Alþýðublaðið - 08.07.1960, Blaðsíða 14
Erindi Hagalíns
: Framhald af 4. síðu.
g:
ur eða sem svara mundi 500
krónum á kreppuárunum. Svo
er lagt fyrir fjögurra manna
nefnd, sem engar reglur eru
gefnar, að úthluta upphæð —
þar í heiðurslaun Gunnars og
Laxness — sem nemur um
það bil einni krónu af þúsundi
útgjalda á núgildandi fjárlög-
um, í stað fimm króna og sjö-
tíu aura á kreppuárunum, —
og henni er deilt milli 112
listamanna, en upphæðar
kreppuáranna nutu aðeins 65;
er sem sé hreytt f hvern ein-
stakling slöttum, sem svara
til frá ársleigu einnar góðrar
íbúðar og niður í andvirði eins
klæðskerasaumaðs fatnaðar.
Nakinn komst þú frá móður-
lífi, en þú skalt ekki nakinn
héðan fara! segja þing og
stjórn, — eða eins og kerling-
ín, sem hlutaði í sundur mygl-
aðan horsteinbít og hreytti í
krakka sína: Hérna, þarna, sá
ríki mann gaf ekki par!
Það hefur þegar verið rætt
og rifizt um úthlutunina síð-
ustu; — einn fékk minna en
hann átti skilið og annar
meira; þessi fékk ekkert, en
aftur á móti hinn, sem ekkert
hefði átt að fá, hann hlaut
sinn skerf; — en ég mun ekki
fara út í bá sálma, og sízt úr
bví að úthlutunarnefnd hafa
engar reglur verið settar og
svo vísdómlega eða hitt þó
heldur er hagað tölu nefndar-
manna, að þrjá fjórðu atkv.
þarf til samþykktar tillögu,
svo að enginn ábyrgur meiri-
hluti getur orðið til og hrossa-
kaup eru óhjákvæmileg, ef
fekki á allt að vera komið und-
ir hreinni tilviljun ... En ég
vil halla mér að öðru, því að
það tekur mig sárt sakir þjóð-
arsóma og vegna framtíðar
íslenzkrar menningar. Það eru
þá fyrst blöðin. Þorsteinn Er-
lingsson kvað fyrir hálfri öld:
Ritstiórar vorir guðs um geim
græða nú alla sálar hnjóta;
þeir geta um okkar andans
heim
áburðinn stöðugt látið fljóta;
Danskurinn hefur handa þeim
hlandforir, sem að aldrei
brjóta.
Hvað mundi hann þá hafa
kveðið nú? Engum mundi
geta dulizt, sem athugar blöð
fyrri áratuga, að minna hafi
þá verið leitað fanga í hinar
erlendu forir en nú, þegar
forheimskun og skrílmennska
eipa sína föstu starfsmenn
við hvert blað, sínar föstu síð
ur eða opnur, og menning og
list eru svo að segja utan-
garðs. Og mundi svo undar-
legt, þó að snurt væri? Hvers
Iconar ábyrgðarleysisaumingj-
ar og sorntunnusnuðrarar eru
þarna ráðandi? Er lýðræði
okkar komið út á þá braut, að
allt sé virt að vettugi, sem
þeim mönnum. körlum 02 kon
um, þykir nokkurs um vert,
sem einhver manndóms- og
menningarandi býr í brjósti,
en allt þyki til þess vinnandi
að tæla þá lengra og sökkva
þerm dýpra, sem ekki eru fær-
ir um — eða aldrei hefur ver-
ið kennt að sjá fótum sínum
forráð og aldrei hafa lært að
meta líf sitt og gáfur til nokk-
urrar samfélagslegrar ábyrgð-
ar?
Þetta ástand er út af fyrir
sig allalvarlegt íhugunarefni,
en þó verður það enn alvar-
legra, ef á það er litið m.eð þá
staðreynd í huga. að blöðin
eru þjónar þeirra manna, sem
setið hafa og sitja á þingi og
í stjórn; — þar eru blaðanna
húsbændur, húsbændur, sem
á seinustu árum hafa gert sig
bera að tómlæti í garð bók-
mennta og lista. Hafa þeir
kannski gleymt þeim og þörf-
um þeirra í öllu vafstrinu?
