Öldin - 01.03.1896, Side 10

Öldin - 01.03.1896, Side 10
42 ÖLDIN það fyrir útheiminum og draga þangað ný- byggja. En þó hefir ef til vill enginn mað- ur gert meira í þá átt en málmlcitandinn —maðurinn sem alt af er á ferð um fjöll og firnindi til að leita eftir gulli eða öðrum verðmiklum máimtegundum. Hann er undir eins einkennilegastur, hugrakkastur, harðastur og tilkomumestur allra vest- manna. Og hvað afleiðingar snei'tir, þeg- ar alt kemur til alls, þá er hann, þó hann sjálfur hafl ekki liugmynd um það, fremst- ur þeirra allra. Það er bans þori og hörku og þoli að þakka og engu öðru, að iand- fldkar mitt í fjallahrönnunum ókleifu, sem enginn treysti sér að yfirstíga, eru nú gróð- ursælar bygðir fyrir bændur, kaupmenn og allra stétta menn. Hann er það, sem gert hefir landslagið í öræfabáik þessum kunn- ugt, geflð fjallshnjúkununj nafn, fundið ár og vötn og gefið þeim nöfn, stofnað kaup- tún, scm í mörgum tilfellum hafa á stuttri stundu umliverfst í stóra bæi, og einnig þeim heflr málmleitandinn gefið nafnið sem þeir bera. Alt þetta er þessum ötulu fjailgöngumönnum að þakka, og þrátt fyr- ir þreytu og hættur og neyð, halda þeir þessu mikilfenglega verki alta-f áfram. Þessi frumherji í flokki allra málm- nema er sérlega einkennileg mannspersóna. Hann stendur einn í öllu tiliiti. Hann á sammerkt með gömlum sjómanni í því, að liann heflr rnanna mesta fyrirlitningu á peningum. En lengra nær samlíkingin ekki. Hinn glensfulli, glaði sjómaður eyðir aldrei tíma tii að tala um hvernig hann geti grætt svo og svo mikið fé, en það gerir málmleitandinn. Vakinn og sof- inn er hann ár og síð að ræða um frábær- lega mikilsverðan “fund” sem hann eigi vísan, og sér hann þar af leiðandí stór auðæfl svo gott sem í greipum sínum. Von- glaðari en nokkur unglingur leggur út á ófarna æflbraut sína, Icggur málmleitand- inn á hin ókleifu öræfi, á /jöll og skóga sem einskis manns fótur heflr áður troðið. Og vonin hans eina er þessi, að hann í fjallabálkinum framundan finni eitthvað það, er færi honum rósemi og allsnægtir þegar æfldeginum hallar og liann langar eftir friði og hvíld. En rósemi, eins og al- menningur skilur það orð, er nokkuð sem þessi maður hefir helzt aldrei aí að segja og þekkir ekki. Að undanteknum f'ylli- ríis-“túrum” einstöku sinnum, forðast hann ætíð allar mannabygðir og þau þægindi sem þeim fylgja. Ánægja hans öll og ró- semi er innifalin í emlalausri leit eftir ein- hverjum mikilsverðum málrni í myrkvið- arskógum uppi á eyðifjöllum. Hér á hann heima, hér kann liann bezt við sig. Hér er hann að höggva í grjót og grafa leir og sand, í þeirri von að “fundurinn” mikli komi í Ijós á hverri klukkustund. Ef hann viidi svo vera láta, gæti hann fyrirhafnar- Htið notið flestra lífsþæginda mitt í manna- bygðum. Þar bíður hans hin gullna kór- óna róseminnar og þægindanna, en hann kýs heldur þessa eilífu vosbúð, þessa ein- veru, þetta strit. Venjulega er málmleit- armaðurinn hæfileikamaður, heflr reynt margt og lært af revnslunni. Ákveðnar skoðanir hefir hann í stjórnmálum og liið sama má segja mn skoðanir hans á trúmál- um, að þær eru mjög svo ákveðnar. Víð- förull er hann og kannast þess vegna við flest þau héruð sem nefnd verða. Ilann er ástfanginn í náttúruríkinu er hann sér dags daglega umhverfis sig, í hinni þögulu einveru sinni, og eins og fiestir náttúru- dýrkendur, er hann laus við skrnm alt og lætur lítið yfir sér. Ilann er ör á íé og kann illa að gæta fengins fjár, enda kæru- laus og hirðingarlaus í þeim sökuin. I því efni er hann líkari sjómanni cn nokkrum öðrum manni. En svo hefir hann þær einkunnir fram yflr sjómanninn, sem sagt, að hann er alvörugefinn og kyrlátur, heíir skáldlegar hugmyndir og hugsar og ræðir sí og æ um lieimspekileg efni. Engar þess- ar einkunnir eru tileinkaðar meðal sjó- manni, sem kunnari er fyrir málæði, gort og gapaskap. Af því þessi maður, eða sá

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.