Lögberg - 05.08.1943, Blaðsíða 1
PHONES 86 311
Seven Lines
Wfií?
<Q^ ** F« Better
Cot> ** Dry Cleaning
and Laundry
PHONES 86 311
Seven Lines
i^ífes*
unaere^
C°t-
*o
tí&
a
atv
ers
Service
and
Salisíaction
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG. FIMTUDAGINN 5. ÁGÚST 1943.
NÚMER 31
Vinnur sér frama
í hljómlist
Miss Kristín Jónsson
Enn á ný gjörir ungur ís-
lendingur garðinn frægan á
sviði mentunar og lista; í þetta
sinni er það ungfrú Kristín
Jónson, sem myndin er hér af,
hún tók mentastigið "Bachelor
of Art", í músik, 12. júní þ. á.
við University of Washington
í Seattle, og hefir hún ákveð-
ið að halda þar áfram námi í
eitt ár enn, svo hún geti tekið
að sér kennara stöðu við hljóm-
listarskóla, hvar sem tækifæri
býðst.
Níu ára gömul byrjaði hún
nám í fiðluleik og kom þá stiaz
í Ijós hennar frábæru hæfileik-
ar, sem vöktu almenna eftir-
tekt og aðdáun, og hefir það
aukist með ári hverju, þar til
nú að hún hefir náð hámarki
í þeirri grein, aðal kennari
' hennar hefir verið R. W. Herely,
velþektur fiðluleikari.
Þó Kristín sé enn ung að aldri
hefir hún fengið viðurkenningu
hæfileika sinna, á ýmsan hátt,
má þar til sönnunar nefna, að
hún hefir spilað með Seattle
Symphony hljómsveitinni í
meira en ár, einnig hefir hún
haldið heiðurssæti hjá Uni-
versity of Washington hljóm-
sveitinni í tvö ár. 1939 tók hún
þátt í hljómlistar samkeppni í
Tacoma,' Washington, þar sem
voru saman komnir útvaldir
hljómfræðingar frá sjö ríkjum
Bandaríkjanna, og vann hún
þar fyrsta heiðurssæti. Þess ut-
an hefir hún þrásinnis verið
fengin til að spila fyrir ýmsar
stofnanir og félög, við merk
tækifæri, svo hefir hún haft
nemendur í tímakennslu í síð-
astliðin sex ár, alt þetta og
margt fleira, sýnir hið víðtæka
álit og vinsældir, sem hún hef-
ir aflað sér með framkomu
sinni.
Þessi efnilega stúlka er dóttir
þeirra hjóna, Þorbjörns Jónson-
ar og konu hans Brynhildar.
Þorbjörn er ættaður frá Deild-
artungu í Reykholtsdal í Borg-
arfyrði, en móðirin er hún-
versk að ætt, dóttir Erlendar
Guðmundssonar frá Gimli;
tfeimili þeirra ber með afbrigð-
um íslenzkan blæ; þangað hef-
ír Kristín sótt stuðninginn og
staðfestuna, sem til þess þarf
að ná slíku menta stigi, — það
er að brjótast upp á fjallið og
upp á hæsta tindinn. —
Þorbjörn er þektur að því,
að taki hann sér eitthvað fyrir
bendur, þá kemur hann því í
framkvæmd; hann hefir nú sjálf-
ur sannað þessi ummæli með
Því að styðja dóttur sína eins
rækilega til náms eins og nú
y
*"***
Rólegrar
yfirvegunar þörf
]>að er sjaldan holt að láta geðs-
hræringar hlaupa með sig i gönur,
livorki á vettvangi stjórnmálanna né
öðrum sviðum mannlegra atliafna, því
þá er ávalt hætta á, aí5 sannmat manna
og málefni bíði lægra hlut; á hinn
bóginn er það jafnan vænlegra til
æskilegrar úrlausnar, að rólegri yfir-
vegun sé beitt, er gert skal út um al-
menn mál, hvort heldur það er við
þingkosningar, eða endrarnær.—
Við aukakosningu þá til sambands-
þings, sem fram fer í Selkirkkjördæm-
inu þann 9. þ. m., liggja engin þau
niál fyrir, er valda ættu ágreiningi,
nema þá því aðeins, að seilst sé ó-
þarflega langt um öxl. Sá, sem kosn-
ingu nær, getur ekki undir aeinumj
kringumstæðum átt vísa þingsetu nema
á tveimur þingum, með því að al-
mennar kosningar, samkvæmt stjórn-
skipulögum landsins, hljóta að fara
fram á árinu 1945. En með því að
kjósa stuðningsmann stjórnarinnar,
eru að minsta kosti talsvert meiri lík-
úr til þess, að honum auðnaðist að
koma fram nokkurum umbótum kjör-
dæniinu í hag, það sem eftir er kjör-
tímabils, en ef stjórnarandstæðingur
næði kosningu, þótt slíkt yrði fylgj-
cndum hans vitaskuld til dálítillar
hugsvölunar í bráðina.
