur hins vegar kosta hverjar 12 sek. 70 aura eða eða mínút- an kr. 3,50, en ekkert hjá þeim, sem ekki hafa yfirsímtöl. Reykvíkingar og Hafnfirðing- ar þurfa fyrst að velja töluna 92 og síðan símanúmer notand- ans í Keflavík, Gerðum, Sand- gerði og Grindavík til þess að fá sjálfvirkt samband þangað, en hinir síðarnefndu þurfa fyrst að velja töluna 91 til þess að fá samband við notendur í Reykjavík og Hafnarfirði. Þetta er hægt að sjá nánar á fyrstu blaðsíðu hinnar nýju viðbótar- símaskrár. Áætlun hefur verið samin fyrir allt landið um tvo fyrstu tölustafina, sem velja þarf í framtíðinni, til þess að komast í sjálfvirkt símasamband við notendur á hlutaðeigandi svæði. Myndin, sem fylgir fréttinni, sýnir glögglega, hvernig land- inu verður skipt niður í svæði, þegar komið verður á sjálfvirkt símasamband um allt landið. ELDS varð vart í gamla : skólahúsinu , á Eiðum í gærmorgun um kl. 11. Beðið var um hjálp og fjöldi fólks kom til að taka þátt í björgunar- störfunum. Ekki tókst þó að hjarga skólahúsinu, sem eyðilagðist í eldin- um. Útilokað er, að kennsla geti farið fram í Eiðaskóla í vetur. Eldsins varð vart um klukk- an 11 fyrir hádegi. Við hjálp- Fregn til Alþýðublaðsins. Seyðisfirði í gær. ÓHEMJU AFLÍ hefur borizt hingað í dag, enda eru flest skipin nú á aust -ursvæðinu og hafa veitt vel. Eru allar þrær að fyllast hér, en bræðslan byrjar í kvöld. í gær komu þessi skip með síld:: Bergur VE 619, Ársæll Sigurðsson 768, Seley 761, GuS- björg 676, Víðir SU 467, Fjarða- klettur GK 631, Álftanes GK 400, Kári Sólmundarson 600, í dag komu þessi skip með síld: Gulltoppur 400, Hilmir 750, Sig uilbjörg 650, Baldvin Þorvalds- son 650, Hannes Hafstein 600, Sunnutindur 600, Hafnarey 750, Stefán Þór 550, Guðbjörg NK 350, Farsæll 600, Hálfirðingur 700, Hafbjörg 650, Suðurey 500, Pétur Jónsson 670, Svanur RE 800, Stefán Árnason 650, Freyja GK 550, Akurey 330, Aðalbjörg 250. RANNSÓKNARSKIPIN Á FÖRUM. Rannsóknarskipin er hér hafa verið undanfarið og borið sam- an bækur sínar eru nú á for- Leiðrétting ÞAU leiðinlegu mistök urðu í frásögn blaðsins af komu hins nýja skips Stuðlabergs til Seyð isfjarðar, að ranglega var far- ið með föðurnafn bræðranna Jóns og Kristjáns, sem eru tveir af eigendum skipsins. Þeir eru Jörundssynir. arbeiðnina dreif að múg og margmenni. Menn frá Egils- stöðum komu á staðinn um klukkan 11.15 og var þá eldur kominn upp um þakið og farið að loga út um gluggana. Slökkviliðið frá Seyðisfirði kom á staðinn mjög fljótt og eins bíll með dælu frá Reyðar- firði. Einnig kom margt fólk úr héraðinu og frá Egilsstöðum. Þrátt fyrir ötullegar björgun- artilraunir var ekki hægt að bjarga gamla skólahúsinu og eyðilagðist það í eldinuim. Geysi mikinn reyk lagði um sveitina. Það heppnaðist að bjarga sundlauginni og leikfimishús- um. Hafði ríkistsjórnin veizlu fyrir áhafnir skipanna og tókst hún vel. Niðurstaðan af rann- sóknum skipanna er m. a. sú, að sjórinn sé nú mun heitari efst en áður en það stuðlar að því að síldin komi upp, þar eð hún leit- ar í heita sjóinn. Skýrslan um rannsóknirnar verður birt á morgun. Hópur sam- vinnufrömuða í SAMBANDl við aðalfund Nordisk Andelsforbund, sem haldinn er í Reykjavík í dag, er hingað kominn stór hópur samvinnufrömuða á Norðurlönd um. _____________ Heimsókn Gylfa til Sovétríkjanna FRAVDA skýrði frá því 22. þ. m. að Gylfi Þ. Gíslason mennta- og viðskiptamálaráð- ’herra íslands, sem kom í heim- sókn til Sovétríkjanna í boði sovézka mennatmálaráðuneytis ins, væri nú í Moskvu. Hinn 21. júní tók mennta- málaráðherra Sovétríkjanna —• frú E. A. Furzeva á móti hon- um. Samtal þeirra var alúðlegt og vingjarnlegt. Hinum íslenzka gesti mun gef inn kostur á að kynnast mennta lífi Sovétríkjanna. Auk Moskvu mun hann heimsækja Lenin- grad .Tibilisi og Taskent. inu, en það skemmdist þó mikið af völdum vatns og elds. Þurfti að rjúfa þakið til þess að komast að eldi í því. Einnig tókst að koma í veg fyrir, að eldur kæmist í kirkjuna og smíðishús, sem þarna eru Framhald á 7. síSa. Hörður 49,6 Á FRJÁLS-íþróttamóti KR í gærkvöldi vann Hörður Haralds son bezta afrekið með því að hlaupa 400 m. á 49,6 sek. Val- björn tsökk 4,25 m. á stöng. —. Nánar á íþróttasíðu á morgun. Alþýðublaðið — 30. júní 1960 3 Skólahúsið á Eiðum eyðilagðist i eidi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.