Öldin - 01.03.1896, Page 12

Öldin - 01.03.1896, Page 12
44 ÖLDIN. sfjkti flakinu áður en landi varð náð. Málmleitarmaðurinn sem hér er um að ræða kemst samt klaklaust af. Iíann stýrir bát- flaki sínu óskemdu upp í eitt lækjarmynn- ið, það sem næst er hinu fyrirheitna landi hans, og þar gengur hann á land. Þar' hýst hann um og gerir sér nokkurs konar höfuðból. Ilann gengur frá bátnum og grefur nokkuð af vistaforða sínum í jörð. Er sá skamtur sniðinn eftir því, hvað lengi hann gerir ráð fyrir að verða á leiðinni þaðan til mannabygða aftur. Að þessu bónu leggur hann byrðina á herðar sínar, hefir hlaðna byssuna í annari hendinni og skotfæri á handhægum stað, og heldur síð- an af stað og stefnir til fjalla, í leit eftir hinum fólgna fjársjóði. Um tvo vegu er að velja frá lækjar- mynninu. Annar er sá, að fara upp gil- skoruna, sem lækurinn fellur eftir, hinn, að ráðast á þverbratta fjallshlíðina. Gam- all og æfður fjallgöngumaður og málmleit- andi er ekki lengi að hugsa um, hvern veginn hann skal velja. Þó flestir lækir í fjöllunum, ef þeir á annað borð falla í stöðuvatn, sóu í dalverpi máske alt að því 5 mílur á breidd niður við vatnið, þrengist dalurinn svo fljótt, auk þess sem hann er helst ókleifur vegna niðurfallinna stórtrjáa og undirviðar, að hann innan skamms er gilskora ein og ómöguleg umferðar. Af því lciðir, að æfður fjallgöngumaður kýs ætíð umhugsunarlaust þá leiðina, sem í fyrstu virðist erflðari. Hann ræðst á þvera fjallshlíðina og klifrar upp fjallið til þess komið er upp fyrir trjálínu og upp undir snjólínu. Þar er fjallið nakið, þar er víð- sýni og þar er ekki undirviður né myrk- viður til að hindra ferðina. Hér gengur honum þess vegna tiltölulega greitt ferðin. En þó koma hér annan sprettinn lítt yfir- stíganlegar torfærur. Hér eru af og til lítt kleifar klappir til að klifrast eftir, og jök- ulrastir, sem ekki verður komist fyrir nema með ef til vill margra mílna ferð yfir kletta og klungur. En einmitt á þessu sviði í fjöllunum kann málmleitandiun við sig, Hér á hann heima, svona hátt hafinn yflr mannabygð og liaflnn enda yfir efstu takmörk, sem skógur vex á, og þar sem mennskur maður hefir máske aldrei fyr stígið fæti sínum. Hér er og stundum svo mikið um dýraveiðar, að engin ósk í því efni þarf að vera óuppfylt. Og hér, að síðustu, og í það er mest varið, er tækifær- ið til að líta eftir og leita eftir málminum, jafnframt og hann heldur áfram ferðinni að fyrirheitnu takmarki. Eftir að klifrá upp og ofan fjallahnjftka og hryggi í viku eða meir, keinst hann loksins í hið fyrirheitna land, þar scm gull- ið á að vera eða gulls-ígildið íeinhverjum öðrum málmi. Þegar þangað er komið, er hann sem næst úttaugaður af þreytu; hann hefir enn ekki fundið neitt af málmi, né séð líkur til að málmur sé til í klettunum, en vistaforði hans óðum að ganga til þurð- ar. Þannig eru ástæðurnar þegar í hið fyrirheitna land er lcomið. Ef til vill verð- ur von hans sér ekki til skammar, en eins víst, og það enda oftar, verður hún það. Raunin verður æði oft sú, að öll fyrirliöfn- in og þreytan er til einskis. Þar er ekkert gull að liafa og ekkert silfur. Þreyttur og úrillur stendur liinn auðnulausi málmleit- armaður og starir á hin hálfvisnu og lauf- lausu furutré, á hina ægilegu íjallstinda í öllum áttum svo langt som augað evgir og á hinar geigvænlegu klappir og Idettarið í nágrenninu. Þetta er reynslustund. Eng- inn kletturinn umhverfls gefur minnstu von um “fund,” von uin fjársjóð, smáan eða stóran, en helmingur vistaíorðans eða meira, er þegar uppgenginn. Hvað er til ráða ? Eftir litla umhugsun afræður hann xnitt í vonleysinu, að missa ekki móðinn, en halda lengra, að klifra yfir fjallshrygg- inn þarna og sjá hvað þar er fyrir hanclan. Hver veit nema það sem hann leitar að sé þar, að minsta kosti í svo ríkum mæli, að það borgi fyrir ómakið að komast þangað. En ef þar er ekki neitt—þá livað ?

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.