Lögberg - 20.12.1945, Blaðsíða 9
9
Garðyrkjumaður einn
safnað feikna-miklum forða af
allra handa blómsturfræi í stóra
kassa. Kassarnir voru margvís-
lega hólfaðir sundur, og í hólf-
unum var frætegundunum vand-
lega niður raðað og hver tegund
nafngreind. Mest-allt fræið var
smágjört og veikburða, þótt
skapnaður þess og litur væri
breytilegur, — sumt eins og smá
sandkorn. En frækorn allra teg-
undanna voru gædd skynjanda
viti og gátu látið hvert öðru í
ljósi hugsanir sínar. Þau höfðu
samræður um marga hluti alveg
eins og vér gjörum í þessum mál-
skrafsheimi.
En með því þau höfðu aldrei
komið út úr h'íbýlum sínum,
kössum garðyrkjumannsins, gátu
þau með engu móti skilið,
hvernig högum var háttað í
heiminum fyrir utan. Engu að
síður töluðu þó mörg þeirra um
slíkt með eins mikilli fullvissu
eins og hefði þau fengið fræðslu
um alla hluti út í yztu æsar-
Sum þeirra beittu öllu hugs-
unarafli sínu til þess að svara
ýmsum mikilsvarðandi spurn-
ingum, sem jafnt snerta fræ og
menn. “Hvað erum vér?” —
spurðu þau hvert annað. “Hvað
verður af oss síðar meir? Erum
vér að eins lökamlegar smáagn-
ir? Eða er ef til vill í oss hið
innra hulið afl, leyndardóms-
fullt líf, sem vér fáum ekki skil-
ið og skynsemishugsan vorri er
ofvaxið að rannsaka?”
Þau vissu það, að innan
skemmra eða lengra tíma myndi
þau verða flutt burt úr þáver->
andi bústöðum þeirra og lögð
niður í kalda jörðina til þess að
rotna þar. Þau gátu á hverri
stundu búist við því, vesaling-
arnir, sem var farið að þykja
svo hjartanlega vænt hverjum
um aðra — og svo stóð nú reynd-
ar á fyrir mörgum —, að sjá
garðyrkjumanninn koma til þess
að sundra þeim og láta þessi
ægilegu örlög á þeim lenda. En
merkilegt er það, að einmitt þau
af frækomunum, sem töldu sig
öllum vitrari, hirtu minnst um,
hvað við tæki fyrir sér, — létu
sem sér stæði algjörlega á sama,
hvernig fara kynni. Spurningin
um það, hvort þeirra biði al-
gjör dauði eða ekki, var þeim
lítils virði, að því er virtist. Sum
lýstu jafnvel yfir því opinber-
lega, að það, sem þeim geðjaðist
bezt að, væri fullvissan um ævar
andi gjöreyðing. “Tilvera eilífs
lífs” — sagði einn af þessum
spekingum —, “það að geta
aldrei dáið — það er ef til vill
hræðilegastd hugsunin, sem ís-
kalt ímyndunaraflið getur lát-
ið verða til!” Önnur frækorn
komu með þá staðhæfing í nafni
“vísindanna”, og kváðu hana
ómótmælanlega og margsann-
aða”, að einstaklingseðli fræs
gæti m'eð engu móti haldizt eft-
ir að fræið væri orðið uppleyst;
engin skynsemi gædd og upplýst
vera gæti eitt augnablik látið
sér detta önnur eins fásinna í
hug. Var unnt að koma með
nokkurt andmæli, sem dygði,
gegn þessum vísindalegu full-
yrðingum? Þessir hálærðu vitr-
ingar, sem út í æsar höfðu rann-
sakað alla eðlisfræðilega og efna
fræðislega leyndardóma í fræ-
heiminum, þóttust geta sannað,
að eins víst og tvisvar tveir eru
fjórir, eins víst lægi að eins
rotnan fyrir frækornunum; og
svo var þetta enn frekar rök-
stutt með löngum og snjöllum
ræðum úr sömu átt.
Fjöl-mörg frækorn létu sann-
færast af þessum háfleygu yfir-
lýsingum; og með því þau þorðu
nú ekki lengur að trúa á lífstil-
veru eftir dauðann, þá beygðu
þau sig fyrir forlaganauðsyninni
og lifðu eins og þeir, sem enga
von hafa.
