Öldin - 01.03.1896, Qupperneq 19

Öldin - 01.03.1896, Qupperneq 19
ÖLDIN. 51 fáráðu og fákunnandi frumbyggjar eru yfirbugaðir og land þeirra tekið frá þeim. Þeir stökkva undan lengra og lengra út í óbygðirnar, eða réttara sagt lengra og lengra inn í bygðir hinna dsiðuðu frum- byggja, eða þcir samlagast liinum aðkom- andi hvítu mönnum og verða þjónar þeirra. Af þessu ieiðir tvenns konar ófrið í grend við bygðir Evrópumanna, sem helzt aldrei verður lilé á. Frumbyggjarnir sjálflr ber- ast á banaspjótum og í sameiningu herja þeir í sífeilu á útjaðra hvítumanna-bygð- anna, ræna fénaði og drepa jafnt börn, kon- ur og karla. Af þessu leiða hinar sífeldu herferðir til móts við barbarafiokka þessa og aí þeim aftur og einnig af innbyrðis róstum og vígidci'luin flokkanna sjálfra, leiðir svo það að líkum í Suður-AfríkU, eins og í Ameriku, að frumbyggjar iands- ins týna tölunni furðu fljótt og hverfa úr sögunni, nema ef þeir þokast norður í geiminn mikla umhverfis miðjarðarlínuna þar sem hvitum mönnum er ekki vært vegna hitans. Matabela-landið er næsta héraðið við Transvaal-lýðveldið að norðan, — að eins fljót sem skilur á inilli, Limpopu-fljótið, en landamæri þess að suðvestan eru norðaust- ur takmörk héraðsins Bechuanaiand. Vcga- lengdin milli Buluwayo, höfuðstaðarins í Matabelalandi og Ilöfðaþorps undir Góðr- arvonarhöfða, er 1000—1200 mílurenskar. Eftirfylgjandi greinarkaflar eru eftir Sir Frederick Frankland, en ritgerð lians birtist í síðasti. Október í Review of Re- vicvs : “Það var árið 188Í* að Cecil J. Rhodes þá stjórnarfomiaður í Iíöfðanýlendunni (Góðrarvonarhöfða) og útheiminum þá orð- inn kunnur fyrir framgöngu sína í að sam- eina undir eina aðalstjórn öll demanta- námafélögin í Kimberly-héraðinu í Afríku, —það var þá, að honum kom ráð í hug- til að ná undir Breta og stjórn Breta að icostn- aðarlausu héraðinu næsta fyrir norðan Liinpopufljótið. í því skyni kom hann á fót félagi sem hann nefndi “ Hið brezka Suður-Afríku félag,” og rétt fyrir árslokin í Desember, fékk hann félagið löggilt hjá Bretastjórn. Að stofnskránni fenginni tók hið nýmyndaða félag undir eins til starfa að búa sig í gullsleitina í Matabela-landi. í Júní (1890) var alt tilbúið og 180 menn lögðuaf stað til hins “fyrirheitnalandsins,” undir stjórn herforingja þess er Penny- father hét. Fylgdarmaðurinn, er aðallega réði ferðinni, var hinn nafntogaði Afríku- veiðimaður, F. C. Selous.* Eftir langa ferð og erfiða námu þessir málmleitendur loks staðar á þeim stað í Matabelalandi, þar sem nú er þorpið Salisbury. Þar byrj- uðu þeir strax að leita að gulli og fundu fljótt merki þess, að ekki hefði verið til ó- nýtis barist. Sem sagt voru þessir menn að nafninu til málmleitendur, en þó höfðu þeir á leiðinni bygt virki allmikil mcð á- ltveðnu millibili. Hétu þau Tuli, Victoria og Charter. Fyrsti ráðsmaður félagsins, sem fylgdi þessum forkólfum h vítra land- nema í Matabelalandi, hét Colquhoun, en hann dvaldi þar stutta stund einungis. í hans stað var sendur þangað læknir úr Kimberly-héraðinu, nafntogaður fyrir dugnað og kjark, Lionel S. Jameson að nafni (sá er réði áhlaupinu á Böarana í Transvaal í vetur og sem nú er fangi í London). Sást það fijótt, er lianu tók við stjórn félagsins, að Rhodes hafði verið lieppinn í valinu og að ekki hafði verið of- sögum sagt af dugnaði Jamesons eða hygni í stjórnmálum. Er það honum óefað að miklu leyti að þakka, að hagur Suður- Afríku félagsins stendur eins og hann stendur nú. Svertingjahöfðinginn, eða konungur- inn, sem einvaldur siýrði Matabela-landi, *) Þessi maður er mörgum Islendingum hér vestra kunnur, þó ekki með þessu nafni. Það er sem sé sagt að hann sé söguhotjan Allan Quatermain, í samnefndri kynjasögu eftir H. Rider Haggard og sem fjölmargir Vestur-íslendingar hafa lesið. RiUtj.

x

Öldin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.