Öldin - 01.03.1896, Side 13

Öldin - 01.03.1896, Side 13
ÖLDIN. 45 Iiiim vesali málmleitandi tekur sig svo upp á ný og leggur með hyrði sína af stað yfir hraun og klungur og jökulrastir. H;mn er þreyttur og sveictur og færðin er íll, í augum margra ekkert nema ókleifar torfærui’. Honum gengur þessvegna seint. Annan sprettinn er liann að klifra upp þverhnýptar klappir og liinn að renna sér niður snarbratta hlíð og fram af klöppum sem standa út úr sandinum. En áfram heldur hann einhvernvegin, þangað til hann hefir yfirstigið íj'allgarðinn, er hann setti sér fyrir að yfirbuga. Um síðir er hann kominn svo langt niður eftir hllðun- um hins vegar á fjallinu, að furuskógur umkringir hann á ný og er þar gott að nema staðar og gera sér hreysi Er það sérstaklega velþóknanlegur aðseturstaður nú, eftir að hafa haft náttstað undir beru lofti upp á fjallshryggnum, þar sem frost- btormur n'",1di í sífellu og jökulrákir voru í hverri d, 1. En hvar sem náttstaður ieitarmaniij os <•". hvert lm'dur nppi á fjallshnjúk eoa nióri 1 skógivöxnum dal, er fæði hans óumbreytanlegt, nema fugl eða dýr hafi hnigið fyrir byssu hans. Og fæði hans er þetta að morgni, kveldi og um miðjan dag : haframjölsgrautur, nokkurs konar flatbrauð (Bannock) með pjöru af reyktu svínsfleski, nokkur spónblöð af baunum og tebolli. Þetta er fæði hans þegar dýr eða fuglar hafa ekki fengist, frá því hann yfirgefur mannabygðir og þang- að til hann kemur til þeirra aftur. Og kraftmaturinn, sem hann einkum treystir á, eru baunirnar, brauðið og íieskið. Ef votyiðrasamt er, reisir hann tjald sitt á kvöldin, en sé þurviðri, hefir hann ekki fyrir því. Hann vefur sig þá að eins í ábreiðunum, liefir heiðan himininn fyrir skálatjald, en furutrjáboli hefir hann á eldi við fætur sér. , Málmleitarmaðurinn sem hér er um að ræða, er sem sagt, kominn niður í skóga, í þeirri hlið fjallliryggsins, sem hann hafði ásett sér að skoða áður en hann gæfist upp. Eftir því sem hann hefir farið lengra niður eftir hlíðinni, hefir hann séð landslagið og svip allan á föstu og lausu grjóti breytast. Og augu hans, eins æfð og þau eru í þessu efni, hafa þegar séð á þessum breytta svip, þau einkenni, er æfinlega fjdgja málmblöndnu grjóti. Þreyta hans er þegar horfin. Vonin er alvöknuð aftur og hann tekur sér hvíid í hentugu rjóðri í grend við einlivern litla lækinn, er bogar niður brekkuna. Hann kveikir sér eld, matbýr kvöldverðinii og leggst til svefns, ánægður með sjálfan sig og heiminn. Hann er ekki í neinum efa um það, að á morgun finnur hann eitt- livað af því, sem hann svo oft og svo lengi hefir leitað að. Áður en dagur ljómar morguninn eftir er hann lcominn á fætur og búinn að tilreiða morgunverð. Strax þegar lýsir yfirgefur hann hreysi sitt, eða náttstað, sem nú í svipinn er orð- inn að heimili hans. Með pæl sinn, eða sandhögg um öxl—vopn sem námamaður skilur aldrei við sig, því það er lykill hans að gimsteinahelli náttúrunnar—legg- ur hann léttfættur og glaður í leitina. Enginn unglingur fagnar meir frídegi óg þeim skemtunum sem honum fylgja en málmleitannaðurinn nú fagnar leitinni, þegar vegsummerki öll benda til, að dýr- mætur “fundur” sé í nágrenninu. Vonin og fjörið framleiðir roða í kinnum lians og augu hans tindra af tilhlökkun. Sam- tímis gægjist sólin upp á milli fjallalinjúka og sveipar hún skóginn og fjallshlíðina alla í logagyltri bla:ju. Það er dýrðleg sjón. Náttúran er svipmikil og fögur hvar sem til cr litið á þessum eyðistað. Ekkert af þessu dylst málmleitarmannin- um. Ilonum dylst heldur ekki, að hér er hann sannarlega frjáls og sjálfráður. Þess vegna er ekki undarlegt þó hann hugsi sem svo, er hann rennir augum yfir hlíð- ina og skógarbrciðuna niðurundan, niðri í döfunum, að hann viidi ekki skifta kjör- um við nokkurn þjóðhöfðingja jarðar.

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.