Alþýðublaðið - 22.09.1960, Side 14
EFNAHAGSMAL
f ramhald af 4. síðu.
tmínum dómi síðbúin en rót-
tæk tilraun til slíkrar leiðrétt
ingar_ Ég hef engan mann
hitfc, sem ekki hefur verið á
iþeirri skoðun, að uppbygging
á íslandi ætti að ganga eins
hratt og hægt væri.
Engu að síður tel ég það
eiga að vera kröfu verkalýðs-
hreyfingarinnar. að áfram-
haldandi uppbygging fari
fram samkvæmt áætlun
lengra fram í tímann út frá
raunsæjum útreikningum á
því, hverju þjóðin hefur efni
á hverju sinni. Slíkar áætl-
anir um aðaldrætti verða að
sjálfsögðu að vera í stöðugri
endurskoðun eftii því sem að
stæður breytasl, og þær geta
ekki náð til smáatriða. En
þær hafa reynzt gagnlegar í
Noregi, ekki sízt vegna þess
yfirlits um auðliudn og fram
tíðarmöguleika, sem starfið
við þær veitir.
Reynslan ætti að geta kennt
íslendingum, að nauðsyn er á
skipulagi til að forðast of-
þenslu og illa undirbúna fjár
festingu.
Meðan á dvöl rninr.i stóð
var mér tjáð, að samþykkt
hefði verið stofnun nýs ráðu-
neytis til að hafa umsjón með
ofnahagslegri uppbyggingu í
landinu. Frá sjónarmiði laun-
jiega hlýtur það að vera æski
legt, að verkalýðshreyfingin
verði spurð ráða og fái tæki-
færi til að fylgjast náið með
þeirrj starfsemi.
iÞað fer að sjálfsögðu eftir
slcipulagi verkalýðshreyfing-
arinnar, hversu mikinn þátt
hún getur tekið í hinni hág-
hýtu hlið þessa starfs.
Á hinum Norðulöndunum
heíúr verkalýðshreyfingin
komið upp eigin hagfræði-
skrifstofum eða rannsókna-
deildum, sem eiga að annast
þetta verkefni meðal annars.
í Noregi og Svíþjóð eru þess-
ar deildir í beinum tengslum
við Alþýðusambandið. í Dan
rnörku og Finnlandi eru þetta
stofnanir, sem þjóna bæði
verkalýðshreyfingunni, neyt
ctidum, samvinnuhreyfing-
unni og verkalýðsflokkunum.
Á hagfræðiskrifstofunni í
Noregi stariar einn ráðunaut-
ur og fjórar skrifstofustúlkur
'auk yfirmanns stofnunarinn-
ar.
Skrifstofan gerir mánaðar-
iegar skýrslur um meðlimi
verkalýðsfélaganna, yfirlit um
kauptaxta og vinnudeilur,
sem trúnaðarráð Alþýðusam-
ibandsins f.ær til meðferðar, og
c-ér um að nýjustu upplýsingar
um þróunina í kjaramálum
(uppsagningar, samninga og
þess háttar jkomist í hendur
stjórnar Alþýðusambandsins,
sambandsíélaganna og ann-
arra, sem hagsmuna hafa að
gæta. Skrifstofan gerir árs-
fjórðungslega yfirlit um þró-
un verðlags og kaupgjalds í
hinum ýmsu starfsgreinum.
Það fjallar um laun í krónu-
14 22. sept. 1960
tölu fyrir karla og konur^
vísitölu verðlags og vísitölu
kaupmáttar. Yfirlitin eru fjöl
rituð og send sambandsfélög-
unum og öðrum launþegasam
tökum.
Skrifstofan fylgist nákvæm
lega með þróuninni á vinnu-
markaðnum og lætur fram-
kvæmdastjórninni Oq sam-
bandsfélögunum í té ársfjórð
ungslegar skýrslur um þróun
iðnaðarframleiðslunnar.
Skrifstofan semur á hverju
ári greinargerðir um ýmis
mál, svo sem nýja strauma í
efnahagslífinu, væntanlega
verðlagsþróun, kaupgjaldsmál,
skatta- og tollamál og þess
háttar. Áhrifin af styttingu
vinnuvikunnar í marz 1959
hafa verið rannsökuð. Skrif-
stofan hefur átt þátt í breyt-
ingu og rýmkun á verksviði
styrktarsjóða félaganna. Hún
hefur unnið að því að koma a
notkun gatspjalda við inn-
heimtu félagsgjalda, gert yfir
lit um greiðslufyrirkomulag
og fjáröflun almannatrygg-
inga í Noregi og öðrum lönd-
um o. s. frv.
