Kirkjublaðið - 01.07.1892, Qupperneq 15

Kirkjublaðið - 01.07.1892, Qupperneq 15
Nokkrar athugasemdir við ritgjörb sjera Þorkels Bjarnasonar. (Eptir bónda í Skagafirði)1. I Kbl. nr. 4 f. á., hefir sjera Þoikell prestur Bjarnasou skrifað ritgjörð um trúrækni og kirkjulíf fyr meir. Sumt í ritgjörð þessari fjell mjer þegar ekki í geð, og vonaði, að einhver yrði til að leið- rjetta það, en tii þess heíir enn þá enginn orðið, og vil jeg því biöja yður, háttvirti ritstjóri, að ljá þessum fáu athugasemdum rúm í blaði yðar. Presturinn segir, að húslestrar haíi verið rækilega lesnir frá veturnóttnm og fram að páskum. En honum hef'ði verið óhætt að segja fram undir uppstigningardag, því það var almennt gjört hjer í norðurlandi. Pyrst framan af öldinni voru lesnar Sigurhrósshug- vekjur og sungnir upprisusálmar Steins biskups eptir páskana; svo vorhugvekjur Stúrms, og sungin Sigurljóð Kristjáns prófasts Jó- hannssonar, eða þá vorhugvekjusálmar Björns Brandssonar eptir að þeir komu út 1838. Þar sem hann segir frá ferðabænalestrinum, heíir honum gleymzt að geta þess, að þegar bænin var enduð, buðu menn hver öðrum góðar stundir, ef fieiri urðu samferða; líkt gjörðu sjömenn, þegar þeir höfðu lokið sjóferðabæninni; þó höfðu þeir það nokkuð öðru- vísi, þeir sögðu: »Guð geíi oss góðar stundir, skipsmönum, í Jesú nafni«. Hann nefnir heldur ekki, að ferðabæn haíi verið lesin, nema þegar menn fóru til kirkju; en það var allt að einu gjört, hvert sem menn ferðuðust, og margir ferðamenn gjörðu það á hverjum morgni, þegar þeir lögðu af stað, alla ferðina út. Hann segir, að flestir fermdir menn haíi verið til altaris einu sinni á ári. Það er eigi rjett hermt, því í flestum prestaköllum var hjer alvenja að vera til altaris vor og haust, og hjelzt sá siður fram undir miðju þessarar aldar. Þá var það einnig sjálfsagt, að þeir sem fluttu úr sókninni, voru til altaris áður en þeir fóru, og var þess opt getið í prestsseðlunum. Að kappræður um trúarlærdóma kirkjunnar hali tíðkast hjer norðanlands, vissi jeg ekki til, enda mun það hafa verið mjög sjald- an. En til þess vissi jeg, og var heyrnarvottur að því, að einstöku menn höfðu stundum þann sið í samkvæmum, að biðja prestana að skýra fyrir sjer ýmsa biflíustaði, helzt í gamla testamentinu t. d. hverjir þessir synir guðanna hefðu verið, sem tóku sjer dætur mannnanna á dögum Nóa. Hvernig ætti að skilja það, að Guð hefði forhert hjarta Faraós, eða að hann hefði sent illan anda yíir 8ál konung o. fl. Ekki vissi jeg heldur til, að Níels skáldi tíðkaði kappræður um trúarlærdóma. En ef það kom fyrir, varþað optast af því, að hann heyrði einhvern rengja bifliuna, því þá var honum jafnan að mæta, eins og hann sýndi, þegar hann orti Næturfælu á 1) Höf. er eldri maður en sjera Þorkell.

x

Kirkjublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.