Kirkjublaðið - 01.08.1897, Side 16

Kirkjublaðið - 01.08.1897, Side 16
128 Arsfundur Biflíufjelagsins var 30. júní. FjelagiS átti í sjóði 22,000 kr., fyrir seldar biflíur komu inn rúmar 100 krónur árið 1896. Biskup skyrði frá undirbúningsráðstöfunum stjórnarinnar til endurskoðunar á þýðingu biflíunnar; hefir hún ráSið háskóla- kandídat Harald Níelsson til þess, aS byrjaá þyðingu gamla testa- mentisins næstkomandi vetur, og ætlar honum 100 kr. á mánuSi fyrir starfa sinn. Ætlast er til aS 3 mamia nefnd, biskup, for- stöSumaSur prestaskólans og yfirkennari Steiugrímur Thorsteinsson hafi eptirlit með endurskoðuninni, eptir því sem verkinu miðar á- fram, og eigi vikulega fund með þýðaranum. Eigi verður sagt fyrir, hve langan tínia tekur að endurskoða gamla testamentið. Þó aS hjer ræði aðallega um þýðingu frá hin- um beztu erlendu þýöingum, meS stöðugri hliðsjón af hebrezka frumtextanum, er verkið samt mikið og vandasamt og hlýtur að standa yfir nokkra vetur. Erlendis liefir fjöldi hinna læröustu vís- indamanna í þeim greinum setiS áratugum saman yfir þýðingu biflíunnar á hin helztu heimsmálin. Engar ráðstafanir eru enn gjörSar með endurskoðun nýja testamentisins, en aS sjálfsögSu mun fjelagið færast þaS í fang, er endurskoðun gamla testamentisins er komin á góSan veg. Stjórn fjelagsius skipa áfram sömu menn og aS undanförnu. Guðfræðispróf við háskólann hafa í ár tekið Haraldur Níelsson með 1. einkunn og Friðrik Hallgrímsson með 2. einkunn. Biflía hins íslenzka Biflíufjelags, gefin út í Reykja- vik 1859, fæst hjá skrifara fjelagsins (ritstjóra Kbl.), innbundin á 5 kr. og óbundin á 2 kr. Send til Vesturheims í krossbandi kostar innbundin biflía 7 krónur 50 a., eða 2 dollara. Bóksalar og bókbindarar, er taka í einu minnst 5 eintök af •óbundnum biflíum, fá mikinn afslátt. Sameiningin, mánaðarrit hins ev. lút. kirkjufjel. ísl. í V.-h 12 arkir. 12. árg. Ritstj. sr. Jón Bjarnason í Winnipeg. Verð hjer 2 kr. Hjá bóks. Sig. Kristjánssyni í Rvík o. fl. víðsv. um land. KirkjuMaðið — borg. f. 15. júlí — skúfleg uppsögn sje kom- in til útgefanda fyrir 1. októb.— 12aikirauk smárita. 1 kr. 50 a. í Vesturheimi 60 cts. Eldri árg. lást hjá útgef. og útsölum. KTTSTJÖFT: ÞÓRHALLUB BJARNARSON. ísafoldar-prentsm. —Reykjavík.

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.