Kirkjublaðið - 01.02.1894, Qupperneq 5
21
alkunnugt, að á málum ritningarinnar er opt haft orðio
»hefnd« fyrir »hegning«.
Syndaflóðið fær ekki góða útreið hjá höf. Einkum
hneykslast hann mjög á því, að Guði sje eignað hverf-
lyndi, þar sem hann eyddi mannkyninu, er hann í fyrstu
skapaði gott, en orðið var spillt eptir syndafallið. Eng-
um er láandi, þó að hann ekki skilji til fulls ráðsálykt-
anir Drottins í þessu sem svo mörgu öðru. En nokkuð
er það djarft, að álíta allar frásagnir hinna helgu rita um
dularráðstafanir Drottins öfgar einar, þó að þær ekki
skiljist til fulls. Höf. fullyrðir, að flóðið hafl að eins kom-
ið yflr mjög lítinn hluta jarðarinnar eða að eins þau
hjeruð, er voru í grennd við Nóa; en hvað ætli höf. viti
um það. Það er reyndar skoðun margra fræðimanna,
að flóðið hafi að eins komið yfir nokkurn hluta jarðar-
innar; en þeim kemur ekki saman um, hvað mikin hluta;
enda er sú grein jarðfræðinnar, sem að þessu lýtur, enn
mjög á reiki og breytingum undirorpin. Það er annars
merkilegt, hvað margir eru auðtrúa á ósannaðar getgátur
visindamannanna, sem opt standa ekki óbreyttar nema
nokkur ár, en þykjast ómögulega geta trúað orðum
ritningarinnar, þó að þau hafi staðizt árásir margra alda.
Að því er það snertir að flóðið hafi haft sínar eðlilegu
orsakir, þá er engin ástæða til að efast um það. En
það er heldur engin ástæða til að efast um að flóðið hafi
ígetað verið refsidónnir Drottins. Hver skyldi efast um
það, að Guð geti látið öfl náttúrunnar hafa áhrif á rás
viðburðanna? Og það má enda í vissum skilningi telja
víst, að Guð láti allt, sem hann lætur koma fram við
mennina, koma af eðlilegum orsökum, þó að vjer getum
ekki alltaf rakið þær.
Þá talar liöf. um það, hvað það hafl haft óviðkunn-
anleg áhrif á sig, hvað Guð sje í gamla testamentinu
látinn vera harður og refsingasamur. Það er satt, að
slíkt getur opt verið mjög svo óviðfelldið eptir hugsunar-
hætti vorrar aldar; en þetta er auðvitað miðað við forn-
austurlenzkan lmgsunarhátt, eins og höf. tekur fram.
En það er eðlilegt, að ritningin, eins og hver önnur bók,
beri að ýmsu leyti einkenni þess tíma, sem hún er rituð