Hagfræðingar norska Al-
þýðusambandsins eru skipað-
ir í ýmis opinber ráð og nefnd
ir. Má þar nefna ráðgefandi
nefnd, sem fylgist með alþjoð
legri efnahagssamvinnu, „an-
tidumping“-nefndina, vinnu-
tímanefnd, söluskattsnefnd,
nefnd, sem fjallar um skýrsl-
ur varðandi vinnumarkaðinn,
sparnaðarnefnd, tryggingaráð
og fleiri. Þeir eru fulltrúar
Alþýðusambandsins á ýmsum
þingum og ráðstefnum, sem
fjalla einkum um hagfræðileg
málefni.
Námskeiðin eru þýðingar-
mikill hluti starfseminnar.
Starfsemi verkalýðshreyfing-
arinnar má ekki miðast ein-
göngu við þjóðhagsleg sjónai’-
mið. Það er einnig mikilvægt
að trúnaðarmenn hreyfingar-
innar og meðlimir fylgist með
því sem gerist og fái að vita,
hvers vegna stefna sambands-
ins er svo eða svo. Fyrirlestrar
eru haldnir til að örva skiln-
ing á almennum þjóðhagsleg-
um viðfangsefnum. Mér virð-
ist, að þessi fræðslustarfsemi
innan verkalýðshreyfingarinn
ar hafi mjög mikið gildi og
að hún sé aukin víða um lönd
ár frá ári.
Osló, 4. ágúst 1960.
Per Dragland.
Kongó
Framhald af 3. síðu.
Bandaríska sendiráðið segist
ekki munu láta Lumumba hafa
diplómatíska vegabréfsáritun,
hins vegar geti hann sótt um
ferðamannaáritun, en það muni
taka tíma.
Skákmótið
SJÖTTA UMFERÐ Gilfers-
mótsins var tefld í gærkvöldi
og fóru leikar þannig: Friðrik
vann Kára, Ingi R. vann Guð-
mund Lár., Guðmundur Ág.
vann Jónas, Arinbjörn vann
Ólaf. Tvær skákir fóru í bið.
lngvar á öllu betra móti Ben-
oný, en skák Gunnars Gunn-
arssonar og Sveins Johannsen
er jafnteflisleg, en getur
brugðist til beggja vona.
Biðskákir úr tveimur síð-
ustu umferðum verða tefldar
í Sjómannaskólanum í kvöld
og hefjast kl. 19,30.
Dauðaslys
Framh. af 16. síðu.
Eftir því sem næst varð kom-
izt í gærkvöldi, hafði verkfræð-
ingurinn farið á salerni, en
stór opnanlegur gluggj þess
sneri út að götunni. Vissi eng-
inn í húsinu, en þar var eitt-
hvað af fólki við vinnu, hvað
gerzt hafði, fyrr en vegfarend-
ur gerðu aðvart um manninn,
þar sem hann lá á gótunni.
Skömmu síðar komu menn
úr rannsóknarlögreglunni á
vettvang. Brutu þeir upp sal-
ernishurðina, sem var læst að
innanverðu, en þegar inn var
komið var ekkert að sjá nema
opinn gluggann.
Mikið fall er úr glugganum
og niður á götuna og eftir
meiðslum að dæma virðist mað-
urinn hafa komið niður á höf-
uðið.
Guðlaugur Einarsson
Málflutningsstofa
Aðalstræti 18.
Símar 19740 — 16573.
■£»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>
VAGN E. JÓNSSON
Málflutningur — Innheimta
Austurstræti 9.
Símar 1 44 00 og 1 67 66
{■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■>
HjólbarSar
1050 x 16 ^
900 x 16
700 x 16
600 x 16
Barðinn h.f.
Skúlagötu 40 — Varðarhús
inu við Tryggvagötu.
Símar 14131 — 23142
Alþýðublaðið
SlyasTarSstofan
er opin allan oólarhrliiglim
Læknavörður fyrir vitjanii
er á sama stað kl. 18—8. Simi
15030.
o ------------*
Gengisskráning 15 ág. 1960.
Kaup Sala
£ 107,07 107,35
US $ 38,00 38,10
Kanadadollar 39,17 39,27
Dönsk kr. 551,70 553,15
Norsk kr. 533,40 534,80
Sænsk kr. 736,60 738,50
V-þýzkt mark 911,25 913,65
• . o
Skipautgerð
ríkisins:
Hekla er væntan-
leg til Siglufjarð-
ar í dag á vestur-
leið. Esja er í Rvk
Herðubreið fór
frá Rvk í gær vestur um land
í hringferð Skjaldbreið er á
Húnaflóa á leið til Akureyr-
ar. Þyrill er á Hornafirði á
leið til Rvk Herjóiíur fer
frá Vestmannaeyjum í dag til
Hornafjarðar.