Þátttaka hinnar canadisku þjóðar í
vfirstandandi frelsisstríði, hófst undir
forustu núverandi sambandsstjórnar,
og ef alt skeikar að sköpuðu, situr
hún enn við völd, er styrjöldinni lýk-
ur. Og þó vitaskuld megi réttilega
eitt og annað að gerðum stjórnarinn-
ar finna, verður því ekki skynsamlega
í móti mælt, að hún hafi veitt þjóð-
inni djarfmannlega forustu inn á við,
og vitanlega engu síður út á við, þar
sem einna mest hefir reynt á þolrif í
viðskiftum við aðrar þjóðir.
Mál manna er það, að vinna stríðið,
og vinna það sem fyrst; að því marki
verður beinast stefnt með einbeittri
samvinnu við stjórn landsins; þar má
hvorki hik né efi komast að.
ARODURS AUGLÝSING
SSem dæmi um það, hvernig Þjóð-
verjar þykjast hafa innlimað Noreg i
Þýzkaland er sagt frá auglýsingu,
sem aðalmálgagn Hitlers Völkische
Beobachter liefir í norskum blöðum.
Auglýsingin er myná*1 af sérkenni-
legu norsku fjarðarlandslagi, en i for-
grunni myndarinnar er maður, serrfc
les hið þýzka blað. — En undir mynd-
inni stendur: "Útbreiddasta blað
landsins."
er komið í ljós, það tekur bæði
mikið fé og mikla umhyggju
foreldranna; eitt dæmi þess er
það að Þorbjörn keypti Kristínu
fiðlu, sem virt er á $600.00
var það smíðað á ítalíu árið
1650.
Ungfrú Kristín er mjög ís-
lenzk í anda, og lætur það aldrei
dyljast neinum að hún sé ís-
lenzk að ætt, eins og nafnið
"Johnson" bendir til, þetta hefir
iþó ekki orðið henni að farar-
tálma, á braut mentunarinnar,
og mætti margur hér af taka
dæmi, hún kemur iðulega fram
á skemtiskrám, og við önnur
tækifæri á meðal íslendinga,
endurgjaldslaust, og sýnir með
því virðingu fyrir þjóðerni sínu.
Það hefri alltaf verið metn-
aðarauki voir íslendinga hér
vestan hafs, þegar einhver af
þjóðflokki vorum hefir skarað
fram úr í því, sem setur fegurri
og göfugri blæ á mannlífið í
kring um okkur, hér er því
ástæða til að gleðjast og þakka
ungfrú Kristínu fyrir vel unnið
verk, og óska henni allra heilla
í framtíðinni.
Seattle, Wash. 30. júní.
H. E. Magnússon.
Kvæði Islendingadagsins á Gimli
Landneminn
Þessar sléttu, grænu grundir
geyma nafnið hans,
lúna landnemans;
hans, sem jafnt í frosti og funa
feldi myrkvan skóg, —
niðjum brautir bjó.
Sagan geymir glæstri framtíð
Grettistökin hans,
lúna landnemans;
hans, sem einn á opnu fleyi
alla boða klauf,
aldrei eiða rauf!
Fram í aldir æskan geymir
ættarmótið hans,
lúna landnemans;
hans, sem út um álfur víðar
íslenzkt kyngimál
óf í sonarsál.
Þessar nýju blómabygðir
blessa nafnið hans,
látna landnemans;
hans, sem fram á æfienda
alt í haginn bjó, —
glaður guði dó.
Einar P. Jónsson.
Island
í þínu nafni ísland, erum við
með ást og virðing mætt, á þessum degi.
Við minninganna mikla, gullna hlið
er margt sem birtu slær á dimma vegi,
og hér er stund sem gefur okkur grið
að göfga þig — þótt varir bærist eigi.
Öll ljóð sem skáldin lögðu þér í skaut
er lítil tilraun uppeldið að meta,
*sá arfur leiddi oss út úr margri þraut,
og öllum veitti birtu milli hreta,
og lét oss skilja, á langri æfi-braut
að lifa fyrir meira — en bara að éta.
