Alþýðublaðið - 22.09.1960, Page 1
41. árg — Fimmíudagur 22. sept. 1960 — 214. tbl.
VIÐRÆÐURNAR _við
Breta um fiskveiðideiluna
hefjast í Reykjavík 1. okt.
n.k. Hefur ríkisstjórnin nu
tilnefnt 5 manna viðræðu
nefnd til þess að ræða við
viðræðunefnd frá Bretum.
ALÞÝÐUBLABINU barst í
gær eftirfarandi fréttatilkynn-
ing frá utanríkisráðuneytinu:
Svo Sem áður hefur verið tll-
kynnt hefur ríkisstjórn Bret-
lands farið þess á leit við rík-
isstjórn íslands, að teknar verði
upp vSðræður um fiskveiði-
deiluna. ' j
Hefur nú verið ákveðið að
þær viðræður hefjist í Reykja- í
vík 1. október næstkomandi. ‘
Af íslands hálfu taka þessir
menn þátt í viðræðunum:
Hans G. Andersen, ambassa-
dor. Diavíð Ólafsson, fiskimála-
stjórj Gunnlaugur E. Briem,
ráðuneylisstjóri. Henrik Sv.
Björnsson, ráðuneytisstjóri. 3 ón
Jónsson, forstjóri Fiskideildar.
Utanríkisráðuney tið,
Rvík, 21. sept. 1960.
LtllvUK
ic GUÐBJORG Þorbjarn-
ardóttir og Róbert Arn-
finnsson á sviði Þjóðleik-
hússins í gær. En þetta er
bara æfing. Reykvikingar
fá ekki að sia þau fyrr en
um mánaðamótin, þegar
Þjóðleikhiisið tekur til við
fyrsta verkefni sitt á leik-
árinu: — Engill, horfðu
heim. Leikritið er byggt á
samnefndri skáldsögu
Thomas Wolfe, en Jónas
Kritsjánsson þýddi. Bald-
vin Halldórsson er leik-
stjóri.
Tokíó, 20. sept. (NTB).
ENGIN von er talin til að
bjarga 67 mönnum, sem lokuð-
ust niðri í kolanámu í Japan í
morgun. 60 námamenn sluppu
lifandi er vatnsflóð flæddi nið-
ur í námuna en 67 urðu of sein-
ir.
HINN 9. júní síðastlið
inn ljóstraði Alþýðublaðið
upp um nýtt frímerkja
hneyksli hjá Póst og síma
málastjórninni. Fékk það
heitið „Lundgaardmálið“
eftir dönskum verkfræð
ingi, sem póststjórnin af
henti 100 sett af ,nýtrykki‘
af auraútgáfunni frá 1904.
Samkvæmt nýútkomnum
frímerkjaverðlista eru
þessi merki verðlögð á sam
tals 1.4 milljónir íslenzkra
krona.
Póst- og símamálastjórnin
hélt því fram í fréttatilkynn-
ingu, að ekkert athugavert væri
við þetta mál Það var ekkj
fyrr en Aiþýðublaðið hafði afl-
að sér gagna erlendis, sem sönn
uðu að póst- og símamálastjórn-
iu hefði farið með rangt mál á
opinberum vettvangi, að dóms-
málaráðuneytið vísaði málinu
til réttarrannsóknar fyrir saka-
dómi.
í auraútgáfunni frá 1904 eru
18 merki. í sænska frímerkja-
Framhald á 5. síð'u.
Ég er í stofufangelsi, segir Krustjov
New York, miðvikudag.
NTB—REUTER.
í dag gekk Krústjov út
á svalirnar á byggingunni
við Park Avenue, þar sem *
hann býr, brosti breitt og
kallaði til blaðamanna og
vegfarenda: Ég er í stofu-
fangelsi. — Síðan hallaði
hann sér lengra út yfir
handriðið og hóf all ó-
venjulegan fund með
blaðamönnum. Umferðar-
öngþveiti, varð óskaplegt
á samrí stundu, en K
brosa. Ökuþórar og far-
þegar hrópuðu: Hunzk-
astu heim, við viljum ekki
hafa þig hérna. Maður á
mótorhjóli rétti upp þum-
alfingur. K svaraði með
því að vísa þumalfingri
niður og brosti nú sínu
breiðasta brosi. Nemend-
ur í kvennaskóla handan
götunnar héngu út um
gluggana og sungu „Guð
blessi blessi Ameríku“ —
hástöfum.
Meira um K á 3. síðu.
I