Kirkjublaðið - 01.08.1897, Side 12
124
að elska svo endurlausnara sinn, sem fyrir oss alla leið,
til að frelsa oss frá synd, dauða og djöíuls valdi, að menn
finni þörf i sálu sinni til að minnast hans ráðarríku vel-
gjörða og leita styrks hjá honnm með því að vera gest-
ir við hans sýnilega borð á jörðu. En jeg blygðast mín,
þegar jeg tala um þetta, því jeg finn, hversu ónýtur
þjónn jeg er og jeg fell fiatur niður í undrun yfir mikil-
leik Guðs, að geta notað mig, slíkt ófullkomið og ljelegt
verkfæri í sinni þjónustu, til þess að sá nokkrum gódum
frækornum hans ríki til útbreiðslu, að jeg vil, í auðmýkt,
vona. Jeg finn að það er trúin á Drottin Jesúm, sem
hefir haldið mjer upp úr í hörmungum lifsins, og jeg óska
að sem flestir fengi að reyna krapt hennar; því er jeg
nú að tala um þetta. Sannarlega eigum vjer, ninir yngri
prestar, örðugt að verða að taka við kirkjulífinu sofandi
og daufu og eiga að reyna að blása nýju lífi í það. Vjer
þurfum þv/ að biðja Guð um nýjan krapt og mikla
framför.
Svo að jeg nú víki aptur að höfuðefninu, þá mundi
jeg svara báðum spurningunum: »Hvers vegna eru svo
margir vantrúaðir?« og »Hverjar eru orsakir vorra kirkju-
legu meina?« á þessa leið: »t»að er af þvi, að presta-
skóli cg prestasjett landsins eða verkamenn kirkjunnar
yfirleitt haf'a eigi tekið nógum framförum í andlegum
dugnaði með boðskap sinn og eigi fylgzt nógu vel með
tímanum, sem veldur því að þeir og fiutningsmálefni
þeirra hefir dregizt aptur úr. Þeim hefir eigi tekizt að
láta andaafl kenningar sinnar ganga jöfnum fetum áfram,
sem allar aðra andlegar aflsuppsprettur til samans hjá
þjóðinni hafa gengið. Eigi hugsað út i það, að raust
kristindómsins þurfti að styrkjast æ þvi meira, sem fieiri
aðrar raddir fóru að tala til fólksins. Og í einu sagt, af
því að starfsmenn kirkjunnar eru eigi nógu fullkomnir,
eptir því sem vor tími heimtar*.
Menn sjá á þessu, að jeg finn orsakirnar á líkum
stöðum, sem þeir 2 menn, er jeg nefndi í upphafi grein-
arinnar, og er þeim samdótna um það, að vjer þurfum
að fá betri presta. En jeg hefi reynt að leita að orsök-
um orsakarinnar, ef 3VO mætti að oiði komast, nefnilega