Öldin - 01.11.1895, Síða 12

Öldin - 01.11.1895, Síða 12
172 ÖLDIN. lækkaði i'óminn dálítið). Frændi þinn sagði við pabba áðan, að hann ætti að taka af sér mann til sjóróðra núna fram undir jólin. Pabbi sagði sig vantaði ein- mitt mann og hefði ætlað að útvega sér hann í þessari ferð. Frændi þinn spurði hvorn ykkar Svcin hann vildi heldur, og hann kaus þig óðara. Hann sagðist ekki láta það standa í ef þú fengist til að gera það. Þú gerir það ? Kr ekki svo ?” “Eg geri það sem mér ersagt að gera. Og svo verður með það.” “0, mér þykir svo vænt um að þú verður lijá okkur. Við skulum hafa það fjörugt innan um og saman vfð.” “Þú verður aldrei heima ef ég kem nálægt Vogi.” “0, ég var búinn að gleyma því að biðja þig að fyrirgefa komuna í vor. Mik- ið dæmalaust þótti mér fyrir því, þegar Ragna sagði okkur frá að þú hefðir komið, að vera ekki heima. Þú mátt trúa því, að mér þótti ósköp fyrir því. En ég hefi ein- lægt verið þér þakklát fyrir að enda það að koma. En nú skal ég taka á móti þér þegar þú kemur í róðurinn.” “Já, það verða nú eins víst einhver vanhöld á þessum róðrum. Ekki skaltu treysta rnjög á þá “Jú, það gjöri ég. En þú ert líklega óvanur við sjóinn og hálf hræddur við haustvertíðina. En pablii er dæmalaust varasamur. Lætur aldrei róa nema þegar gott er.” “Jæja, Elín. Við vonum góðs til sam- verunnar í haust. En ef nokkuð verulegt liggur á bak við viðkynningu okkar ogtal, því ekki að gera út um það sem fyrst ?” Eg rétti henni hendina og hún mér sína, en hvorugt hafði kjark til að líta framan í hitt og ekki gátum við sagt meira. Svo komu þeir inn aftur. Frændi sagði mér frá róðrunutn og það með, að ég yrði líklega fyrir því að fai’a. Eg sá hvernig ánægjan fór í brosandi boðaföllum yfir fallcga andlitið á Elínu. En um leið lagði einhvern nápran gust og kvíða um innstu tiiflnningaheimkynni mín, sem ég gat ómögulega þýtt eða gert mér grein fyr- ir. Það varð lítið úr snjófalli í þetta sinn, komu góðveður aftur. Þau feðgin komu við og töfðu þegar þau fóru til baka. Við Elín kvöddumst í þeirri von, að sjást um næstu helgi. III. Ég átti nú eftir að vera tvo daga heima þangað til ég færi í róðrana. Sveinn hafði farið fram í dal um daginn; hann færði mér bréf þegar hann kom heim og var það frá Önnu. Það var svo að skilja sem við hefðum verið trúlofuð en nú var hún að segja mér upp. Hún sagði að við værum svo fjarskalega ólík, að það væri alveg vitlaust af okkur að halda áfram lengur. Ef ég tæki mér þetta nærri, að liún vildi ekki halda áfram, þá gæti hún síðar sagt mér aðrar kringuinstæður, sein gerðu sór alveg ómögulegt að halda áfram. Ég tók ekki mjög nærri mér að fá þetta bréf, en áleit réttast að sýna fiænda mínum það, því mér fanst honum það skyldara en mér. En hann hafði vcrið hálf lasinn þennan dag, svo ég vildi ekki gera það strax. Sveinn sagði það meðal annara frétta, að Anna í Dæli liefði farið út í kaupstað nú í vikunni, og vcrið þar á “balli” bjá búð- arpiltum og trúlofað sig einni búðai’lok- unni, og ætlaði bráðum að flvtja alfarin norður í kaupstað. Frænda mínum versnadi einlægt. Það voru einhverjar óskapa kvalir í höfð- inu á honum. Eg fór um nóttina út í kaup- stað eftir lækninum. Ilonum leizt illa á sýkina. Hann lét sjúklinginn hafa meðul. En það kom fyrir ekki neitt. Eftir 2 daga var Auðunn Gislason á Skarði dáinn. Jarðarforin fór fram viku síðai’. Það var fjölda margt fólk úr sveitinni sem fylgdi honum til grafar. Presturinn hélt ba;ði húskveðju og ræðu ofur langa. Vesa-

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.