Lögberg - 05.08.1943, Side 1
56 ÁRGANGUR
LÖGBERG, FIMTUDAGINN 5. ÁGÚST 1943.
NÚMER 31
Vinnur sér frama
í hljómlist
Miss Krislín Jónsson
Enn á ný gjörir ungur ís-
lendingur garðinn frægan á
sviði mentunar og lista; í þetta
sinni er það ungfrú Kristín
Jónson, sem myndin er hér af,
hún tók mentastigið “Bachelor
of Art”, í músik, 12. júní þ. á.
við University of Washington
í Seattle, og hefir hún ákveð-
ið að halda þar áfram námí í
eitt ár enn, svo hún geti tekið
að sér kennara stöðu við hljóm-
listarskóla, hvar sem tækifæri
býðst.
Níu ára gömul byrjaði hún
nám í fiðluleik og kom þá stiaz
í ljós hennar frábæru hæfileik-
ar, sem vöktu almenna eftir-
tekt og aðdáun, og hefir það
aukist með ári hverju, þar til
nú að hún hefir náð hámarki
í þeirri grein, aðal kennari
hennar hefir verið R. W. Herely,
velþektur fiðluleikari.
Þó Kristín sé enn ung að aldri
hefir hún fengið viðurkenningu
hæfileika sinna, á ýmsan hátt,
má þar til sönnunar nefna, að
hún hefir spilað með Seattle
Symphony hljómsveitinni í
meira en ár, einnig hefir hún
haldið heiðurssæti hjá Uni-
versity of Washington hljóm-
sveitinni í tvö ár. 1939 tók hún
þátt í hljómlistar samkeppni í
Tacoma,' Washington, þar sem
voru saman komnir útvaldir
hljómfræðingar frá sjö ríkjum
Bandaríkjanna, og vann hún
þar fyrsta heiðurssæti. Þess ut-
an hefir hún þrásinnis verið
fengin til að spila fyrir ýmsar
stofnanir og félög, við merk
tækifæri, svo hefir hún haft
nemendur í tímakennslu í síð-
astliðin sex ár, alt þetta og
margt fleira, sýnir hið víðtæka
álit og vinsældir, sem hún hef-
ir aflað sér með framkomu
sinni.
Þessi efnilega stúlka er dóttir
þeirra hjóna, Þorbjörns Jónson-
ar og konu hans Brynhildar.
Þorbjörn er ættaður frá Deiid-
artungu í Reykholtsdal í Borg-
arfyrði, en móðirin er hún-
versk að ætt, dóttir Erlendar
Guðmundssonar frá Gimli;
ffeimili þeirra ber með afbrigð-
um íslenzkan blæ; þangað hef-
ir Kristín sótt stuðninginn og
staðfestuna, sem til þess þarf
að ná slíku menta' stigi, — það
er að brjótast upp á fjallið og
upp á hæsta tindinn. —
Þorbjörn er þektur að því,
að taki hann sér eitthvað fyrir
hendur, þá kemur hann því í
framkvæmd; hann hefir nú sjálf-
ur sannað þessi ummæli með
því að styðja dóttur sína eins
rækilega til náms eins og nú
Rólegrar
yfirvegunar þörf
Það er sjaldan holt að láta geös-
liræringar hlaupa með sig i gönur,
hvorki á vettvangi stjórmnálanna né
öSrum sviSum mannlegra athafna, því
þá er ávalt hætta á, aS sannmat manna
og málefni bíSi lægra hlut; á hinn
bóginn er þaS jafnan vænlegra til
æskilegrar úrlausnar, aS rólegri yfir-
vegun sé beitt, er gert skal út um al-
menn mál, hvort heldur þaS er við
þingkosningar, eSa endrarnær.—
ViS aukakosningu þá til sambands-
þings, sem fram fer í Selkirkkjördæm-
inu þann 9. þ. m., liggja engin þau
mál fyrir, er valda ættu ágreiningi,
nema þá því aSeins, að seilst sé ó-
þarflega langt um öxl. Sá, sem kosn-
itigu nær, getur ekki undir neinum|
kringumstæSum átt vísa þingsetu nema
á tveimur þingutn, með því að al-
ntennar kosningar, samkvæmt stjórn-
skipulögum landsins, hljóta að fara
frant á árinu 1945. En með því að
kjósa stuSningsmann stjórnarinnar,
eru að minsta kosti talsvert meiri lík-
ur til þess, aS honutn au'SnaSist aS
koma fram nokkurum umbótum kjör-
dæmiilu í hag, þaS sem eftir er kjör-
tímabils, en ef stjórnarandstæSingur
næSi kosningu, þótt slíkt yrði fylgj-
endum hans vitaskuld til dálítillar
hugsvölunar í bráðina.