Skipadeild S.Í.S.:
Hvassafell lestar síld á Aust
urlandshöfnum. Arnarfeii
kemur til Gdansk í dag, fer
þaðan til Rostock, Kmh og
Rvk Jökulfell fór í gær frá
Grimsby til Calais og Ant-
werpen. Dísarfell er í Riga
Litlafell losar á Austurlands-
höfnum. Helgafell er á Akur-
eyri Hamrafell er í Hamb.
Jöklar h.f.:
Langjökull kom til Aabo í
gær. Vatnajökull er í Rvk.
Tilkynning frá Tæknibóka-
safni IMSÍ. — Yfir sumar-
mánuðina frá 1. júní til 1
sept. verður útlánstími og
lesstofa safnsins opin frá kl
1-7 e. h. alla virka daga
nema laugardaga kl. 1-3 e.h
Þegar búfé er slátrað,
skal þess gætt, að ein skepnan
horfi eigi á slátrun annarrar
og að þær skepnur, sem til
slátrunar eru leiddar, sjái
ekki þær, sem þegav hefur
verið slátrað. Skal í slátur-
húsum vera sérstakur bana-
klefi. Reglugerð um slátrun
búfjár er núruer 21 frá 13.
apríl 1957, — Samband Dýra-
verndunarfél. íslands
Silungsveiðimenn,
kastið ekki girni á viða-
vang. Það getur skaðað bú-
smala. — Samband Dýra-
verndunarfélags Ísland3.
Samúðarspjöld Minningar-
sjóðs Sigurðar Eiríkssonar
og Bryndiísarminning eru af
greidd í Bókabúð Æskimn-
Flufélag
íslands h.f.:
Millilandafiug:
Hrímfaxi fer
til Glasgow og
Kmh. ki 08.00
. í dag. Vænían-
leg aftur til R-
víkur kl. 22.30
í kvöld Fiug-
vélin . fer til
Glasgo w ög K-
mh. kl 08,00 í fyrramáíið. —
Gullfaxi fer til London kl.
10.00 í dag. Væntanleg aftur
til Rvk kl. 20.40 í kvöld. —
Innanlandsflug: í dag er á-
ætlað að fljúga ti'l Akureyrar
(2 ferðir), Egilsstaða, ísafj.,
Kópaskers, Patreksfjarðar, —
Vestmannaeyja og Þórshafn-
ar — Á morgun er áætlaö
að fljúga til Akureyrar (3
ferðir), Egilsstaða, Fagurhóls
mýrar, Hólmavíkur, Hornafj.
ísafjarðar, Kirkjubæjarklaust
urs og Vestmarmaeyja (2 ferð
ir).
Frá Handíða- og myndlista-
skólanum. — Skólastjóri
Handíða- og myndlistaskól-
ans óskar að vekja athygll
á því, að þeir, sem stunduðu
nám í skólanum í fyrra, —
eiga forgangsrétt til náms í
sömu kennslugreinum i vet-
ur, ef þeir óska þess. Vegna
mjög mikillar aðsóknar að
sumum kennsludeildum
skólans er því nauðsynlegt,
að fyrri nemendur skólans,
sem nú ætla að halda nám.
i'nu áfram, tilkynni þátt-
töku sína hið allra fyrsta og
eigi síðar en þriðjudag, 27.
þ. m — Skrifstofa skólans
— Skipholti 1, er opin
virka daga, nema laugar-
daga, kl. 5-7 síod — Sími
19821.
Styrktarfélag vangefinna: —
Minningarspjöld félagsina
fást á eftirtöldum stöðum
í Reykjavík: Bókabúð Æsk-
unnar, Bókabúð Braga Bryr
Fimmtudagur
22. september:
12.00 Hádegisút-
varp 13.00 „Á
frvaktinni“. —
15.00 Miðdegis-
útvarp. — 20.00
Fréttir. 20.30 Er
indi: Gengið
upp í Hvanneyr-
arskál (Ólafur
H Árnason —
skólastj.) 21.05
Frægir söngvar-
ar: Aase Nord-
mo-Lövberg syngur lög eftir
Grieg. 21.25 Þýtt og endur-
sagt: „Gróður Gyðingalands“,
frásaga eftir Fredrik Böök
(Einar Guðmundsson kenn-
ari). 21.45 Tónleikar: Þrjár1
kaprísur (nr. 13, 21 og 23) fyr
ir fiðlu án undirleiks eftír
Paganini (Euduard Gratsj
leikur) 22.00 Fréttir. 22.10
Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður
í Havana“. 20 22.30 Sinfón-
ískir tónleikar. 23.00 Dag-
skrárlok.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Það þarf að skipta þannig:
1, 2, 4 og 8 aurar.