Sannarlega hefur þeim ekki
gefizt þess kostur: fyrrverandi
þingi og stiórn voru færð fyr-
ir því fyllstu rök, hvernig
komið væri um fiárveitingar
til íslenzkra listamanna — og
í vetur var gengið á fund f jár-
veitingarnefndar og henni
bent á staðreyndirnar. En
kannski þingmeirihlutinn
hugsi sem svo: Slíkra fjár-
veitinga er ekki þörf! • Hvað
um aðrar þjóðir?
Aðrar þjóðir hafa rýmri
markað fyrir bókmenntir og
listir en við. þar er til íiöldi
af sjóðum, sem veitir lista-
mönnum stvrki — en til dæm-
is get ég bent á það, að á vfir
níutíu þúsund íslenzkra króna
heiðurslaunum eru 50 lista-
menn á fjárlögum norska rík-
isins. Að við eigum ekki verð-
uga menn slíkra launa? Að
fénu sé betur varið til annars,
að hér sé gætt hverrar krónu,
vandlega um bað hugsað að
hún fari til þarfari hluta?
Mundi ég nú ekki þykja ger-
ast nokkuð barnalegur — eða
bá gamansamur, og svara ég
bá bví til, að ég vilji ekki
skemmta um hinn óskemmti-
legasta hlut, svo að minnzt sé
orða Meistara .Tóns — heldur
sé mér nú í öllu mínu máli
hin rammasta og einlægleg-
asta alvara, en hitt vildi ég
gera, veita ráðandi mönnum
þess kost að sjá ásýnd for-
ræðis síns í snésnegli, bar
sem þó ekkert lýti sé stækkað!
En hvað er þá í efni? Er
bað raunverulega þannig alla
leið unp á hæstu tinda valda
on ábyrgðar á landi hér —
eins og alþýðuskáldið kvað:
..Allt °r rægt og einkis virt,
sem ekki er hægt að éta“.
?
ekki lengur talinn það dýr-
maeti sem hann áður var?
Ég vildi mega vona, að svo
sé ekki, vildi mega treysta
því, að það sé þó ekki, þrátt
fyrir allt, hin gullna glýja
úr klyfjum asna Filippusar
sáluga af Makedóníu, sem nú
hefur verið um langt skeið
teymdur hár um öll borgar-
hlið af amerískum eður gerzk-
um höndum, sem villt hafi um
okkar forsjár- og valdamenn,
heldur hafi það verið jóreyk-
urinn undan hófum stríðs-
fáka þeirra sjálfra, svo geyst
sem þeir hafa farið um götur
og torg og út um byggðir
landsins, brennandi af áhuga
fyrir sigri síns góða málstað-
ar. Og svo muni þeir þá —
þegar veðrahamur ávallt við-
sjálla örlaga í harðbýlu landi
hefur sópað þessum jóreykj-
um burt sjá jafnskýrt og Guð
hefur gefið þeim sjón til.
En ... en verði svo ekki,
fari svo illa, að það verði ekki,
þá mun ég stanza við styttu
Jóns Sigurðssonar framan við
Alþingishúsið og segja með
Steini Steinarr:
Jón Sigurðsson, forseti, stand-
mynd, sem steypt er í eir,
hér stöndum við saman í
myrkrinu báðir tveir.
Að þing og stjórn hafi á
undanförnum árum tekið þá
trú, sem Grímur á Bessastöð-
um kallaði fjóstrú, en nú
mætti ef til vill nefna sjoppu-
trú — ef kénna skyldi hana
við einhver nýtízku salar-
kynni, sem mjólka vel sínum
eigendum — og allt sé það nú
gleymt, sem þjóðin hefur lif-
að og þrautreynt á liðnum
öldum, — að lífsteinn íslenzkr
ar tungu og þjóðarsálar sé nú
Elskar hesfa
Framhald af 16. síðu.
laun fyrir veðhlaupahesta sína,
að iuki hefur hún fengið 65 000
'sterlingspund fyrir graðhesta
sína.
