Kirkjublaðið - 01.08.1897, Side 8

Kirkjublaðið - 01.08.1897, Side 8
120 í oss vera varast þeirra víti og temja oss stilling og hóf og sjálfs- aga í öllum allsherjarmálum, en þeim fyrst og fremst, sem lúta aS vorri æSstu siSmenning. AS vór vöknum til meiri afskipta og framtakssemi í kirkju málum er sjálfsagt, og eitt heyrir þar til, aS menn skoði ekki kristindóminn sem eitthvað fornt og þr'öngt, tómar kreddur eða leyndardóma, heldur mannkynsins mesta ljós og frelsi gagnvart allri heimsku, hleypidómum og ánauð, sem menningarmeðal, er ekki má trúa fyrir nema menntaðasta og göfgasta parti þjóðarinnar. Kirkjulegu meinsemdirnar eptir sjera Jóhannes L. L. Jóhannsson. (Niðurl.) Það er líka skakkt að ímynda sjer, sem sumir sýnast gera, að vjer, sem viljum breyta einhverju í hinu ytra fyrirkomulagi kirkjunnar, höldum endilega, að það út af fyrir sig skapi nýtt lif, eða höfum þá íölsku hugsjón að það sje höfuðmálið. En hitt er vist, að eitt af stuðnings- meðulunum til umbóta getur það verið. Þeir, sem vilja breytingarnar, þurfa eigi þar fyrir að vera blindir fyrir hinum sönnu tneinsemdum eða gleyma innri hliðinni. Það má, meira að segja, hugsa sjer að það atvik geti komið fyrir, að breyting á ytra fyrirkomulaginu væri lífsskilyrði fyrir kirkjuna. Setjum svo, að ríkisstjórn einhvers lands veitti kennaraerabætti við prestaskólann vantrúuðum guð- fræðingi. Vist mundi þá skilnaður frá ríkinu vera nauð- synlegur til varðveizlu innra lífinu. Eitt af þvi, sem prestaskólinn hjá oss þyrfti að vekja áhuga lærisvein- anna á, er fríkirkjumálið. Þvi að þegar prestarnir eru almennt orðnir því hlynntir og útbreiða ást á því í söfn- uðunum, þá er trúlegt að málinu fáist framgengt, og þá kemur það engum á óvart, er að framkvæmdunum rek- ur. Þá má geta þess, að marga presta mun vanta alúð til að afla sjer þekkingar á kristindómsfræðum meðal annara þjóða, sem þó hefir svo glæðandi áhrif á andann, og má vera að þetta sje eigi nóg brýnt tyrir mönnurn á • prestaskólanum. Guðfræðismenntun sína er prestum einn-

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.