Öldin - 01.03.1896, Síða 25

Öldin - 01.03.1896, Síða 25
ÖLDIN. 57 en íiheyrendunum til skemtunar. Eftir að hafa athugað þessa breytingu í fari Norðmanna, sem sannarlega eru langt frá því að vera spaugsamir menn heima, komst cg að þeirri niðurstöðu, að loftslagið á einn eða annan hátt ætti þátt í þessu þjóðernis einkenni. Að vort þurra stvrkj- andi loftslag hafl örfandi áhrif á heilann er nokkurnveginn auðsætt. Og spaug er gáfa sem útheimtir fjölbreyttari hugsun og stórvirkari heila, heldur en blátt áfram sönn frásögn. Þetta út af fyrir sig getur máske að miklu leyli skýrt hvernig stend- ur á þessum breytingum, er ég mundi hafa sagt að ekki væri nema ímyndun, hefði ég sjálfur ekki veitt þeim eftirtekt og það svo oft. Þægilegri kringumstæður hafa og eflaust örfandi áhrif og leiða manrúnn til að líta á tilveruna með glöð- um augum. Sama má og segja um áhrif þess, er hver maður veit að hann er jafn- ingi nábúans. Sú jafnaðarmeðvitund hlýt- ur að eiga sinn þátt í þessu. En hver helzt sem orsökin er, þá verður því ekki neitað, að þetta almenna glens er sótt- næmt.” Það er álit Boyesens að það sé þessu spaugi, þessum skorti á alvöru, að kenna, að svo mjög gengur til þurðar mælskan, sem svo almenn var fyrrum. Ilann segist vilja seinastur manna finna að því, að á- kveðinn mælir af spaugi eða glaðværð sð blandað saman við vort armæðusama líf, cn hann heldur að hér sé glaðværðin um of. Ein afleiðingin af þessu sé það, að al- varlegt samtal, sem aðrar siðaðar þjóðir álíti fullkomnustu skemtun í félagslíflnu, verði ekki til — deyi út. f samkvæmum skiftist menn á spaugsyrðum í staðin fyrir að ræða um alvarleg mál. Við segjum hvor öðrum nýjustu skrítlurnar og nýjustu spaugsyrðin. Á vissum árstíðum eru viss- ar skrítlur í hefð og heyrir maður þær hvar sem maður er í samkvæmi. Með tímanum vcrða þær óbærilega leiðinlegar, en hvert sem maður hlustar á þær í tíunda eða hundraðasta skiftið er maður neyddur til að gera sér upp hlátur. Maður verður að 'þekkja sessunaut sinn vel, áður en maður leyfir sér að gefa í skyn, að þetta sé gömul saga. Eftir heimkomu mína úr Evrópu-ferðinni árið 1879 tókégeKki eftir nokkrum mismun, sem mér féll jafn illa, eins og þeim, er lýtur að samræðum. Eg sá þá, og mér varð nokkuð hverft við það, að í samanburði við samræður í frönskum og ítölskum félagsskap, eru samræður helzt ekki til í Bandaríkjunum. Það er miklu þægilegra og útheimtir satt að segja als enga áreynslu, að endurtaka marg- sagðar kýmnisögur og spaugsyrði. Og fyrir sívinnandi verzlunarþjóð er það ef- laust mikils virði að geta þannig hagnýtt, þcnnan samræðu gangeyrir, fyrir löngu mótaðan og slípaðan, og eftir sem áður átt óskerta vora andlegu innstæðu.” Handrit Greeley’s. [Hayden Carhoth í Harpers Monthly.] Kg hafði aldrei heyrt; getið um þann farand-prentara, ef hann annars hafði ald- ur til, að hann hefði ckki unnið við “New York Tribune ” á dögum Greeley’s, og að hann þar af leiðandi ræki minni til hand- ritanna frá þessum mikla ritstjóra. Þetta haf'ði ðg í huga eitt kvöld, þegar prentar- inn ruinn, hann gamli Mark Wallis, var algáður og í standi til að spjalla um eitt og annað. Kg tók hann tali og svcigði það að þessu umtalsefni. “ Já,” sagði hann einlæglega, “ég vann við Tribune árlangt, kringum I «00, en ég sá sjaldan handrit Greeley’s. Það var aðallega einn ákveðinn prentari, hvít- ur af hærum — regluleg ártalsvilla., svo gamall var hann og að því skapi undar- legur, með reykpípn upp í sér gerða úr maisstöngli með maiskornunum áföstum.

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.