Þátttaka hinnar canadisku þjóðar í
yfirstandandi frelsisstríði, hófst undir
forustu núverandi sambandsstjórnar,
og ef alt skeikar aS sköpuSu, situr
hún enn við völd, er styrjöldinni lýk-
ur. Og þó vitaskuld megi réttilega
eitt og annaS aS gerSum stjórnarinn-
ar finna, verSur því ekki skynsamlega
í móti mælt, aS liún hafi veitt þjóS-
inni djarfmannlega forustu inn á viS,
og vitanlega engu síSur út á viS, þar
sem einna mest hefir reynt á þolrif í
viðskiftum viS aðrar þjóSir.
Mál manna er þaS, að vinna stríSið,
og vinna það sem fyrst; að því marki
verSur beinast stefnt meS einbeittri
samvinnu við stjórn landsins; þar má
hvorki hik né efi komast að.
ARÓÐURS AUGLÝSING
SSem dæmi um þaS, hvernig ÞjóS-
verjar þykjast hafa inulimaS Noreg i
Þýzkaland er sagt frá auglýsingu,
sem aðalmálgagn Hitlers Völkische
Beobachter hefir í norskum blöSum.
Auglýsingin er mynd' af sérkenni-
legu norsku fjarSarlandslagi, en i for-
grunni myndarinnar er maSur, sent
les hiS þýzka blaS. — En undir mynd-
inni stendur: “Útbreiddasta- blaS
landsins.”
er komið í ljós, það tekur bæði
mikið fé og mikla umhvggju
foreldranna; eitt dæmi þess er
það að Þorbjörn keypti Kristínu
fiðlu, sem virt er á $600.00
var það smíðað á ítalíu árið
1650.
Ungfrú Kristín er mjög ís-
lenzk í anda, og lætur það aldrei
dyljast neinum að hún sé ís-
lenzk að ætt, eins og nafnið
“Johnson” bendir <til, þetta hefir
iþó ekki orðið henni að farar-
tálma, á braut mentunarinnar,
og mætti margur hér af taka
dæmi, hún kemur iðulega fram
á skemtiskrám, og við önnur
tækifæri á meðal íslendinga,
endurgjaldslaust, og sýnir með
því virðingu fyrir þjóðerni sínu.
Það hefri alltaf verið metn-
aðarauki volr íslendinga hér
vestan hafs, þegar einhver af
þjóðflokki vorum hefir skarað
fram úr í því, sem setur fegurri
og göfugri blæ á mannlífið í
kring um okkur, hér er því
ástæða til að gleðjast og þakka
ungfrú Kristínu fyrir vel unnið
verk, og óska henni allra heilla
í framtíðinni.
Seattle, Wash. 30. júní.
H. E. Magnússon.
Kvæði Islendingadagsins á Gimli
Landneminn
\
Þessar sléttu, grænu grundir
geyma nafnið hans,
lúna landnemans;
hans, sem jafnt í frosti og funa
feldi myrkvan skóg, —
niðjum brautir bjó.
Sagan geymir glæstri framtíð
Grettistökin hans,
lúna landnemans;
hans, sem einn á opnu fleyi
alla boða klauf,
aldrei eiða rauf!
Fram í aldir æskan geymir
ættarmótið hans,
lúna landnemans;
hans, sem út um álfur víðar
íslenzkt kyngimál
óf í sonarsál.
Þessar nýju blómabygðir
blessa nafnið hans,
látna landnemans;
hans, sem fram á æfienda
alt í haginn bjó, — ,
glaður guði dó.
Einar P. Jónsson.
Island
í þínu nafni ísland, erum við
með ást og virðing mætt, á þessum degi.
Við minninganna mikla, gullna hlið
er margt sem birtu slær á dimma vegi,
og hér er stund sem gefur okkur grið
að göfga þig — þótt varir bærist eigi.
Öll ljóð sem skáldin lögðu þér í skaut
er lítil tilraun uppeldið að meta,
%sá arfur leiddi oss út úr margri þraut,
og öllum veitti birtu milli hreta,
og lét oss skilja, á langri æfi-braut
að lifa fyrir meira — en bara að éta.
Um margar aldir þú varst þrautum háð,
— en þér var ekki sjálfri um að kenna —
er alt sem fegurst fornöld hafði skráð
í feigðar-loga reyndu menn að brenna.