Um margar aldir þú varst þrautum háð,
— en þér var ekki sjálfri um að kenna —
er alt sem fegurst fornöld hafði skráð
í feigðar-Ioga reyndu menn að brenna.
— Þá sýnist ekki von um neina náð
er neyðar-fjötrar vilja fólksins spenna. —
Þitt lán er meira en margur hafði spáð,
og mangararnir fengu á hörðu að kenna,
því fornu goðin vörðu lög og láð
með ljósum þeim er öllu skærar brenna.
Þau vörðu því, þú yrðir andleg bráð
og æti, leigðra þræla og vesalmenna.
Og enn fer svo, að gömlu goðin þín
með giftu sinni framtíð þína verja.
Nú öllu fegra frelsis-sól þín skín
því fjarlæg börn þín hollustu þér sverja.
Og nú sem fyr, mun sigursældin þín
þér sýna veg um boða leyndra skerja.
Já, þú ert ísland, ódauðleika háð,
svo aldrei muntu fyrnast börnum þínum,
og um þig verða ótal kvæði skráð
um alda-raðir, þó viðflestu týnum,
svo þó oss skilji lögur bæði og láð
í Ijóði og söng við minning þína krýnum.
Páll S. Pálsson.
Flugvélin er nýbúin að skjóta á járnbrautarlestina úr fallbyssum
sínum, og springur þá gufuketillinn i loft upp.
Ur borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
¦*¦ + ¦*¦
Iðnaðarsýningin í Arborg verður
lialdin i Árdalsskóla fqstudaginn 13,
ágúst. Er æskilegt að sem mest af
afurðum og skepnum verði svnt,
sömuleiðis bakstur, saumar og tóskap-
ur. Myndasýning frá "Xational Film
Board" verður allan daginn. — Góð
sýning er bygðinni til sóma, svo mun-
ið eftir að koma.
Andrea Johnson.
+ + -t-
Stefania Stefánsdöttir Sigurðs-
son vistkona á Betel lézt þar 6. júlí
s.l. Hún var fædd 20. febrúar 1854
að Bjarnastöðum í Dalasýslu, en kom
til Canada 1901. Maður Iiennar
Kristján Sigurðsson frá Glenboro
er látinn fyrir allmörgum árum. Út-
fararathöfn fór fram á Betel og Gimli
kirkjugarði. Séra Valdimar J. Ey-
lands jarðsöng.
? ? ?
Mr. Guðjón Ármann frá Grafton,
N. Dak., leit inn á skrifstofu Lög-
bergs er hann kom frá því að sækja
íslendingadaginn að Gimli, Man.
Hann lét vel af högum fólks í Norður
Dakota.
•t- ? ?
Miss Grace Magnússon frá Chicago
sem verið hefir í heimsókn hjá for-
eldrum sinum, Mr. og Mrs. G. J.
MagaÚMQO, 42.'! Centennial St. hér í
bæ, og heimsótti einnig ættingja og
vini i Keewatin og Gimli, er nú á
förum til Washington, 'D.C. þar sem
framtíðarheimili hennar verður.
? ? ?
"Skuldar"-fundur á mánudaginn í
næstu viku (9. ágúst) hjá Mrs. Brand-
son, 471 Quéens St.
? ?-¦?•
Farþcgar með "Brúarfossi"
scm kom til New York í júlí
Guðmundur Gíslason, kaupm.;
Halldór Sigurjónsson, flugm.; Sig-
urður Benediktsson, kaupm.; Guðlaug
Birna Berndsen, stúdent; Sigurbjörn
Thorbjörnsson, stúdent: Ásgrimur
Jónsson, stúdent; Eiríkur G. Ásgeirs-
son, stúdent; Björn Valdimar Björns-
son, kaupm.; Kristín Guðmundsdóttir,
stúdent; Snorra May Nielsen,
*¦¦¥¦¦*¦
Ung kona óskar eftir fæði og her-
bergi við fyrstu hentugleika; þarfnast
næigætnislegrar aðbúðar; fæði mest-
megnis mjólkurmatur. Góð borgun í
boði. Sími 31868.
-t- ¦?• ?
Rósmundur Árnason frá Leslie,
var hér á ferð síðastl. viku, var á
íslendingadeginum; hann lagði á stað
heimleiðis síðastl. þriðjudagskvöld.
