Öldin - 01.11.1895, Side 5

Öldin - 01.11.1895, Side 5
ÖLDIN. á ferðinni, eins og gufiivagninn framleiðir sitt eigið gufuafl. Fyrri en það verður gert er ekki liætt við að gufuvagnarnir hnígi í valinn sem útlifuð verkfæri. Yið þá uppfinding er nú Tesla líka að þreyta og sú uppfinding hans er svo vel á veg komin, að Westinghouse-rafmagnsfélagið hefir keypt einkaréttinn að honum og er nú með honum að þreyta við að fullgera véliná. Þessi vél er sameiginleg gufu- og rafmagnsvél, og reynist hún eins og vonað er, má taka niður hinn ógeðfelda vír yfir sporinu. Hugmyndin er að gera tvent í senn: umhverfa kolum og vatni í gufu eins og gufuvagninn nú gerir, og umhverfa svo gufunni jafnharðan í raf'magn, sem þá er beitt til að hreyfa vagninn og lestina alla, sem hann dregur. Fijótt álitið má virð- ast að þetta sé að sneiða fyrir skemstu leið. En Tesla hefir þegar, ófullkomin eins og uppfinding hans þó enn þá er, sannfærst um, að með þessu móti — umhverft í raf- magn — hefir hvert eitt pund af kolum eins mikið hreyfiafl, eins og tvö pund um- hverfð í gufu einungis, og ef allar kring- umstæður eru haganlegar, eins mikið afi enda eins og þrjú pundafkolum umhverfð í gufu. A þessu sézt hvert þessi tvöfalda efnisbreyting, sem hann ráðgerir, er ekki æði mikils virði. Komi hann vél þessari upp, eins og efaiítið þykir, og leynist hann sannspár að því, að hún eyði ekki meira en einu kolatonni, á meðan gufuvagnar eyða tveimur til þremur við sömu vinnu, er lítill efi á, að gufuvagnar nútíðarinnar týna tölunni fyr en menn varir. Nicola Tesla, sem í svona jötunlegum stýl er að umhverfa iðnaðarvélum nútím- ahs, er enn að heita má kornungur maður. Hann er á bezta þroskaskeiði æfinnar. Lífs- starf hans er rétt að byrja, og þess vegna ekki líklegt að nokkur sjái sér enn þá fært að svara spurningunni: “Hvaða gagn er að því ?” 165 “Timinn líður skjótt og vér erum á flugi,” er góð og göinul sögn. Sannleik- inn sem hún hefir að geyma kemur greini- lega í Ijós, er athugað cr járnbrauta—og járnbrautavélagerð. Af því hve öllu þar að lútandi fleygir fram á ári hverju, finst eflaust mörgum að sú stofnun sé miklu eldri, en hún í raun og veru er. I sambandivið ofanritað atriði um hina nýjustu uppfind- ing Teslas — hina sameinuðu gufu — og rafmagnsvél, er gaman að líta um öxl sér og renna augunum yfir fyrstu tilraunirnar að fá járnbrautarvél gerða. Yerður það þá fyrst íyrir manni, að járnbrautirnar eru ekki eldri en það, að kyndarinn á allra fyrsta gufuvagninum, Joseph Bell að nafni, er nýdáinn á Englandi. Það bendir óneit- anlega á það, að járnbrautirnar séu ekki eins gamlar eins og mörgum kann að finn- ast að þær hljóti að vera. Það var um miðsumarsleytið 3 825, að þrír menn sátu saman að drykkju eftir kvöldverð, í þorpinu Stockton á Englandi. Einn þessara þriggja manna var höfundur járnbrautanna og gufuvagnanna, hinn nafntogaði völundur George Stephensox. Hann var húsráðandinn og hinir tveir voru gestir hans. Þeir sátu þarna til að ræða um hinar mikilfenglegu tilraunir hans og uppgötvanir. Um leið og liann opnaði seinustu flöskuna og hclti á staup- in, stóð hann upp og mælti fyrir minni járnbrautanna — fyrsta minni járnbraut- anna svo menn viti — á þessa leið : “Jæja drengir, ég leyfi mér að láta það álit mitt í ijósi, að þið lifið það, að járnbrautir taki fram öllum samgöngufærum í þessu iandi.” Ræðan var ekki lengri en þetta, en hún varð gestunum minnisstæð, af því spádóm- ur hans rættist svo fljótt og vel. Skömmu síðar var fyrsta tilraunin gerð, 27. Sept- ember 1825,—fyrir sjötíu árum og tveimur mánuðuin. Þá var það að fyrsta gufu- vagninum var hleypt af stokkunum og hann sendur af stað fi'á Stockton til Darl- ington með 34 vagna aftan í sér. Vélar-

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.