Kirkjublaðið - 01.07.1892, Blaðsíða 3
ííé
og lærisvöinar Pýþagórasar forðurn: »Hann sagði það
sjálfur«. Væntanlega íiytur Kbl. þetta erindi síðar.
Biskup talaði því næst um hreinleik kenningarinnar,
einkum í tilefni af framkomu sjera Matthíasar. Nokkrar
umræður urðu um það mál. Bp. skýrði frá afskiptum
sínum af því máli.
Kl. 4 var fundi slitið.
Kvöldfundur var settur kl. 81/*, þá viðstaddir 21.
Helgi lektor Hálfdánarson fiutti fyrirlestur nm helgi-
siði, og var gerður góður rómur að. — Aptur varð ekki
af fyrirlestrþ sem sjera Olafur í Guttormshaga ætlaði að
fiytja, hefði hann getað sótt fundinn.
Sjera Jens Pálsson hreyfði síðan kristniboðsmdlinu,
skýrði frá, hvað málinu hefði miðað áleiðis frá því í fyrra.
Um tvennt væri að ræða, kristniboð meðal heiðingja, og
samskot til hins væntanlega lúth. skóla kirkjufjelagsins
íslenzka í Vesturheimi. Sjera Helgi lektor Hálfdánarson
taldi mestu tormerki á kristniboði meðal heiðingjanna;
bæði væri fátækt landsins mikil, en þó væri einkanlega
ástandið núna svo hræðilegt víða í kristnum löndum, að
það væri líkast því, sem »ræningjar væru að taka að
sjer börn til uppeldis«, þegar slíkir kristnir menn tækju
heiðingja inn í sitt trúarfjelag. Því væri víst víða full
ástæða til, að iáta staðar numið um stund með kristniboð
á meðal heiðingja; tímarnir til slíks hefðu og jafnan verið
misjafnlega hentugir. Aptur var sjera Helgi meðmæltur
samskotum til Vestur-ísl., sömul. bp. en sem þeir vildu
eigi kalla kristniboð. Sjera Þorkell mælti kristniboðs-
málinu bót. Ekki var leitað atkv. um málið.
Bp. minntist trúarboðsstarfsemi Runólfs Runólfssonar
meðal íslenzkra mormóna í Utah og skoraði á viðstadda
presta að leita dálítilla samskota hjá söfnuðum sínum til
að styðja Runólf; var því vel tekið.
Síðasta málið á dagskrá var bindindismálið Sjera Jó-
hann Þorkelsson var frummælandi. Bp. las up ávarp til
andlegrar stjettar manna og skýrði frá stefnu þess. Ýmsir