Alþýðublaðið - 24.08.1960, Síða 9

Alþýðublaðið - 24.08.1960, Síða 9
m inda- og sælubros á vör- um, sagði hún okkur frá því í mesta trúnaði, að hún hefði nú istundum brall- að það, að setja svolítíð kartöflumjöl framan í sig og nuddað varirnar með export-bréfi, — þegar hún var orðin skotin í afa og hamaðist sem mest við að reyna að ganga í augun á honum. — Og stelpan, — systir mín, sat föst við sinn keip og hélt áfram að setja á sig augnaskugga og meik. Eg ætla ekki að leggja það á neinn, að lýsa þeim ósköpum, sem upp hófust, þegar hún lauk snyrting- unni með því að mála sig með hvíta. varalitnum. Mamma átti engin orð önnur en þau sömu, sem hún hafði áður látið út úr sér, um lögregluna og allt það, — en amma sagðist ekki geta ímyndað sér, að afi hefði nokkurn tíma lit- ið á hana, ef hún hefði gert þennan skramba, — og mér skildist, að hún þakkaði rauða export-bréfinu ekki alllítið af sinni hjónabands sælu. Síðasta áfall kvöldsins var, þegar uppgötvaðist, að herrann ætlaði ekki að koma að sækja systur mína, heldur átti hún að hitta hann á sjoppu niður í bæ. Þá trylltust þær báð- ar, amma og mamma. „Þetta“, sagði amma, — „hefði hann afi ykkar al- drei látið sér detta í hug, og því síður, að ég hefði látið bjóða mér það. Ó, nei, sá hefði nú fengið að sigla sinn sjó, ■— þótt svo hann hefði próf og væri allra manna fallegastur. Því að það sögðu allir um hann, blessaðan, — að myndar- legri maður væri vand- fundinn........ „Mamma spurði, hvort stúlkur hefðu eiginlega enga sjálfsvirð- ingu lengur, — hvort að lægi svona við að elta þessa stráka .... o. s. frv. — og til þess að sanna mál sitt enn betur, reif hún upp dagstofuhurðina og spurði pabba, — sem var að lesa blöðin, — hvort hann væri sér ekki alveg sammála. — Jú, það er ég áreiðanlega, sagði hann og leit ekki upp frá fréttinni um síðustu til tektir Lumumba og Kasa- vubu. Pabbi lifir eftír þeirri meginreglu, að and- mæla mömmu ekki í neinu og þess vegna jankaði hann án þess að spyrja neins. — Nú vorum við allar þarna á ganginum orðnar öskuvondar, — ég stóð með systur minni, en ammá og mamma á móti. Það endaði þó með því, að við systir mín voru líka farnar að rífast, — því að hún sagði, að ég áliti hana barn, og það játaði ég, að satt væri. S'vo minnti ég hana á, að hún stæli alltaf föt- unum mínum og eyðilegði þau, en þetta vildi hún ekki viðurkenna og fór að telja upp aðskiljanlegustu galla í fari mínu. Allt endaði þetta svo með því, að hún fór að grenja, kastaði í mig stíf- skjörtinu og hvítu skónum, sagði að mamma og amma væru gamaldags og skiln- ingslausar, tróð sér í eitt af sínum eigin níðþröngu pilsum og náði í stóru peysuna hans pabba. Mamma hrópaði, hvort „barnið ætlaði út með þessa stríðsmálningu fram- an í sér,“ en systir mín snéri sér við í dyrunum, berfætt í sléttbotnuðum skónum, (því að hún vildi ekki lengur þiggja sokk- ana, sem mamma hafði ætl- að að lána henni), tárin streymdu grænsvört (af augnalit) niður vangana og mynduðu hvíta farvegi (í meikið), og hvítmálaðar varirnar skulfu, þegar hún hrópaði, að allir væru vondir við sig og and- styggilegir — „nema hann pabbi!“ — Hann hafði held ur ekki sagt neitt. Hávaði harmleiksins á ganginum fór víst alveg fram hjá honum, því þeg- ar við komum inn í dag- stofuna, amma, mamma og ég, heitar í kinnum og bar dagaæstar, — sat hann enn þá með blaðið niðursokk- inn í fréttir af Lumumba og Kasavubu. h. 1ÍT Ung, frönsk o. s. frv. STÚLKAN er álitleg, — finnst ykkur ekki? Til viS- bótar er hún frönsk, — og auðvitaS er hún á leið upp til stjarnanna via kvik- myndirnar. Nafn stúlkunn- ar er Dany Saval. Juliette Greco, sem er ein umtalaðasta franska kvikmyndaleikkonan fyrir sérkennilegan klæðaburð, sérkennilega framkomu og ekki hvað sízt sérkennilegt útlit hefur nú nýlega lokið leik í kvikmynd, sem nefnist Harmleikur í speg- li. Þar leikur hún á móti Orson Welles. — Juliette hefur hlotið lofsamleg um- mæli gagnrýnenda fyrir leik sinn í þessari mynd. in 1 VINBER Ný ítölsk vínber væntanleg í dag Heildsölubjrgðir VerzIanasambandiS b.f. Sími 18560. Steintröppur — pallþrep — fyrirliggjandi. STEINSTÓLPAR H«F« Höfðatúni 4 — Sími 17848. ÚTSALA Seljum næstu daga Blússur verð frá kr. 65.00 Telpukjóla verð frá kr. 100,00 Verzlissiin ÁSA Skólavörðustíg 17 — Sími 15188, Hverfigluggar Smíðum hverfiglugga, læsast með einu hand* taki á fimm stöðum, allur viður gegnum dreifðum í C‘tox fúavarnarefni. Trésrriiðja Gi'ssnrar Símenarsonar við Miklatorg. — Sími 14380. Stey pustyrktarjárn 8—10—16—20—25 mm. fyrirliggjandi og væntanlegt. SBNDRI H.F. Sími 19422. Qaddavír mótavír, bindivír, saumur Heildsölubirgðir VerzSanasambandtð Ei.f. Sími 18560. AlþýSublaðið — 24. ágúst. 1960 0

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.