Kirkjublaðið - 01.02.1894, Blaðsíða 7

Kirkjublaðið - 01.02.1894, Blaðsíða 7
23 leitum skáldskap. Því má og ekki gleyma, að taka ekki innblástur heilagrar ritningar allt of bókstaflega. En þetta atriði er allt of umfangsmikið til að fara frekara út í það bjer. Það er víst rjett, að orðið »eilífur« þýðir sumstaðar í ritningunni ekki annað en »langvinnur« eða »varanleg- ur«. En varasamt er þó, að draga aí því mjög djarfar ályktanir. Til þess þarf þann lærdóm og þá djúpsæi, sem ekki er að gjöra ráð fyrir hjá öllum. Lærdóminn um eilífa hegningu vil jeg ekki gjöra hjer að umtalsefni. Kbl. hefir áður rætt það mál ræki- lega frá sínu sjónarmiði, og mun ekki óska eptir frekari umræðum um það að svo komnu; enda mun það ekki þýða mikið að gjöra dýpstu leyndardóma trúarinnar að umræðuefni alþýðlegra blaða. Það skal fúslega viður- kennt, að margir kirkjunnar menn, einkum á fyrri öld- um, hafa háskalega misbrúkað þennan lærdóm til þess að hræða menn til trúar og lífernisbetrunar, og í því skyni aukið við hann ýmsu, sem engin heiniild er fyrir í ritningunni. En slík siðbótaraðferð rnun nú varla eiga sjer stað framar, og menn eru farnir að sjá, að bæði er rjettara og affarasælla, að laða menn til Guðs ríkis með kærleika. Þarf því ekki að fjölyrða um þetta atriði. En hitt fæ jeg ekki sjeð, að trúarbragðaofsóknir, rannsókn- arrjetturinn á Spáni, galdrabrennurnar og fleira af þvi tagi, hafl staðið í nokkru beinu sambandi við lærdóminn um eilifa hegningu. Þetta átti sjer aðrar orsakir. Opt- ast var það stórkostlegur misskilningur á kristindómin- um, sem olli þessum guðlausu athöfnum; en stundum var það að eins pólitiskt bragð óhlutvandra manna, til að hrifsa undir sig völd eða eignir annara, og höfðu þeir kristin- dóminn að skálkaskjóli. Það er rjett, að andi kristindómsins er kærleikur og umburðarlyndi. En á hann þá ekki rjett á, að dæmt sje um kenningar sjálfs hans með kærleika og umburðar- lyndi? Það er naumast samkvæmt kærleikanum, að særa að óþörfu trúartilfinningar annara, og ekki heldur það, að hneyksla smælingjana. Slíkt er ekki hollt börn- um vorum. V. B.

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.