Hestaeigendur í Bretlandi
telja, að hún hafi eytt öllu
þessu fé í þjáifun hesta sinna,
laun knapi og annað, er veð-
ihlaupum viðkemur. Hún er
fyrsti þjóðhöfðinginn í Bret-
landi, sem ekki' hefur tapað stór
fé á veðhlaupahestum sínum.
Þeir, sem gerzt þykjast vita,
'segja að hjónin séu ekki ósám-
mála vegna þessa sports drottn-
ingarinnar, en það er vi'tað, að
Fiiippus yfirgaf nýlega Ascot-
veðhlaupin frægu áður en þeim
lauk og fór að spila billiard.
Hann er sjálfur miki'U íþrótti-
maður, en hann vill taka þátt í
þeim, en ekki láta sér nægja að
vera áhorfandi. Hann kemur
gjarnan á veðhlaup með drottn
ingunni, en fer oftast strax aft-
ur, venjulega til þess að spila
Póló.
Þau hjónin elska bæði' hesta
og fara oft í útreiðirtrúa um
ihelgar. Drottningin hóf að læra
reiðmennsku þriggja ára gömul
er afi hennar, GeorgV, gaf henni
smáhest frá Shetlandseyjum.
Faðir hennar var mikill hesta-
rnaður og móðir hennar á hóp
veðhlaupahesta og fer á fjöl-
margar veðreiðar.
Hestar og all-t, sem þeim við-
kemur, er helzta áhugSmál El-
ízabethar drottningar, en hún
veðjar aldrei á veðreiðum. Hún
á skrá yfir ætti'r 42 500 veð-
hlaupahesta og þegar >hún getur
ekki verið viðstödd meiriháttar
veðreiðar, lætur hún senda sér
kvikmynd af þeim og skoðar
hana nákvæmlega.
8. júlí 1960 — Alþ'ýðublaðið
Slysavarðstofan
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Síml
15030.
o-----------------------o
Gengin. Kaupgengl.
1 sterlingspund .... 106,65
1 Bandaríkjadollar .. 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr.....551,40
100 norskar kr..... 532,80
lOOsænskar kr...... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o----------------------o
Ríkisskip.
Hekla fer frá R.-
vík kl. 18 á morg
un til Norður-
landa. Esja fer frá
Rvík kl. 17 í dag
vestur um land í
hringferð. Herðubreið fór frá
Rvík í gær austur um land í
hringferð. Skjaldbreið fer
frá Akureyri í dag á vestur-
leið. Herjólfur fer frá Rvík
kl. 21 í kvöld til Vestm.eyja.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er í Archang-
elsk. Arnarfell er í Archang-
elsk. Jökulfell er í Gauta-
borg. Dísarfell er á Krossa-
nesi. Litlafell er í Rvík. Helga
fell fer í dag frá Kotka til Len
ingrad. Hamrafell fór 1. þ. m.
frá Aruba áleiðis til Hafnar-
fjarðar. Er væntanlegt 13. þ.
mán.
Jöklar.
Langjökull fór frá Khöfn
5. þ. m. á leið til Akureyrar.
Vatnajökull fór frá Kotka 4.
þ. m. á leið til Reykjavíkur.
Hafskip.
Laxá fór 7. þ. m. frá Riga
áleiðis til Akureyrar.
Eimskip.
Dettifoss kom til Rvíkur
3/7 frá Gdynia og Reyðar-
firði. Fjallfoss fer frá Hull í
dag til Rvíkur. Goðafoss er í
Hamborg. Gullfoss kom til
Khafnar í gær frá Leith. Lag-
arfoss fór frá Vestm.eyjum i
gærkvöldi til Rvíkur. Reykja-
foss fór frá Siglufirði 5/7 til
Hull, Kalmar og Ábo. Selfoss
fór frá New York 2/7 til R.-
víkur. TröIIafoss kom til R.-
víkur 4/7 frá Hamborg.
