Öldin - 01.03.1896, Page 27

Öldin - 01.03.1896, Page 27
ÖLDIN. 59 krúsinni. Var það sjaldgæft að þeir skildu eftir nóg lím á eitt frímerki hvað þá meira. Það var venja Greeley’s að klippa þá grein úr samtíðarblaðs-andstygðinni, sem hann þurfti að svara, límaúrklippuna efst á handrita-pappírinn, og hyrja svo að slíta hinn happalausa andvígis mann sinn lið frá lið, á ritvellinum niðurundan úr- klippunni. Byrjaði hann þá ekki ósjaldan á þessa leið: “Þú lýgur, fanturinn þinn, þú lýgur!” og endaði svo með þessari rúsínu: “Vér viijum ekkert tiga við þig framar!” Það kom fyrir og ekki ósjaldan, að þegar hann, fokvondur við einhverja grein, er hann hafði klippt úr hlaði, rak bustann í fáti ofan í límkrúsina, þá var hún tóm, þursleikt og spegil-f'águð. Þá sátu hanarnir út í horni og horfðu á hús- hóndann, en fyllri en svo, að hættulaust væri að hreyfa sig. Það var sönn raun fyrir Greeley þetta, en þessa nýja fugla- kyns vegna, afbar hann þó þrautirnar heila viku. En þá þraut þolinmæðin. Hanarnir léku hann þannig einusinni of oft, svo það varð Greeley sem sprakk, en ekki hanarnir, fullir eins og þeir voru. Sendi hann þá eftir formannfnum og talaði við hann þannig: “Sérðu horngrýtis hanana þá arna? Þeir hafa étið alt límið mitt! Þeir eru fullir af því! 0g þeir eru að bíða eftir að ég komi með meira. Farðu með þá upp á loft og láttu mig aidrei sjá þá aftur!” Formaðurinn tók hanana, sinn undir hvorn handlegg og fór með þá eins og honum var sagt. Á þennan hátt færðist starfsvið- þeirra af skrifstofunni upp á prentsfofuna. Þcir héldu áfram að vaxa og þroskast í sínu nýja heimkynni, enda engin þurð á sömu fæðistegundum og þeir áður höfðu á skrifstofu Greeley’s. Og eins og þar náðu þeir ekki ósjaldan í sleikju úr límkrús for- mannsins. Að auki, til matbreytinga, gaf vikadrengurinn þeim stundum ofurlítið af prentsvertu, á endanum á dálkstriki. Svertan einnig sýndist verðaþeim að góðu, nema hvað hún, eða eitthvað annað, virtist hafa ili áhrif á geðsmuni þeirra. Þeim fór að koma illa saman, áttu í sífeldum ill- hrifum og flugust enda á. Hernaðar- löngun þeirra fór dagvaxandi, og kom þar að, að nafn þeirra “Go-West ’ var eklti viðeigandi. Þeir hefðu miklu fremur átt að heita “On -to-Richmond”*-hanar. Eftir að þeir höfðu verið hjá okkur tveggja vikna tíma bar svo til að vika drengurinn hafði skilið eftir prófarka- “róluna” á gólfinu, á meðan við vorum burtu að miðdegisverði. Á meðan hafði annar haninn fyrir tilviljun stígið á “ról- una” og síðan á pappírsblað á gólfinu. Formaðurinn tók eftir þessu, leit á hana- sporið á blaðinu og—þá datt honum svo gott ráð í liug, að hann skelti hendinni á læiið til að gera eitthvað, en læsti saman vörunum og beit á jaxlinn, til þess að skella ekki upp úr. Svo geklc hann upp að skrifborði sínu eins og í leiðslu, en skotraði augunum til Larkway’s, eins og þætti honum nú “björninn unninn”. Áður enn hann fór lieim um kvöldið, talaði hann einslega við prófarkalesarann og einn eða tvo aðfa. Þeim geðjaðist vel málefnið, ef dæmt var af '.átbragði þeirra, en ckki sögðu þeir neitt, en héldu heim og bjuggu sig undir viðureignina. Morguninn eftir voru þeir komnir á prentstofuna tveimur tímum á undan öll- um öðrum. Formaðurinn tók annan han- ann, en prófarkalesarinn hinn, fóru með þá yfir í hornið fyrir handan letur borðin. Áður höfðu þeir sent vikadreng- inn ofan í skrifstofu Greeley’s eftir tíu eða tólf örkum af handrita-pappír. Pápplrnum röðuðu þeir svo á gólfið, örk við örk, báru svo svertu á lappirnar á hönunum og sig- uðu þeim svo saman í orustu á örkunum. *) "On to Richmonrt” = áfram til Rich- mond. Viðkvæði norðanmanna í þrælastríð- inu, er þýddi það, að hertaka þyrfti borgina Richmond.------Þýð.

x

Öldin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.