Sunnanfari - 01.04.1898, Blaðsíða 37

Sunnanfari - 01.04.1898, Blaðsíða 37
89 suðvesturs, og nú settum vér segl til, sigldum svo Lí[ða]ndisnes fyrir bí og komum kvöldið þá hálfrokkið var á góða höfn, þar sem heitir Svíney. Þar lágu fyrir 9 eða 10 skip á höfninni. í>ar var ein frönsk fregatt (svo heita lítil orlogskip) með 120 manns. Þar lágu og Engelskir og Hollenzkir. Ejöldimanna kom til vor um borð á þvi kvöldi bæði landsmenn konur og karlar. Einninn af skipunum, er þar lágu fyrir, sem allir töluðu íslenzku. Þar fréttum vér að konungurinn af Erankaríki væri andaður, sá gamli Lodovicus. Þessari höfn, Svíney, er svo háttað og varið sem víðar í Noregi, að eyjarliggja alt í kringum skipin og er hyldýpi víðast á millum þeirra, svo óhætt er hafskipum; sigla menn á milli þessara eyja langan veg með landi fram í Noregi úr því komið er suður fyrir Lí[ða]ndisnes. Eyjarnar eru þar í meðallagi há björg og klettar, sumpart skógi vaxnar, sumpart lyng og einir og sumstaðar vex á þeim gras, þó mjög snöggvar. Húsin eru hér bygð á þessum eyjum fram á klettasnösunum, öll af timbri gerð; sum bygð fram á sjónum með stórum og þykkum bjálkum undir, sem standa upp á endann; máluð eru þau og úthöggvin með skraut- legri gjörð, svo ekki eru þvílík á voru landi. Þó búa þar ei utan bátsmenn og sjófólk, sem lifa af fiskiafla og kaupskap alleina. Konur brúka hér danskan búning. Stúlkur róa hér á bátum eins og karlmenn og eru það flest alt vinnukonur, íNoregi kallaðar Tieniste-Picker, píkur á vora tungu eður stúlkur. Bændur ganga hér á grákembdum vað- málsmussum og buxum sniðnum sem bátsmanna- klæði; svarta skó brúka hér allir. Kakalónar eru hér í flestum húsum og sumstaðar skotsteinar(l). Byggingunni er svo varið sem timburstofan á Hól- um; húsin eru geysihá, víðast tveggja lofta, enn í borgunum í Noregi eru þau enn þá stærri. Þau eru öll með steinþaki, sem gerður er af rauðum leir. Land er viðlíkt og Asarnir í Hegranesi, víð- ast skógi vaxnir og spretta trén upp af klettaskor- unum, mestan part furuviður, sumstaðar eikartré og birki. Nautpeningur og sauðfé er hér smærra vexti enn á íslandi; hestar álíka stórir og vorir. Noreg er 300 milur tíræð á lengd og koma þar frost og snjóar norðarlega sem á íslandi, en sunn- arlega í Noregi er miklu heitara. Hætti ég nú svo að skrifa fleira hér um að þessu sinni, en vík aftur til þess fyrra. Hessa nótt lágum vér á höfninni í Svíney. Hvorki fór lögmaðurinn í land né ég, þó mér væri á því forvitni, en kaupmaðurinn og flestir af fólkinu fóru að besækja landsmenn um kvöldið og komu seint til skips uin nóttina. Lögmaðurinn var mjög reisumóður af þessu sjóvolki og treystist því ekki til lands að fara, þar með orðið framorðið þá vér komum til hafnarinnar. Mánudag 4. Nov. lögðum vér frá Svíney og héldum innan skerja austur með landinu í góðu veðri, en litlum byr. Þá var kominn um borð til vor skipherrans bróðir, Sörin Pétursson, gamall skipherra, sem býr í klefunum við Mandalen. Yér komustum í Buesund um kvöldið og var þarsæmi- lega góð höfn, og höfðum eyjar á aðra síðu, en landið á aðra. Fyrir innan oss lágu 12 skip hol- lenzk, 12 Engelskir og nokkur norsk. Hér lágum vér um nóttina. Þriðjudagsmorguninn 5. Nov. var heiðviðri og sterkur vindur norðaustan, aldeilis öndverður oss, svo vér hlutum kyrrir að vera. Miðvikudag 6. Novembris var veður hið sama norðaustan; lágum kyrrir; fór lögmaður í land og ég roeð honum; gekk hann upp að skoða bónda- garðinn, sem strax lá inn við fjarðarbotninn ; við fengum þar hvorki vott né þurt, nema um síðir einn mjólkurpott, sem lögmaðurinn betalaði með 2 skildingum, id est einum fiski; á þessum bónda- garði voru öll hús af timbri, sem áður hefi ég um- skrifað. Lækur litill rann hjá þessum bæ og var eitt hús bygt yfir hann ferskeytt, sem stóð á fjór- um stólpum háum, svo hált'vaxinn maður mátti undir ganga. Húsfreyjan, dætur hennar og vinnu- konur voru að spinna hör á snældum. Snældurnar voru öðruvísi lagaðar en hjá oss og kann ég þær nú ekki að describera. Stofan, sem þær sátu inni í var hreinleg með borði og bekkjum, kakalóni, glergluggum og fjalargólfi, kostuleg að öllu leyti, og á þenna hátt meina ég sé öll bóndabygðin löguð í Noregi (guð náði vort fátæka föðurland). Yið gengum síðan þar frá niður til strandar til þeirra verzhúsa, sem kaupmaður vor, Christo- for Gregerson, var að skrifa í bréf sín, og svo um kvöldið til skips. Eimtudag 7. Novembris var hið sama veður og raáttum liggja kyrrir á höfninni. Eöstudag 8. Nov. sama veður; lágum kyrrir. Laugardag 9. Nov. var enn nú regn og vindur austlægur. Sunnudag 10. Nov. var suðvestan vindur hæg- ur; léttum akkerum og sigldum innan skers til Eleckeroyer; utan fyrir vesturgapinu á þeirri höfn urðu í vegi fyrir oss tvö skip undir seglum. Þau höfðu bæði danskt flagg rautt með hvítum krossi. Þau gengu inn á höfnina undan oss og vér eftir þeim. Þá formerktum vér, að þetta var sú kong- 12

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.