En fáein frækorn, fjólufræ,
sóleyjarfræ og aðrar skógar-
blóma-tegundir, kváðu það upp
í heyranda hljóði, að hvað sem
öllum vísindum liði væri þau
um það fullviss — heilbrigð skyn
semi sagði þeim það —, að í
hinu forgengilega hismi líkama
þeirra væri fólginn vísir lífstil-
veru, er fyrir þeim lægi eftir
dauðann. Þeim var reyndar að
sjálfsögðu það ofvaxið, að gjöra
nákvæmlega grein fyrir eðli
þessa nýja lífs eða því, á hvern
hátt þau ættu að lifna aftur við
eftir rotnunina. Það allt var þeim
ekki full-ljóst. En þau höfðu
vafalaust, óskeikanlegt hugboð
um hreinna loft, bjartara ljós,
sælla líf, sem þeim væri fyrir-
búið. Og þeim var óhugsanlegt,
að það hugboð reyndist tál. Þau
trúðu á tilveru hluta, sem auga
þeirra ekki hafði enn séð og
eyra þeirra ekki enn neitt heyrt
til.
“Þetta er ekki annað en fagur
draumur án nokkurs veruleika”
—_sögðu vitringarnir, glottandi.
“Þessar æstu ímyndanir geta
dugað yður, einfeldningunum.
Vér, sem upplýsing höfum feng-
ið, viljum ekki af ásettu ráði
svifta yður þessum heilaspuna,
úr því hann virðist vera yður til
ánægju- En vér, hin stóru sólar-
blómfræ — vér vitum, hvers
virði slíkir draumórar eru, og
viljum yera lausir við þá. Það
má sanna, að ekkert, sem í oss
er, lifir eftir eyðing líkamans,
og þetta líf vort hér á eingöngu
rót sína að rekja til jarðneskra
efna, sem runnið hafa saman um
stund, en eiga svo fyrir sér að
leysast sundur aftur innan skams
Trú yðar er heimska.”
Frækornin litlu trúuðu, sem
alls ekki létu hina vantrúuðu
vitringa telja sér hughvarf,
höfðu félagskap sín á milli til
þess að minna hvert annað á
hina sameiginlegu von þeirra.
Og til svo mikillar huggunar
urðu þeim félagsfundir þeirra,
að mörg þeirra þráðu jafnvel
þá stund, er garðyrkjumaðurinn
kæmi til þess að taka þau og
gróðursetja þau í jörðinni.
Loks upprann sá dagur fræ-
kornunum öllum. Húsbóndi
þeirra dcom, og þau urðu að láta
flytja sig burt úr húsnæðinu
notalega í kössunum og sökkva
sér niður í kalda og hráslagafulla
moldina í garði einum stórum.
En hin litlu fjólufræ og sóleyj-
arfræ kenndu ekki neins kvíða,
er þau voru látin niður í hálfopna
leirgröfina. Hin sæla von, sem
hjá þeim var innan brjósts, hélt
huga þeirra uppi, og þau sögðu
hvert við annað, er þau kvöddu
að skilnaði: “f guðs friði! Innan
skamms mætumst vér aftur.” —
“Já, vér munum aftur sjást” —
heyrðust önnur frækorn segja,
er þau hurfu undir moldar-
ábreiðunni, sem ofan á þau var
látin. Og sum bættu við sigri
hrósandi: “Og Salómon í allri
sinni dýrð var ekki svo skrýddur
eins og vér munum verða í fyll-
ing tímans.”
Vantrúaðir vitringar, hálærð-
ir heimspekingar, kaldlyndir
kæruleysingjar, hin meiri háttar
fræ og minni háttar fræin —
allt hvarf á sínum tíma ofan í
svarta, kalda jörðina.
Dagarnir liðu, vetrardagar
kaldra krapahríða, næðandi
vinda og æðandi storma. Sólin
kom aftur í ljós með sí-vaxandi
afli. Jörðin, sem lá í dvala, tók
smámsaman að vermast af sól-
argeislunum. Enn sást þó ekk-
ert merki þess, að breyting væri
að verða, enginn vísir til lífs,
engin upprisa eða hreyfing.
Svo vantrúar-boðberarnir
höfðu þá haft satt að mæla! Því
frækornin öll höfðu greinilega
horfið í moldina, þar sem þau
voru grafin.
En eftir er að sjá, hváð fram
kemur “í fylling tímans” undir
hinni bláu himinhvelfing i hinu
tæra lofti og hinum milda vor-
blæ. Hvílík gleði og sæla þá!
Nýjar engilfagrar verur birtast
þá. Skepnan endurfædd. Hví-
lík opinberan! Þarna sérðu fræ-
kornin litlu dökku, lítilmótlegu,
sem áður voru- Hvílík ummynd-
an! “Líttu á mig!” — segir fjol-
an í lágum róm við sóleyjuna.
