Alþýðublaðið - 24.08.1960, Side 10
emvigi
Örn Eiðsson skrifar um:
Hefur ísíand
mesta möguleika ?
MíKIÐ er nú rætt og ritað um
Væntanleg úrslit á Olympíu-
leikunum í Róm, sem settir
verða með viðhöfn á morgun.
Mest er skrifað um frjálsíþrótt-
irnar, sem ávallt skipa hæstan
sess á Olympíuleikum. Margir
íþróttasérfræðingar halda því
frám með réttu, að baráttan um
verðlaunin verðj milli stórveld-
anna og þau hljóti 70—80%
vcrðlauna.
Það eu ekki mörg ár síðan
Norðurlöndin hlutu allstóran
hluta verðlauna í frjálsíþrótt-
um, en nú er þetta breytt Þau
hafa aðei'ns möguleika í 4—5
greinum og íþrótasérfræðingar
á Norðurlöndum halda því
fram, að ísland geti náð lengst.
Hver hefði trúað þessu fyrir 12
árum, þegar Olympíuelikarnir
fóru fram í London?
Þrístökksafrek VilhjálmS^ í
Laugardalnum á meistaramóti
felands og einnig á Olympíudcg-
inum í síðustu viku benda til
þess, að hann verði harðuríhom
að taka og komist á verðlauna-
pall Olympíuleika í annað
sinn.
Róm, 22. ágúst.
(NTB).
SVO er að sjá sem ítölsku
Olympíunefndinni hafi tekizt
að framkvæma þá áæííun sína
!að gera Olympíuleikana, sem
hefjast á morgun, hina stór-
fenglegustu í sögunni, en það
hefur líka kostað hana 530 mill-
jónir ísl. króna.
Minjar frá fornöld og há-
nýtízkuleg iþróttamannvirki
standa hlið við hlið. þar sem
rúmlega 6000 íþróttnmenn og
konur frá 85 þjóðun%ínætast í
friðsamlegri keppni.ýfiteði tala
einstaklinga og þjóðá, sem þátt
taka í leikunum, eíþýný met
fyrir Olympíuleika. gi -
Bandaríkjamenn qg Rússar
munu heyja óopi:
um fyrsta sætið meðal þjóð-
anna, þó að leikamir séu raun-
jverulega hugsaðir sem keppni
milli einstaklinga. Er búizt við,
að um helmingur allra verð-
1 iauna fari til Bandaríkja-
I mnna eða Rússa. Ekki er búizt
1 vi'ð, að aðrir en Þjóðverjar, með
sitt sameiginlega lið frá austri
og vestri, fái yfi'r 10—12 verð-
laun.
Almennt er talið, að Rúsar
muni aftur ná flestum verð-
launum, eins og í Melbourne.
Miðasalan hefur ekki gengið
eins vel og vonazt hafði verið
til, en ef hið dásamlega sumar-
veður helzt, er enginn vafí á,
að áhorfendapallamir muni fyll
ast, þegar keppnin hefst. — Frá
mánudegi hafa allir leikvangar,
Olympíuþorpið og vegir miili
Olympíusvæðanna verið böffu®
í flóðljósum og mun svo verða
á meðan á leikunom stendur.
Olympíueldurinn er enn á
kdðinni og mun hafa slokknað
nokkrum si'nnum. 650 hlauparar
hafa þegar borið hann og aðrir
600 bíða eftir, að að sér komi.
Hann kemur til Olympíuvailar-
ins á miðvi'kudagi'ikvöld.
Á meðan á leikunum stendur
munu þrír helikoptar svífa yfir
Róm til að geta setzt og flutt
burtu þátttakendur, er kunna
lað meiðast, og flutt þá til næstu
af 55 slysastofum, sem komið
hefur verið fyrir víða. 250 lækn
ar starfa þar, auk 200 sjiikra-
bera, 160 lijúkrunarkvenna og
50 sjúkrabíla.
'fc BREZKA olympíusveit
ín í 4x100 m. boðhlaupi
setti nýlega nýtt brezkt
met í hlaupinu á 40,1 sek.
