Öldin - 01.03.1896, Page 22

Öldin - 01.03.1896, Page 22
54 ÖLDIN. tíma á löngu liðinni öld, bjuggu hér þjóðir er störfuðu að málmte.kju og scm það hafa gert í all-stórum stíl, þó rústirnar bendi á að aðferð þcirra öll og áhöld hafl verið fá- tækleg mjög. Aðrar menjar um þá þjóð- fiokka cru þar ekki og því ekki að svo stöddu unt að gera áætlun um það, hvaða mannflokkur það var. Flestar námurnar sem nú er unnið í, eru einmitt á þessum gömlu rústum. Eftirsókn all-mikil eftir bújörðum hef- ir átt sór stað í hóraðinu á sðastl. 2 árum, enda sannað orðið að landið er hið hent- ugasta til kvikfjárræktar og aldin-ræktar, Auk almcnnra suðrænna ávaxta þrífst þar kafti-tröð, sykui'-reyr o. s. frv. Þó “hið brezka Suður-Afríku-félag” teljist að eiga hérað þettaalt, eins ogönnur fleiri, er það þó ekki einrátt hvað stjórn þess snertir. Útríkjastjóri Breta heflr þar hönd í bagga með. Stjórn héraðsins er þannig sem stendur í höndumflmm manna, framkvæmdarstjóra og fjögra ráðgjafa. Yflrréttur heflr þar og verið stofnaður nú nýlega, með óháðum dómurum og fullu úrskurðarvaldi í öllum málum. Yflr- dómarinn í þeim rétti hefir auk þess em- bættis óskerðan rétt sem auka-ráðgjafi á fundum héraðsstjórnarinnar. Hagurþessa volduga félags stendur vel. Landeign þess í Afríku er nú sam- tals um fiOO þúsund ferhyrningsmílur að flatarmáli. Stofnfé þess er 10 inilj. dollars. og skuldir þess als 3J, railj. dollars. En til að mæta þeim skuldum, að landeign- inni ótaiinni með öllum námunum, 4 fé- lagið 100 mílna langa járnbraut í Bec- huanalandi, sem tengd er brautinni frá Góðrarvonarhöfða, og sem fyrirætlað er að leggist, og það innan skamms, norðaustur um landið, alt að Zambesi-fljóti. Er sú braut að minstakosti 11 milj. dollars virði og skuldlaus. Auk þessa á félagið full- gerðar 1,400 mílur af telegraf þráðum í þessum béruðum tveimur, Bechuanalandi og Matabela-landi. Er þráður sá nú kom- inn 60 mílur norður fyrir Zambesi-fljót og uppihaldslaust unnið að framlenging hans norður á bóginn. Er tilgangurinn að sameina hann svo fljótt sem verður við telegraf þráðinn upji Níiar-dal frá Kairo í Egyftalandi. Eftir beinustu póstleið (um Góðrar- vonarhöfða) er Buluwayo um 7,500 míiur frá London á Englandi, en þó gengur póst- ur svo greitt nú orðið, að bréf og blöð ganga. þar á milli á 28 dögum. Stofnun þessa félags og störf þess í Afríku hafa haft heillavænleg áhrif á Suð- ur-Afríku alla. Það eru ekki svo mörg ár síðan alt þetta svæði, og öll héruðin norður alt að Tanganyika-vatni, þótti ó- fært ncma jafningjum þeirra Livingstoncs og Stanley og þeim víkingum enda ófært nema með öflugum verði umliverfis sig. Nú er alt þetta land sem heimahagar fyrir heimsverzlunina og viðskiftin, fyrir land- námsmenn og það líf og fjör, sem ávalt fyigir í fótspor þeirra. Agassiz-vatn. Svo nefna jarðfræðingar nútíðarinnar alment hið milda stöðuvatn, er á lönguliðn- nrn öldum svall um hinar grasgefnu, frjóv- sömu sléttur, sem nú eru í heild sinni ncfndar Rauðár- dalur eða Rauðárdals-slétta. Er vatn þetta heitið eftir hinum nafnkunna svissneska náttúruíræðingi Louis Agassiz (fæddur 1808. Dáinn 1873). Hvað langt er síðan þetta mikla vatn var til, er nokkuð sem fræðimönnunum er ekki full-ijóst enn. Það er álit þeirra allra, að síðan . það tæmdist séu að minsta kosti 6,000 ár, lík- lega 10,000, og enda ef til vill meira. Jarðlögin á þeim stöðvum, er mynduðu strendur þess, benda á, að vatn þetta hafi staðið í stað, hvorki aukist né þverrað, í 1,000 ár. Á þessu tímabili, meðan það hafði fulia stærð, var vatnið um eða yflr

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.