? ? •?¦
Guðlaug Sigfúsdóttir-Lifman, ekkja
Kristjáns Lifman, sem lengi bjó í
Breiðuvík og á Gimli, lézt að heim-
ili fóstursonar síns, B. J. Lifman og
Margrétar konu hans í Árborg, að-
faranótt fimtudagsins var, áttræð að
aldri. Hún lætur eftir sig tvær al-
systur, Mrs. Einar Jónasson, Gimli,
og Mrs. Mag'nús Stefánsson, Climax,
Sask., og eina hálf-systur, Mrs.
Brovvn á Mountain, N. Dak.
Útförin fór fram á Gimli síðast-
liðinn laugardag. Séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
? ?- ?-
Mr. Steindór Jakobsson, kaupmað-
ur, átti fimmtugs afmæli á fimtudag-
inn í vikunni, sem leið, og var í tilefni
af því niannmargt á heimili hans og
frú Jakobsson'um kvöldið. Steindór
kaupmaður er ættaður af Akureyri;
hann er maður félagslyndur og hefir
aflað sér fjölmenns vinahóps í borg
og grend.
Ryður sér
glæsilega braut
Stefán Hansen, B.A.: A.A.S.
Ösegjanlegt ánægjuefni er það, er
menn af íslenzkum uppruna ryðja sér
braut til gæfu og gengis í þessu víð-
áttumikla landi, og standa eigi aðeins
jafnfætis samborgurum sínum»af öðr-
um stofni, heldur ná feti framar; einn
slíkra manna, er s.i maður, sem mynd
þessi er af. og þegar hefir á ungum
aldri aukið allverulega á veg þjóð-
flokks síns.
Stefán Hansen er fæddur i Ólafsvík
22: marz árið 1910. Foreldrar hans
eru þau merkishjónin Björn Jóhannes-
soii - Hansen og Karitas Matthías-
dóttir; með þeim fluttist Stefán til
þessa lands í júlimánuði 1914, og
reisti fjölskyldan þá undir eins bú
eitthvað um 7 mílur vestur af Árborg.
Hinnar fyrstu alþýðuskólamentunar
naut Stefán í Árborg, en siðar í Wyn-
yard, Wadena og Humboldt eftir að
fjolskylda hans fluttist til Saskatche-
wan ; um margra ára skeið hefir Björn
faðir hans haft með höndum forstjóra-
starf við Sameignar rjómabúið í
Humboldt.
Stefán hóf ungur háskólanám, og
útskrifaðist af Manitoba háskólanurm
1935 með fyrstu ágætiseinkunn ; megin
námsgrein hans var stærðfræði; á
þriðja og fjórða háskólaári vann
Stefán Isbister-verðlaunin í rötS; a8
loknu háskólanámi gekk Stefán "t
þjónustu Monarch lífsábyrgðargélags-
ins hér í borginni, og hefir nú ný-
verið lokið fullnaðarprófi í líftrygg-
ingahagfræði með hinum ágætasta
vitnisburði; með þessu hefir Stefán
fullnægt þeim skilyrðum, sem sett
eru, t il þess að verða meðlimur
Actuarie Society of America, A.A.S.,
og American Institute of Actuaries,
A.A.I.A.—
Stefán Hansen er mælskur maður,
langt fram yfir það, sem alment ger-
ist, og hefir gefið sig allmikið við
stjórnmálum; hann sótti hið fyrsta,
canadiska æskulýðsþing, er haldið
var í Montreal 1936, sem sendifulltrúi
Manitobafylkis; en árið 1938, sótti
hann æskulýðsheimsþing í New York,
sem erindreki Young Liberals í Can-
ada; það þing sóttu 600 erindrekar
frá 40 þjóðum alls. Stefán Hansen
er fyrir nokkuru kvæntur Jessie
,'Hermione Blackwood, velmentri á-
gætiskonu; þau eiga eitt barn.
Stefán Hansen er hverjum mannt
háttprúðari í framgöngu, skemtilegur
í vinahóp. rökfastur og hnyttinn i
Mr. J. G. Thorgeirsson kom heim
á þriðjudaginn í vikunni, sem leið,
eftir því nær sex vikna dvöl vestur í
Kandahar.
f ¦*¦ ¦*¦
Séra Valdimar J. Eylands útvarpar
morgunguðsþjónustum yfir Watrous
Sask. stóðina vikuna 23.—28. ágúst.
¦*¦¦*¦¦*¦
Einar P. Jónnsson. ritsjtóri "Lög-
bergs" fór ásamt frú sinni norður til
ílecla, Man., í sumarfrí. Þau hjón
tóku bæfji þátt í skemtislcránni á
tslendingadeginum á Gitnli siðastlið-
inu mánudag.