Var það í White City í
London í landskeppni við
Frakka. í sveitinni eru: D.
H. Jones, Dave Segal, Pet-
er Radford og Nick White-
head. Hér sézt Radford
skila keflinu til White-
heads. Sveitin hefur nokkr
um sinnum síðan hlaupið
á hinum nýja mettíma.
Vilhjálmur Einarsson
280 milljónir
áhorfenda
RÓM, 19. ág. (NTB/AFP). —
ALLS munu 280 milljónir
manna geta fylgzt með sjón-
varpssendingum frá olympíu-
Ieikunum, sem hefjast n. k.
fimmtudag. 18 Evrópulönd, þar
á meðal Bretland, Frakkland,
Sviss, Holland, Austur- og Vest
ur-Þýzkaland, Austurríki, Sví-
þjóð, Noregur, PóIIand, Ung-
verjaland, Júgóslavía og Tékkó
slóvakía, munu nota ítölsku
sendinguna.
Nokkur önnur lönd, þar á
meðal Sovétríkin, munu senda
kvikmyndir af leikjunum í sjón
varpi sínu. — Japan og Banda-
I ríkin munu nota hið svokallaða
Ampex-kerfi. sem er í því fólg-
ið, að upptökur eru settar inn
á segulbönd. Böndin verða síð-
| an flutt með þotum frá Ítalíu
og nýteknar upptökur verða
sýndar japönskum og banda-
j nskum sjónvarpsnotendum
I r.okkrum túnum eftir upptöku.
Milhka Sing sigurvegari í
400 ?
HVER VERÐA AF-
REKINÁRID 2000?
Meðal alþjóðlegra sérfræð-
inga í frjálsum íþróttum er
það álitið að Indverjinn Milh-
ka Sing (með alskegg og sítt
hár, sett upp í hnakkann)
m.uni sigra í 400 metrum á OL.
Hvar sem hann kemur- fram,
sigrar hann. Fyrir nokkrum j
dögum keppti hann við einn |
erfiðasta andstæðing, franska |
svertingjann Seye. Þá: korn
það í ljós, að Seye, sem kunn-
ur er fyrir sinn fræga enda-
sprett, hafði ekki roð við, hin-
um indVerska síðskegg, 'sem
setti persónulegt met 45,8,: en
Seye hljóp á 46,1, Það mun
verða hörð keppni j Róm í
þessu hlaupi. Auk þessara 2ja
má nefna Þjóðverjann Carl
Kaufmann, sem í ár hljóþ
þessa vegalengd á 45,4 og
Bandaríkjamennimir Earl
Young 45,7 og Otis Davis 45.9.
VIÐ sjáum á hverju ári
miklar framriarir í íþrótt-
um og nú hefur snjall mað
ur viff Aftenposten í Nor-
egi reiknað út hver árang-
urinn muni verða árið
2000, og liérna koma.tölur
hans:
100 m.: 9,95.
200 m.: 19,45.
400 m.:: 44,3.
800 m.: 1:43,1..
1500 m.: 3:30,2.
10.000 m.: 27:40,0.
110 m grind: 12,7..
400 m. grind: 48,2.
Kringlukast: 62,00.
Kúluvarp: 21,50.
Spjótkast; 93,00.
Sleggjukast: 73,00.
Hástökk: 2,30.
Langstökk: 8,40.
Þrístökk: 17,40.
Stangarstökk: 5,00.
Tugþnaut: 9300 stig.
Greinarhöfundurinn tek
ur fram, að það geti verið,
að fyrrgreindum árangri
verffj náð fyrr, t. d. árið
1970, í stöku greinum, en
hann telur, að ef svo verði
muni sá árangur st'anda til
ársins 2000, áffur en nokk-
ur komist fram úr honum.
Svo bíðum við bara og sjá-
um til.
mmwmmmmMMMWWMHMMMMMMMMMMMMMWMW
JQ 24. ágúst 1960 — Alþýðublaðið