“Þekkirðu mig? Eg kannast vel
við þig. Þú ert systkini mitt,
sóley. Við erum enn þær sömu
sem við vorum, og þó ekki eins
og áður. Gef mér morgunkoss
upprisunnar!” Og hinir angandi
blómsturbikarar þeirra beygðu
sig hvor að öðrum. Eilífðarblóm
ljómandi í fegurð morgunroð-
ans, kattaraguu, rósir og llijur—
öll þessi blóm eru þar, hvert um
sig með sínum glitrandi sérkenn-
«s««eiet(ic(ctct(tKtc«cictK«e«ete{e«!ctctetc(c«ctcce(oc«e(C!e«etc«!c<K«c«f«ic«cicis«c«cte«c«ctc<Kic4
»
t?
Innilegar jóla- og nýársóskir iil íslendinga
1CANADIAN STAMP COMPANY
i
I
$at9ta)it>)at»»3)a)itk9}»S)»ai3)ai3!3ia)S)S)3)»3)ai»>)3)a!3)9i3i9)9)9t>!9í9t9ta«»k>d«3)»>)3)at
gteteteteietetetetetctctetetetetetctetetetetetetetctetetetctetetetetgtetctetctetctetctctctetKtetctctetcv
324 SMITH STREET
S. O. BJERRING, framkvæmdarstjóri
I
Geo. D. Simpson óskar öllum íslendingum
gleðilegra jóla og góðs og farsæls nýárs,
með þökk fyrir gamla árið.
1
I
fi
V •
I
V
I
I
I
R
■
|
«
S>»»»»»»»»»»»»»»9t»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»9)9)St>)9)a)9)>)3)9t9)9)9
Geo. D. Simpson
BOX COMPANY LTD.
Main and Parfridge, West Kildonan
Phone 54 339
!
Með hlýjum huga hugsum við til allra meðborgara
vorra og óskum þeim gleðilegra jóla og farsæls kom-
andi árs. Með þökk fyrir góða viðkynningu í liðinni tíð.
Yðar þjónustubundnir,
ALPNA MANUFACTURING
COMPANY LIMITEB
Winnipeg — Canada
Phone 27130
Við búum tii lofthreinsunartæki, katla til hitunar
og eldgæzluvélar.
Blómstur-fræin
Eftir Dr. Jón Bjarnason.
Líkingarmálssaga, sænsk að uppruna.
hafði
um, vegsamleg gjörð fyrir opin-
beran hins hulda lífskjarna, sem
lækpum hefir ekki tekist að
finna með líkskurðarhnífum sín-
um né náttúrufræðingum með
stækkunarglerum sínum.
Næturgalinn syngur. Lækjar-
buldrið heyris.t. Sólin glampar á
grænu laufskrúði. Döggin dreif-
ir út demantskenndum dropum
yfir dúnmjúka gras-ábreiðu
grundarinnar. Fiðrildin líða
suðandi milli blómanna. Hvílík
ur unaður! Hvílík dýrð! Blóm-
in öll hafa hneigt höfuð sín til
þess að biðjast fyrir, full af fagn
anda þakklæti út af því að hafa
þegið alla þessa margfóldu bless-
an. Þau finna til þess, að garð-
yrkjumaðurinn mikli er með
þeim og er með þeim fagnandi
út af hlutskifti þeiwa. Og full-
vissan um það, að þau eru hon-
um velþóknanleg, er mesta fagn-
aðarefnið þeirra.
Hvað skyldi sjálfbirgingarnir
litlu, sem áður voru svo upp með
sér út af “lærdómi” sínum, nú
hafa hugsað? Eg veit það ekki.
Getið þér ímyndað yður það?
—Sameiningin.
w'etetetetetctctctetetetetetéteteieteietetetetetetetetetetetetctetctetetetetetetctctetetetetetetetciete!?)
| Jóla og nýársóskir iil íslenzkra viðskipiavina!
I BRICKMAN'S C0NFECTI0NARY 1
664 SARGENT AVE SÍMI 37 673
&»»»»»»»»»%»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»)>»»»»»»»»»»»»»»ð
'etetetetetctetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetetcteietetetetetetetctcR
1
fi
I
HÁTÍÐAKVEÐJUR TIL ÍSLENDINGA!
CHAS. RIESS & CO.
Vermin Exierminaiors
372 COLONY STREET — SÍMI 33 525
1
ptetetctctctctetetetetctetctetetetetetetctetetctetetetetetetcte^tetetetctetetcteictctctctctctctctctctet
SEASONS GREETING
FROM
CRESCENT CREAMERY C0. LTD.
Crecent mjólkurafurðir eru gerilsneyddar.
Mjólkin, Rjóminn og Smjörið.
CRESCENT CREAMERY C0. LTD.
542 SHERBURN ST.. WINNIPEG — SÍMI 37 101
%»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»»M»e
INNILEGAR JÓLA OG NÝARSÓSKIR
til vorra mörgu viðskiftavina
með þökk fyrir greið og góð viðskipii
um mörg undanfarin ár.
Lakeside Trading
Company