Tungufoss fór frá Borgarnesj
í gær til Reykjavíkur.
Brúðkaup.
25. iún ísl. voru gefin sam-
an í hjónaband af séra Garð-
pr; Þorsteinssvni Guðfinna
Vigfúsdóttir, Hraunskambi 5,
Hafnarfirð} og Evjólfur
Bjarnason. Suðurey, Súganda
Jfirðú Heimili hjónanna verð-
ur á Suðurey, Súgandafirði.
Menntamálaráð íslands
hefur falið Rithöfundasam-
bandi íslands að úthluta starfs
styrki til íslenzkra rithöf-
unda, sem hyggjast dveljast
nokkurn tíma við ritstörf úti
á landi. Umsóknir skulu hafa
borizt skrifstofu Rithöfunda-
bamsandsins, Hafnarstr. 16,
Reykjavík, fyrir 15. júlí nk.
Minningarsjóður
VX&X Flugfélag
íslands.
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til
|; Glasgow og K,-
Wj&sæmÆ hafnar kl. 8 í
dag. Væntanleg-
ij: ur aftur til Rvík
.... ...._ . ur kl. 22.30 í
kvöld. Flugvélin
fer til Oslóar,
Kaupm.hafnar
og Hamborgar kl. 10 í fyrra-
málið. — Millilandaflugvélin
Gullfaxi er væntaneg frá
Lundúnum k. 13.20 í dag. •—
Flugvélin fer til Glasgow og
Khafnar kl. 8 í fyrramálið.
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga til Akureyr-
ar (3 ferðir), Egilsstaða, Fag-
urhólsmýrar, Flateyrar,
Hólmavíkur, Hornafjarðar,
ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust
urs, Vestmannaeyja (2 ferð-
ir) og Þingeyrar. Á morgun
er áætlað að fljúga til Akur-
eyrar (2 ferðir), Egilsstaða,
ísafjarðar, Sauðárkróks,
Skógasands og Vestmanna-
nírin í O
Loftleiðir.
Snorri Sturluson er vænt-
anlegur kl. 6.45 frá New
York. Fer til Glasgow og
London kl. 8.15. Hekla er
væntanleg kl. 19 frá Ham-
borg, IChöfn og Osló. Fer til
New York kl. 20.30. Snorri
sturluson er væntanlegur kl.
23 frá London og Glasgow.
Fer til New York kl. 0.30.
Silungsveiðimenn,
kastið ekki girni á víða-
vang. Það getur skaðað bú-
smala. — Samband Dýra-
verndunarfélags íslands.
Dr. Victors Urbancic.
Styrkveiting úr minningar-
sjóði Dr. Urbancic fer fram á
afmælisdegi hans 9. ág. nk.
Veittur verður að þessu sinni
styrkur að upphæð kr. 5000
lækni til sérnáms í heila- og
taugaskurðlækningum (Neu-
ro-Kirurgi) samkvæmt stofn-
skrá sjóðsins. Umsóknir um
styrk úr sjóðnum verða að
berast fyrir 1. ágúst 1960 til
hr. prófessors dr. Snorra Hall
grímssonar yfirlæknis, Hand-
lækningadeild Landspítalans
Sjóðstjórnin.
13.25 Tónleikar.
20.30 Frá Dal-
vík: a) Björn
Árnason flytur
þátt af Baldvin
á Böggvisstöð'-
■um. b) Kristinn
Jónsson talar
við níræða
konu, Ingibj.
Sigurðardóttur.
b) Harialdur
iZóphóníasson
flytur frumort
kvæði og stök-
ur, enn fremur
kvæðalög. 21.10 Píanótónleik
ar: Arndor Foldes. 2130 Út-
varpssagan: „Djákninn í
Sandey.“ 22.10 Kvöldsagan:
„Vonglaðir veiðimenn.“ 22.35
í léttum íón.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Hún var móðir unga
mannsins.
Reykjavík.