— Þá sýnist ekki von um neina náð
er neyðar-fjötrar vilja fólksins spenna. —
Þitt lán er meira en margur hafði spáð,
og mangararnir fengu á hörðu að kenna,
því fornu goðin vörðu lög og láð
með ljósum þeim er öllu skærar brenna.
Þau vörðu því, þú yrðir andleg bráð
og æti, leigðra þræla og vesalmenna.
Og enn fer svo, að gömlu goðin þín
með giftu sinni framtíð þína verja.
Nú öllu fegra frelsis-sól þín skín
því fjarlæg börn þín hollustu þér sverja.
Og nú sem fyr, mun sigursældin þín
þér sýna veg um boða leyndra skerja.
Já, þú ert ísland, ódauðleika háð,
svo aldrei muntu fyrnast börnum þínum,
og um þig verða ótal kvæði skráð
um alda-raðir, þó viðflestu týnum,
svo þó qss skilji lögur bæði og láð
í ljóði og söng við minning þína krýnum.
Páll S. Pálsson.
Flugvéliti er nýbúin aS skjóta á járnbrautarlestina úr fallbyssum
sínum, og springur þá gufuketillinn í loft upp.
Úr borg og bygð
MATREIÐSLUBÓK
Kvenfélags Fyrsta lúterska
safnaðar í Winnipeg. Pantanir
sendist til: Mrs. E. W. Perry,
723 Warsaw Ave.; Mrs. E. S.
Feldsted, 525 Dominion Street.
Verð $1.00. Burðargjald 5c.
♦ ♦
ISnaSarsýningin í Árborg verSur
haldin i Árdalsskóla fqstudaginn 13.
ágúst. Er æskilegt aS sem mest af
afurðum og skepnum verði sýnt,
sömuleiðis bakstur, saunxar og tóskap-
ur. Myndasýning frá “National Film
Board” verður allan daginn. — Góð
sýning er bygðinni til sóma, svo mun-
ið eftir að koma.
Andrea Johnson.
♦ ♦ ♦
Stefania Stefánsdottir Sigurðs-
son vistkona á Betel lézt þar 6. júlí
s.l. Hún var fædd 26. febrúar 1854
að Bjarnastöðum i Dalasýslu, en kom
til Canada 1901. Maður hennar
Kristján Sigurðsson frá Glenboro
er látinn fyrir allmörgum árurn. Út-
fararathöfn fór fram á Betel og Girnli
kirkjugarði. Séra Valdimar J. Ey-
lands jarðsöng.
Mr. Guðjón Ármann frá Graíton,
N. Dak., leit inn á skrifstofu Lög-
bergs er hann kom frá þvi að sækja
íslendingadaginn að Gimli, Man.
Hann lét vel af högum fólks i Norður
Dakota.
♦ ♦ ♦
Miss Grace Magnússon frá Chicago
sem verið hefir í heimsókn hjá for-
eldrum sínum, Mr. og Mrs. G. J.
Magnússon, 423 Centennial St. hér í
bæ, og heimsótti einnig ættingja og
vini í Keewatin og Gimli, er nú á
förum til Washington, D.C. þar sem
framtíðarheimili hennar verður.
♦ ♦ ♦
“Skuldar”-fundur á mánudaginn í
næstu viku (9. ágúst) hjá Mrs. Brand-
son, 471 Quéens St.
♦ ♦ ♦
Farþegar meS “BrúarfossÝ’
sem kom til New York í júlí
Guðmundur Gíslason, kaupm.;
Halldór Sigurjónsson, flugm.; Sig-
urður Benediktsson, kauprn.; Guðlaug
Birna Berndsen, stúdent; Sigurbjörn
Thorbjörnsson, stúdent; Ásgrímur
Jónsson, stúdent; Eiríkur G. Ásgeirs-
son, stúdent; Björn Valdimar Björns-
son, kaupm.; Kristín Guðmundsdóttir,
stúdent; Snorra May Nielsen,
♦ ♦ ♦
Ung kona óskar eftir fæði og her-
bergi við fyrstu hentugleika; þarfnast
nærgætnislegrar aðbúðar; fæði mest-
megnis mjólkurmatur. Góð borgun í
boði. Sími 31 868.
♦ ♦ ♦
\
Rósmundur Árnason frá Leslie,
var hér á íerð siðastl. viku, var á
íslendingadeginum; hann lagði á stað
heimleiðis síðastl. þriðjudagskvöld.
