Sunnanfari - 01.04.1898, Blaðsíða 41

Sunnanfari - 01.04.1898, Blaðsíða 41
 / Jónas Helgason. komist, þá eru það um eða yiir 100 kirkjur á land- inu, sem nú iiafa eignast hljóðfæri, og árlega bæt- ast fleiri við. Haustið 1875 sigldi Jónas til Kaupmannahafn- ar til þess að afla sér meiri söngfræðislegrar þekk- ingar. Þeir próf. N. V. Gade og J. E. P. Hart- mann höfðu aðalumsjónina með námi hans, og út- veguðu þeir houum þessa kennara: J. Chr. Gebauer próf. og organista við Heilagsandakirkju, H. S. Polly, kapelmeistara, A. W. Lanzky, Kapelmusikus, Viggo Sanne, sönginspektör og Fr. M'óller, Piano- fortefabrikant. Hjá sumum þessum kennurum var Jónas að námi á hverjum degi, en sumum tvisvar og þris- var á viku. Þeir Gade og Hartmanu létu hann vera í kirkjunui hjá sér við guðsþjónustugjörðir á hverjum helgum degi og oft endrarnær. Allir höfðu kennarar Jónasar miklar mætur á honum. Og það sýnir bezt, hvað gott traust þeir hafa borið til hans, að hann mun hafa átt kost á, fyrir milligöngu þeirra, að komast að fastri stöðu í Kaupmannahöfn, nokkrum árum eftir það að hann kom heim aftur. En hann kaus heldur að verja kröftum sinum í þjónustu ættjarðar sinnar. Haustið 1876 varð Jónas kennari í söng við barnaskólann og kvennaskólann í Reykjavík. Sum- arið 1877 varð hann organisti við dómkirkjuna í Reykjavík, og síðan haustið 1883 hefur hann kennt söng við barnaskóla Seltirninga. Öllum þessum störfum gegnir hann enn. Á sama tíma hefur hann kent 120 körlum og konum söng og orgelspil, er siðan hafa orðið or- ganistar í kirkjum út um landið, þeim sem hljóð- færi hafa eignast. En auk þess hefur hann kennt fjölda mörgum öðruin bæði söng, orgelspil og að leika í fiðlu. Það var þjóðhátíðarárið, sem Jónas gjörðist fyrst rithöfundur, og frá því ári og til þessa dags hefur hann sumpart safnað til og sumpart samið söngrit þau, sem nú skal greiua: 1. Ágrip af hinum helztu söngreglum með verk- legum æfingum. 2. Söngvar og kvæði í 7 heftum með 2, 3 og 4 röddum. 3. Söngkenslubók banda byrjönduin í 6 heftum með 1, 2 og 3 röddum. 4. Leiðarvísir um notkun á raddfærum mannsins. 5. Sálmalög með 3 röddum, 2 hefti. 6. Kirkjusöngsbók með 4 röddum. 7. Viðbætir við kirkjusöngsbókina með 4 röddum. Af öllu þessu, sem nú hefur sagt verið, má sjá, að maðuriun hefur ekki verið iðjulaus um dag- Helgi Helgason. ana, enda er hann nú tekinn að þreytast nokkuð. Hann hefur lagt staka alúð við söngkennsluna í skólunum og gjört sér far um að fylgjast með tím-

x

Sunnanfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.