Alþýðublaðið - 22.09.1960, Blaðsíða 10
Batletskéti
Þetta er hús
HELSINGFORS: — Þessi undarlegi hlutur er bygging, eða
módel að byggingu. Finnski arkitektinn Viljo Rewell hefur
gert það fyrir verzlunarfyrirtæki í Turku í Finnlandi. Húsið
, er þríhyrnt og verður þar banki og skrifstofur. — Rewell varð fyrst frægur er hann árið
! 1958 vann fyrstu verðlaun í samkeppni um nýtt ráðhús í Toronto í Kanada.
WWWWWMWMMWMWMWM»>MMWWIMMtWW*IIWWMWWMMWWWMWWMWtM*WWlt
árkrókskirkju
Orgelsjóbur Sauð-
HINN lamdskunni hagyrð-
ingur ísleifur Gíslason lézt
hér á Sauðárkróki hinn 29.
, júlí s. 1. og var jarðsettur
hinn 6. ágúst frá Sauðárkróks
kirkju. Kirkju þeirri unni
hann mjög, hafði starfað í
sóknarnefnd Sauðárkróks-
safnaðar í fjölda ára og var
þar stoðugur kirkjugestur, átti
•sitt fastákveðna sæti við
hverja guðsþjónustu. Nú er
sæti hans autt, en dóttir hans
'og tengdasonur, þau hjónin
Elísabet ísleifsdóttir og Krist
jón Kristjónsson forstjóri,
hafa minnst hans á verðugan
bg honum áreiðanlega mjög
hugþekkan hátt með 5.000.00
kr. minningargjöf í Pípuorg
elsjóð Sauðárkórkskirkju.
Um leið og ég þakka inni-
:lega þessa gjöf, sem er stærsta
gjöf einstaklinga til sjóðsins,
langar mig til að geta sjóðsins
nánar með nokkrum orðum.
Hugmytndin um stofnun
.j>ípuorgelsjóðs fyrir Sauðár-
krókskirkju er orðin nokkuð
gömul, upphaflega komin frá
Eyþóri Stefánssyni tónskáldi,
organista og söngstjóra kirkj
unnar. Gekkst hann fyrir
því, að kirkjukórinn gaf á
60 ára afmæli kirkju-nnar ár
ið 1952 10.000.00 kr. til stofn
unar sjóðsins. Oddgnýr Ólafs
son Sauðárkróki gaf þá einn
,.ig 1.000.00 kr. og nokkrir
spilafélagar 2500,00 kr. Var
síðan hljótt um mál þetta um
22. sept. 1960 — Alþýðublaðið
nokkurt skeið, því fyrirsjáan
legt var, að ekki mundi hægt
að koma pípuorgeli fyrir í
kirkjunni, fyrr en hún hefði
verið stækkuð, en sú fram-
kvæmd var reyndar þegar á
kveðin og framkvæmd nú
fyrir nokkru Er hinu væntan
lega pípuorgeli búinn þar
mjög vel hæfur staður.
Er hafist var handa um
stækkun og endurbyggingu
kirkjunnar, komst einnig
skriður á söfnunina í pípu-
orgelsjóðinn. Hafa honum
borist margar ágætar gjafir
frá einstaklingum og fyrir-
tækjum, gjafir, sem kirkjan
tjáir innilegt þakklæti sitt
fyrir og verður nánar greint
frá þéim, þegiar orgeilið er
komið upp.
Kirkjukór Sauðárkróks-
kirkju hefur haft veg og
vanda af máli þessu undir for
ystu söngstjóra síns Eyþórs
Stefánssonar, Hefur kórinn
unnið að þessu af miklum
dugnaði í samráði við aðra
safnaðrmenn og er árangur
inn ágætur, þegar miðað er
við það, að söfnuðurinn hefur
orðið að taka á sig miklar á
lögur vegna endurbyggingar
kirkjunnar, en hún ler nú líka
söfnuðinum til mikils sóma í
hvívetna.
Er mú svo komið málum, að
síðar í þessum mánuði er
pípuorgelið væntanlegt til
landsins, Köhler-orgel 12
radda við vandaðasta að allri
gerð. En vegna breytinga á
gengi gjaldeyris og aukinna
skatta verður orgelið mun dýr
ara en í fyrstu var búizt við
og því skortir enn allmikið fé
til þess að hægt verði að
greiða orgelið að fullu. Væri
því óneitanlega mjög æski-
legt, að burtflutt sóknarbörn
og aðrir fjarstaddir velunnar
ar Sauðárkrókskirkju tækju
nú höndum saman við heima
menn um að safna fé til fulln
aðargreiðslu þessa göfuga
hljóðfæris, sem um ókomin
ár mun vonandi flytja Sauðár
króksbúum sem og Skagfirð
ingum öllum margt af því
bezta, sem drottning listanna
á í arfi sínum.
Framkvæmdanefnd sjóðs-
ins skipa nú: Kristján C.
Magnússon skrifstofumaður,
Eyiþór Stefánsson tónskáld og
Þórir Stephensen sóknar-
prestur. Mun sú nefnd ásamt
sóknarnefnd veita viðtöku
öllum gjöfum sem sjóðnum
berast.
Tökum öll höndum saman
um að hrinda þessu merka
máli í framkvæmd.
Sauðárkróki, 9. sept. 1960.
Þórir Stephensen.
Kennsla hefst mánudaginn 3.
október að Freyjugötu 27.
Píanóleikari verður
Kristín Þórarinsdóttij*
Innritun o<r upplýsingar í síma
3 21 53.
Duglepr
óskast. — Vinnutími fyrir hádegi.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins — Sími 14-900.
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif
enda víðsvegar um bæinn frá n.k. mánaðar
mótum. Þeir, sem kynnu að hafa hug á að taka
þetta að sér, ættu að tala við afgreiðsluna sem
fyrst.
Afgreiðsla Alþýðublaðsins — sími 14 900.
Aðsfoðarlæknissfaða.
Staða aðstoðarlæknis í Fæðingardeild Land
spítalans er laust til umsóknar frá 15. nóv.
næstkomandi. Laun samkvæmt launalögum.
Umsóknir með upplýsingum um aldur náms
feril og fyrri störf sendist til skrifstofu ríkis
spítalanna, Klapparstíg 29, fyrir 1. nóv. 1960.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Sendisveinn
Sendisveinn óskast allan daginn
í vetur.
ÍUFÍLAGIB
Klapparstíg 27.
X'X X
NflNKIN
* * *."l
KHakc 1