Öldin - 01.11.1895, Blaðsíða 9

Öldin - 01.11.1895, Blaðsíða 9
ÖLDIN. 169 og sem livergi var til í sinni al-fullkomnu mynd.n Grein sína um ritverk Shakespeares endar dr. Denslow á þessa leið : “Hið makalausa fjör og hinn maka- lausi þróttur í sorgarleikjum Shakespeares hefur þá yfir alla dramatiska ritdóma og gerir þá að mælisnúru. Söguhetjurnar eru ekki menn og ekki konur. Ilvort- tveggja eru endurlífgaðar myndir hinna listfengislega gerðu guða í algyðismusteri goðatrúarinnar og færðar í búning fyrir nútíðar leiksviðin. Rílcarður III. er betur gerður djöfull en nokkurntíma sá, erMilton uppmálaði. Og Macbeth er betur gerður Belial. Það er sönnun fyrir siðferðislegri framför þessarar aldar, að hið góða og smekkvísa þjóðfólag hryJlir við að hugsa sér söguhetjur Shakespeares menskar ver- ur. Slíkir smekksmenn sælrjast eklci eftir afskræmismyndum í sltáldskap, fremur en þeir sækjast eítii' píslum í liugmyndum sínum um örlögin. í þess stað lrjósa þeir þá Jeilti, er sýna menn og konur er enga þarf að bjóða við og sem ekki afskræma hina fögru mynd sögunnar.” “Þessi þrjú rit sanna greinilega, ef sannanir þurfa, að höfundur þeirra gat ekkí liafa athugað gang ritanna gegnum lögfræðings gleraugu önnur eins og Bacons lávarðar, æðsta lögfræðingsins í ríkinu á sinni tíð. Ritin eru framleiðsla þess í- myndunarafis, sem ekki sá nein vandkvæði á að bróðir erfði konungdóm að bróður sínum látnum, eða að sigursæll lierforingi fremur en sonur tæki við stjórn að Jíon- ungi látnum/’ Syefninn er dáleiðsla, Eftir Carl Sextus. Gerum ráð fyrir að liðið só á kvöldið og að vér sitjum áhyggjulausir í heima- húsum. Háttatíminn er óðum að nálgast og af því leiðirað vér flnnum svefninn fær- ast yflr oss. Kluklcan slær á sínu i’eglu- bundna tímabili og miðnættisstundin nálg- ast. Þegar vér þannig athugum hve liðið er á tímann, kemur oss á ný í hug, að mál sé að ganga til hvílu, og jafntramt eykst svefn og þreytutilflnningin enn meira. Eðlileg afleiðing þeirrar tilflnningar er sú, að vér förum að geispa, og ef aðrir eru í herberginu, fara þeir þá ósjálfrátt að geispa líka. Geispar og svefn er svo undrunar- lega smittandi, að vér ósjálfrátt hermum einn eftir öðrum og tilflnningin er eins hjá öilum. Ef framorðið er orðið þegar vér förum að geispa, sannfærumst vér ósjálfrátt um, að vér séum bæði þreyttir og sifjaðir og hefir sú hugsun enn meiri geispa í för með sér, er aftur knýr oss til þeirrar hugs- unar, að um ekkert sé að gera annað en ganga til rekkju, og það genun vér þá líka- Vér afklæðum oss og förum upp í rúmið, með þetta eina markmið fyrir liugskots- augunum — að fara að sofa . Næsta umhugsunarefni vort er að liggja þannig, að sem best fari um oss, og svo leggjum vér aftur augun. Þessi eðli- legi, óafvitandi undii’búningur undir svefn- inn, eða þessa sjálfframleiddu leiðslu, held- ur því fremur áfram þegar vér látum aft- ur augun, en sem óðum voru að sofna á mcðan vér höfðum þau þó opin. En þó höfum vér meðvitundina enn. Undir eins og augun eru lukt, liemur oss óafvitandi í hug, að flýta fyrir fullkomnum svefni. Vér förum ósjálfrátt að lengja andardráttinn og venjumst á það svo fljótt, að innan stundar er andardrátturinn orðinn hægur og reglu- bundinn og við það flytjumst vér nær og nær takmarkinu, þessu leiðsluástandi. Jafnframt og vér komumst í þetta ástand, um leið og meðvitundin er að hverfa, hrjót- um vér ekki ósjaldan. En það einkenni- legasta er, að þó að vér þannig virðumst vera sofnaðir, þá er svefninn enn ekki virkilegri en svo, að vér — og oss eigin-

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.