♦ ♦ ♦
Guðlaug Sigfúsdóttir-Lifman, ekkja
Kristjáns Liftnan, sem lengi bjó i
Breiðuvik og á Gimli, lézt að heirtj-
ili fóstursonar síns, B. J. Lifman og
Margrétar konu hans í Árborg, að-
faranótt fimtudagsins var, áttræð að
aldri. Hún lætur eftir sig tvær al-
systur, Mrs. Einar Jónasson, Gimli,
og Mrs. Magnús Stefánsson, Climax,
Sask., og eina hálf-systur, Mrs.
Brown á Mountain, N. Dak.
Útförin fór fram á Gimli síðast-
liðinn laugardag. Séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
♦ ♦ ♦
Mr. Steindór Jakobsson, kaupmað-
ur, átti fimmtugs afmæli á fimtudag-
inn í vikunni, sem leið, og var í tilefni
af því mannmargt á heimili hans og
frú Jakobsson^um kvöldið. Steindór
kaupmaður er ættaður af Akureyri:
hann er maður félagslyndur og hefir
aflað sér fjölmenns vinahóps í borg
og grend.
Ryður sér
glæsilega braut
Stefán Hansen, B.A.; A.A.S.
Ósegjanlegt ánægjuefni er það, er
menn af íslenzkum uppruna ryðja sér
braut til gæfu og gengis í þessu víð-
áttumikla landi, og standa eigi aðeins
jafnfætis samborgurum sínum.af öðr-
um stofni, heldur ná feti framar; einn
slíkra manna, er sá maður, sem mynd
þessi er af, og þegar hefir á ungum
aldri aukið allverulega á veg þjóð-
flokks síns.
Stefán Hansen er fæddur í Ólafsvík
22: marz árið 1910. Foreldrar hans
eru þau merkishjónin Björn Jóhannes-
son - Hansen og Karitas Matthías-
dóttir; með þeim fluttist Stefán til
þessa lands i júiímánuði 1914, og
reisti fjölskyldan þá undir eins bú
eitthvað um 7 milur vestur af Árborg.
Hinnar fyrstu alþýðuskólamentunar
naut Stefán í Árborg, en síðar í Wyn-
yard, Wadena og Humboldt eftir að
fjölskylda hans fluttist til Saskatche-
wan; um margra ára skeið hefir Björn
faðir hans haft með höndum forstjóra-
starf við Sameignar rjómabúið í
Humboldt.
Stefán hóf ungur háskólanám, og
útskrifaðist af Manitoba háskólanum
1935 með fyrstu ágætiseinkunn ; megin
námsgrein hans var stærðfræði; á
þriðja og fjórða háskólaári vann
Stefán Isbister-verðlaunin í röð; að
loknu háskólanámi gekk Stefán i
þjónustu Monarch lífsábyrgðargélags-
ins hér í borginni, og hefir nú ný-
verið lokið fullnaðarprófi í líftrygg-
ingahagfræði með hinum ágætasta
vitnisburði; með þessu hefir Stefán
fullnægt þeim skilyrðum, sem sett
eru, t il þess að verða meðlimur
Actuarie Society of America, A.A.S.,
og American Institute of Actuaries,
A.A.I.A.—
Stefán Hansen er mælskur maður,
langt fram yfir það, sem alment ger-
ist, og hefir gefið sig allmikið við
stjórnmálum; hann sótti hið fyrsta,
canadiska æskulýðsþing, er haldið
var í Montreal 1936, sem sendifulltrúi
Manitobafylkis; en árið 1938, sótti
hann æskulýðsheimsþing í New York,
sem erindreki Young Liberals í Can-
ada; það þing sóttu 600 erindrekar
frá 40 þjóðum alls. Stefán Hansen
er fyrir nokkuru kvæntur Jessie
;Hermione Blackwood, velmentri á-
gætiskonu; þau eiga eitt barn.
Stefán Hansen er hverjum manni
háttprúðari í framgöngu, skemtilegur
í vinahóp, rökfastur og hnyttinn í
svörum.
Mr. J. G. Thorgeirsson kotn heim
á þriðjudaginn í vikunni, sem leið,
eftir því nær sex vikna dvöl vestur í
Kandahar.
♦ ♦ ♦
Séra Valdimar J. Eylands útvarpar
morgunguðsþjónustum yfir Watrous
Sask. stöðina vikuna 23.—28. ágúst.
♦ ♦ ♦
Einar P. Jónnsson, ritsjtóri “Lög-
bergs” fór ásamt frú sinni norður til
Hecla, Man., í sutnarfrí. Þau hjón
tóku bæð’i þátt i skemtiskránni á
íslendingadeginutn á Gimli síðastlið-
inn ntánudag.